Mikil aukning í íbúðafjárfestingu framundan

Íbúða­fjár­fest­ing mun aukast um 18% á þessu ári og svo um 20% á ári næstu tvö ár, sam­kvæmt nýrri spá hag­fræði­deildar Lands­bank­ans. Bankinn spáir því að íbúða­fjár­fest­ing auk­ist svo um 15% árið 2019.

Í fyrra var íbúða­fjár­fest­ing 2,6 pró­sent af lands­fram­leiðslu, en á árunum 2000 til 2008 hafði slík fjár­fest­ing yfir­leitt verið á bil­inu fjögur til sex pró­sent af lands­fram­leiðslu. Eftir hrun lækk­aði hlut­fallið veru­lega og fór lægst í 2,2 pró­sent árið 2010. Und­an­farin þrjú ár hefur fjár­fest­ing í íbúðum verið að með­al­tali um 2,8 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Fyrir hrun hafði fjár­fest­ingin náð rúm­lega 148 millj­örðum króna, en hrundi niður í 44 millj­arða árið 2010 og hefur ekki farið nálægt þeim hæðum sem hún var í fyrir hrun. Íbúða­fjár­fest­ing nam um 60 millj­örðum króna árið 2014 og aðeins minna árið 2015.

Á fyrri hluta þessa árs jókst íbúða­fjár­fest­ing hins vegar um 17 pró­sent miðað við sama tíma í fyrra.

Fjöldi íbúða í byggingu líka á uppleið

Sömu sögu er að segja af fjölda íbúða í bygg­ingu, sem hefur tekið mik­inn kipp upp á við. Bygg­inga­starf­semi hrundi árið 2008 og var lengi að ná sér á nýjan leik. Árið 2014 var t.d. aðeins byrjað á bygg­ingum 580 íbúða á öllu land­inu, og lokið var við bygg­ingu 1.150 íbúða.

Árin 1985 til 2014 var að með­al­tali byrjað á um 1.700 íbúðum á hverju ári og lokið var við bygg­ingu svip­aðs fjölda. Í fyrra var hins vegar byrjað á rúm­lega 1.600 íbúðum. Þá bendir hag­fræði­deildin á að mikil aukn­ing hafi orðið á inn­flutn­ingi á helstu bygg­ing­ar­efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár