Vill að stjórnarmenn greiði atkvæði gegn þátttöku í hlutafjárútboði Icelandair

Stjórn VR beinir þeim til­mælum til þeirra stjórn­ar­manna sem VR skipar í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna að snið­ganga eða greiða atkvæði gegn þátt­töku í vænt­an­legu hluta­fjár­út­boði Icelandair.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn VR, sem jafn­framt á sæti í full­trúa­ráði Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, beinir þeim til­mælum til þeirra stjórn­ar­manna sem VR skipar í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna að snið­ganga eða greiða atkvæði gegn þátt­töku í vænt­an­legu hluta­fjár­út­boði Icelandair. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá VR.

Fram kom í fréttum í dag að stjórn­endur Icelandair hefðu ákveðið að hætta við­ræðum við Flug­freyju­fé­lag Íslands og leita eftir samn­ingum við annan samn­ings­að­ila á hinum íslenska vinnu­mark­aði um fram­tíð­ar­kjör öryggis- og þjón­ustu­liða hjá félag­inu. Öllum flug­freyjum og flug­þjónum verður sagt upp og þess í stað eiga flug­menn að taka að sér störf örygg­is­liða um borð tíma­bundið.

Í til­kynn­ingu VR segir að fjölda félags­manna þeirra, sem margir hverjir hafa starfað ára­tugum saman hjá félag­inu, hafi verið sagt upp störfum á meðan félagið stundi félags­leg und­ir­boð með úthýs­ingu starfa í löndum þar sem rétt­indi séu fótum troðin.

Stjórn VR getur ekki sætt sig við það að eft­ir­launa­sjóðir launa­fólks séu not­aðir til fjár­fest­inga í fyr­ir­tækjum sem hvetja til félags­legra und­ir­boða. Það stríði gegn öllum þeim gildum sem verka­lýðs­hreyf­ingin stendur fyrir. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi einnig sett sér alþjóð­leg sið­ferð­is­leg við­mið í fjár­fest­inga­stefnum sínum og beri þeim að fylgja því eftir.

Hvernig geta lífeyrissjóðirnir leyft þessu að viðgangast án þess að aðhafast nokkuð?

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að það sé með hreinum ólík­indum að stjórn og stjórn­endur Icelandair fái að stýra félag­inu óáreittir í krafti eft­ir­launa­sjóða almenn­ings.

[links]„Í ljósi þess að stjórn­endur félags­ins hafa nær fullt hús stiga þegar kemur að röngum ákvörð­unum sem hafa skaðað félagið og stöðu þess und­an­farin ár.

Ber þar að nefna hvernig haldið hefur verið á málum gagn­vart Boeing, breyt­ingar á leiða­kerfum, kaup félags­ins á rík­is­flug­fé­lagi Græn­höfða­eyja, við­brögð við sam­keppni á einum mesta upp­gangs­tíma flug­sög­unnar, klúðrið og spill­ingin í kringum Lind­ar­vatn sem byggir hót­elið á Land­símareitnum og svo ömur­lega fram­komu stjórn­enda og yfir­lýs­ingar í garð starfs­fólks,“ skrifar hann.

Hann segir að þó hægt sé að telja upp mun fleiri atriði megi álykta sem svo að lyk­il­fjár­festar vilji vart snerta á félag­inu með priki á meðan sömu stjórn og stjórn­endum sé ætlað að leiða þetta mik­il­væga fyr­ir­tæki í gegnum þann ólgu­sjó sem nú ríkir.

Ragnar Þór spyr hvernig í ver­öld­inni hlut­hafar, sem í þessu til­felli eru líf­eyr­is­sjóð­irnir stærstir, geti leyft þessu að við­gang­ast án þess að aðhaf­ast nokkuð – árum saman.

Eigendur í venjulegum fyrirtækjum væru fyrir löngu búnir að grípa inn í

„Ég er hræddur um að virkir eig­endur og hlut­hafar í venju­legum fyr­ir­tækjum væru fyrir löngu búnir að grípa inn í og gera nauð­syn­legar breyt­ingar ef við­líka stjórn­leysi ríkti og gerir hjá Icelandair.

Stjórn­endur Icelandair starfa óáreittir í skjóli líf­eyr­is­sjóð­anna sem fara með almannafé og við það getum við ekki unað lengur.

Að því sögðu skora ég á líf­eyr­is­sjóð­ina að krefj­ast hlut­hafa­fundar, taf­ar­laust, og gera nauð­syn­legar breyt­ingar á stjórn félags­ins svo ein­hver raun­veru­legur mögu­leiki sé á að bjarga félag­inu svo sátt ríki þar um.

Ég vil að lokum nota tæki­færið og þakka for­stjóra Icelandair fyrir að sam­eina verka­lýðs­hreyf­ing­una í eina kraft­mikla heild sem sækir nú fram sam­einuð og aldrei sterk­ari,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár