Flugfreyjufélag Íslands fordæmir óvænt og einhliða viðræðuslit

FFÍ hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna við­ræðu­slita Icelandair og félags­ins.

Stjórn og trún­að­ar­ráð Flug­freyju­fé­lags Íslands (FFÍ) for­dæmir óvænt og ein­hliða við­ræðu­slit Icelandair sem birt voru í fjöl­miðlum í dag. Afstaða Icelandair setur FFÍ í þá afleitu stöðu að þurfa að hefja und­ir­bún­ing að taf­ar­lausum og víð­tækum verk­falls­að­gerðum. FFÍ er aðili að Alþýðu­sam­bandi Íslands og alþjóð­legum verka­lýðs­sam­tökum og hefur fullan stuðn­ing við aðgerðir sínar þar. Sam­stöðu­afl­inu verður beitt af fullum þunga.

[links]Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Flug­freyju­fé­lagi Íslands sem send var út í rétt í þessu.

„Það eru gríð­ar­leg von­brigði að Icelandair kalli eftir því að flug­menn gangi í störf félags­manna FFÍ og ég neita að trúa því fyrr en ég tek á því að vinnu­fé­lagar okkar muni koma þannig fram við sam­starfs­fé­laga sína um ára­bil. Afstaða og við­horf Icelandair í mál­inu eru til skammar og ég hef trú á að almenn­ingur taki slíkri lít­ils­virð­ingu við laun­fólk ekki þegj­andi og hljóða­laust,“ segir Guðlaug Líney Jóhanns­dóttir, for­maður Flug­freyju­fé­lags Íslands.

Vænta þess að málið verði tekið fyrir á vettvangi stjórnvalda

Þá kemur fram að Icelandair hafi á und­an­förnum mán­uðum þegið háar fjár­hæðir úr opin­berum sjóðum og FFÍ væntir þess að málið verði tekið fyrir á vett­vangi stjórn­valda hið fyrsta og geri þá kröfu til stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins að þeir virði lög og leik­reglur á íslenskum vinnu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár