Færeyingar opna landamærin „sérstaklega fyrir Íslendinga“

„Kæru frændur, nú er rétti tím­inn til að heim­sækja Færeyjar,“ stendur í skila­boðum frá fær­eyska flug­fé­lag­inu Atlantic Airways til íslensku þjóð­ar­innar.

Náttúrufegurð Færeyja er eitt helsta aðdráttarafl eyjanna.
Nátt­úru­feg­urð Færeyja er eitt helsta aðdrátt­ar­afl eyj­anna. Mynd: Tomáš Malík/Pexels

Leit að flugi til Færeyja á vefnum Dohop hefur rokið upp um 420 pró­sent milli vikna. Skýr­ingin er sú að Fær­ey­ingum tókst snemma að ná góðum tökum á far­aldr­inum og útrýma kór­ónu­veirunni í sam­fé­lag­inu og nú hefur verið ákveðið að opna landa­mærin fyrir ferða­lög til og frá Íslandi um miðjan mán­uð­inn.

„Kæru frændur, nú er rétti tím­inn til að heim­sækja Færeyjar,“ stendur í skila­boðum frá fær­eyska flug­fé­lag­inu Atlantic Airways til íslensku þjóð­ar­innar. „Við höfum opnað landa­mæri okkar sér­stak­lega fyrir Íslend­inga.“ Í skila­boð­unum er bent á að félagið muni frá og með 15. júní fljúga milli Kefla­vík­ur­flug­vallar og Færeyja þrisvar í viku; á mánu­dögum, mið­viku­dögum og föstu­dögum.

Íslend­ingar eru einnig að leita að flugi til ann­arra landa en leit þeirra að flugi inn­an­lands hefur einnig auk­ist um 76 pró­sent á einni viku.

Í grein­ar­gerð sem efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neytið vann að beiðni for­sæt­is­ráð­herra um hag­ræn áhrif þess að aflétta ferða­tak­mörk­unum til Íslands kemur m.a. fram að þrátt fyrir að hluti þeirra 200 millj­arða króna sem Íslend­ingar hefðu hugs­an­lega varið erlendis á þessu ári fari í neyslu inn­an­lands er ólík­legt að aukin neysla Íslend­inga hafi grund­valla­r­á­hrif á þróun ferða­þjón­ust­unnar þótt hún geti haft áhrif á ein­staka rekstr­ar­að­ila. Neysla Íslend­inga standi aðeins undir broti af tekjum flestra ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja, ekki síst hót­ela, bíla­leigu­bíla og þeirra sem veita ýmsa sér­hæfða afþr­ey­ingu. Þá kemur einnig fram að ekki séu heldur vís­bend­ingar um að ferða­lög Íslend­inga inn­an­lands muni aukast mikið á næst­unni, enda dragi atvinnu­leysi og óvissa úr einka­neyslu.

Í maí var ákveðið að ferða­menn frá Færeyjum og Græn­landi þurfi ekki að sæta sótt­kví við kom­una til lands­ins. Áhrif þess eru að mati fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins hverf­andi en hlut­fall Fær­ey­inga og Græn­lend­inga í heildar gistin­óttum árið 2019 var 0,1 pró­sent fyrir hvora þjóð.

En þegar tak­mark­anir eru á ferða­lögum víða ann­ars staðar í heim­inum gæti fjöldi ferða­manna frá þessum löndum hingað auð­vitað breyst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár