Sólveig Anna: Ef þeir standa ekki í lappirnar er skömm þeirra mikil

Formaður Eflingar vonar að félags­menn í Fé­lagi ís­lenskra at­vinnu­flug­manna taki ekki þátt í að hjálpa Icelandair „að kom­ast upp með sví­virði­lega fram­komu með því að ganga í störf sam­starfs­fólks síns“.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, seg­ist í stöðu­upp­færslu á Facebook vona af öllu hjarta að félags­menn í Fé­lagi ís­lenskra at­vinnu­flug­manna sjái „hversu ömur­legt það er að standa ekki með flug­freyjum og taki ekki þátt í að hjálpa Icelandair að kom­ast upp með sví­virði­lega fram­komu með því að ganga í störf sam­starfs­fólks síns. Ef þeir standa ekki í lapp­irnar hér er skömm þeirra mikil.“

Vísar hún í frétt mbl.is þar sem talað er við Jón Þór Þor­valds­son, for­mann Fé­lags ís­lenskra at­vinnu­flug­manna, um ákvörðun Icelanda­ir að láta flug­menn starfa sem ör­ygg­is­liðar um borð í flug­vél­um fé­lags­ins nú fyrst búið er að segja upp öll­um flug­freyj­um og flug­þjón­um.

[adspot]

[links]Jón Þór seg­ist í sam­tali við mbl.is ekki líta svo á að flug­menn séu með bein­um hætti að ganga í störf flug­freyja og bend­ir á að um sé að ræða breyt­ingu í flug­rekstr­ar­hand­bók Icelanda­ir sem flug­menn verði að fara eft­ir.

„Sam­kvæmt loft­ferð­ar­lög­um og flug­rekstr­ar­fyr­ir­mæl­um ber­um við ábyrgð á ör­yggi um borð. Þetta eru flug­rekstr­ar­fyr­ir­mæli sem okk­ur ber að fara eft­ir,“ seg­ir Jón Þór. „Við þurf­um að skoða þetta okk­ar meg­in hvað þetta þýðir en við get­um ekki vikið okk­ur und­an vinnu­skyldu.“

„Reknar úr starfi eins og eitthvað drasl“

Sólveig Anna seg­ist aldrei hafa vitað annað eins. „Karlar ætla að ganga í störf kvenna sem verða fyrir eins ógeðs­legri fram­komu og hægt er að hugsa sér, eru reknar úr starfi eins og eitt­hvað drasl, þrátt fyrir ára og ára­tuga starfs­feril. Karl­arnir ætla um leið og þeir taka þátt í sví­virð­unni að fela sig á bak við sam­fé­lags­lega ábyrgð, að hér verði bara að tryggja sam­göngur stöðv­ist ekki,“ skrifar hún.

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, sagði í sam­tali við Kjarnann fyrr í dag að þau væru að leita allra leiða til að koma í veg fyrir þetta. „Þetta er ótrú­leg ósvífni af hendi Icelandair. Van­virð­ing gagn­vart starfs­fólki og van­virð­ing gagn­vart þeim reglum sem gilda á íslenskum vinnu­mark­aði og þeirra sem ganga til samn­inga,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár