Næstum 2.800 manns hætta alfarið að fá vaxtabætur vegna hækkunar fasteignamats

Fast­eigna­mat hækkar að með­al­tali um 23,6 pró­sent um ára­mót og þá sömu­leiðis eigna­staða þeirra sem búa í eigin hús­næði. Það hefur þau áhrif að hátt í 2.800 manns hætta að fá ein­hverjar vaxta­bætur, sam­kvæmt útreikn­ingum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir þingmaður Flokks fólksins beindi fyrirspurn til fjármála- og efnahagsráðherra um áhrif hækkunar fasteignamats.
Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir þing­maður Flokks fólks­ins beindi fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um áhrif hækk­unar fast­eigna­mats. Mynd: Bára Huld Beck

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið áætlar að hækkun fast­eigna­mats um kom­andi ára­mót, sem nemur að með­al­tali 23,6 pró­sentum á íbúð­ar­hús­næði, muni hafa þau hlið­ar­á­hrif á vaxta­bóta­kerfið að tæp­lega 2.800 fram­telj­endur sem áður fengu ein­hverjar vaxta­bætur verði fyrir fullum skerð­ingum og fái þar af leið­andi engar vaxta­bætur.

Sömu­leiðis er áætlað að allt að 90 pró­sent þeirra sem fá vaxta­bætur muni verða fyrir auknum skerð­ingum bót­anna vegna hærra fast­eigna­mats, en þessar tölur koma fram í skrif­legu svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Ásthildi Lóu Þórs­dóttur þing­manni Flokks fólks­ins, um áhrif hækk­unar fast­eigna­mats.

Ekki komi til greina að hækka skerðingarmörkin

Samkvæmt svari ráð­herra kemur ekki til greina að hækka skerð­ing­ar­mörk vaxta­bóta vegna hækk­andi fast­eigna­mats. Í svari Bjarna kemur fram að spenna sé mikil í þjóð­ar­bú­inu á alla mæli­kvarða, sem kalli á aðhald á sviði pen­inga- og rík­is­fjár­mála.

„Mik­il­vægt er að armar hag­stjórnar rói í sömu átt þar sem eft­ir­gjöf á sviði rík­is­fjár­mála kallar á þeim mun meiri hækkun stýri­vaxta til þess að draga úr þenslu og verð­bólgu. Í upp­sveiflum, rétt eins og nið­ur­sveiflum, er mik­il­vægt að áhrif sjálf­virkra sveiflu­jafn­ara rík­is­fjár­mála fái að koma fram eins og frekast er kostur. Í vaxta­bóta­kerf­inu kemur sjálf­virk sveiflu­jöfnun m.a. þannig fram að vegna eigna­skerð­ing­ar­marka minnka greiðslur sam­hliða hækkun íbúða­verðs. Hækkun eigna­skerð­ing­ar­marka myndi draga úr sjálf­virkri sveiflu­jöfnun kerf­is­ins, þvert á hag­stjórn­ar­stefnu stjórn­valda, og myndi ein­göngu gagn­ast íbúða­eig­endum, einkum þeim sem hafa orðið eigna­meiri vegna hækk­unar íbúða­verðs,“ segir í svari Bjarna.

Í svari ráð­herra er því einnig komið á fram­færi að ekki verði séð að þörf sé á slíkum stuðn­ingi, þar sem stjórn­völd hafi þegar kynnt aðgerðir til að draga úr áhrifum verð­bólgu á við­kvæma hópa, sem hafi þann til­gang að minnka hættu á efn­is­legum skorti hjá þeim tekju­lægstu og eigna­minnstu.

Í svari Bjarna er einnig til­tekið það sé „ástæða til að benda á það í þessu sam­hengi“ að fjár­hags­staða heim­il­anna hafi almennt styrkst síð­ustu ár þvert á tekju­hópa og að fjár­hags­staða fólks sem býr í eigin hús­næði hafi styrkst sér­stak­lega vegna mik­illar hækk­unar íbúða­verðs.

„Vanskil íbúða­lána eru í lág­marki. Það sama á við um vaxta­byrði sem hlut­fall af ráð­stöf­un­ar­tekjum sam­kvæmt nýj­ustu tölum þótt breyt­ing gæti orðið þar á næstu miss­eri. Telja má að hækkun vaxta­bóta, sér­stak­lega með hækkun eigna­skerð­ing­ar­marka, myndi því ekki aðeins ganga gegn stefnu hag­stjórnar heldur einnig því sjón­ar­miði að beina bóta­greiðslum og hús­næð­is­stuðn­ingi þangað sem hans er þörf,“ segir í svari Bjarna.

Vaxta­bóta­kerfið hefur farið minnk­andi und­an­farin ár, vegna ákvarð­ana stjórn­valda, sem hafa beint hús­næð­is­stuðn­ingi hins opin­bera í aðra far­vegi. Hrapaði fjöldi þeirra fram­telj­enda sem fengu vaxta­bætur úr 45 þús­undum árið 2013 niður í rúm­lega 15 þús­und árið 2020.

Þetta hefur verið gagn­rýnt, meðal ann­ars í Kjara­f­réttum Eflingar fyrr á þessu ári. Þar sagði að vaxta­bóta­kerfið hefði í reynd verið skorið niður, án þess að önnur úrræði sem gögn­uð­ust þeim þorra launa­fólks sem áður fékk vaxta­bætur hafi verið kynnt til sög­unnar.

„Þó hlut­deild­ar­lán og nið­ur­greiðslur á leigu­hús­næði lág­launa­fólks séu ágætar við­bætur við kerfið þá gagn­ast þær svo fáum að ekki sér högg á vatni í þeim vanda sem fyrir er. Að bjóða launa­fólki að nota sér­eignar líf­eyr­is­sparnað sinn í stað vaxta­bóta er heldur ekki kjara­bót. Þá leið hefði hins vegar mátt rétt­læta ef vaxta­bæt­urnar hefðu haldið sér áfram,“ sagði í Kjara­f­réttum, sem eru á ábyrgð Stefán Ólafs­sonar sér­fræð­ings hjá Eflingu stétt­ar­fé­lagi.

Ekki nein áform sem stendur um að lækka eða afnema stimpilgjöld

Þing­mað­ur­inn Ást­hildur Lóa, sem er auk þing­starfa sinna for­maður Hags­muna­sam­taka heim­il­anna, beindi einnig þeirri spurn­ingu til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hvort til greina kæmi að lækka álagn­ing­ar­hlut­fall stimp­il­gjalda til að mæta hækkun fast­eigna­mats um næstu ára­mót, eða jafn­vel afnema stimp­il­gjöld sem fylgja fast­eigna­við­skiptum.

Stimp­il­gjöld eru 0,8 pró­sent af fast­eigna­mati eigna, en 0,4 pró­sent fast­eigna­mats fyrir þá sem eru að kaupa í fyrsta skipti. Þessi gjöld munu því taka sam­bæri­legum hækk­unum og fast­eigna­mat íbúð­ar­eigna, sem mun, eins og áður var vikið að, hækka um 23,6 pró­sent að með­al­tali um kom­andi ára­mót.

„Eins og stendur liggja ekki fyrir áform um að lækka eða afnema stimp­il­gjöld til að mæta hækkun fast­eigna­mats um næstu ára­mót,“ segir í svari ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár