Er betl mannréttindi?

Það getur varðað fang­els­is­vist að standa fyrir utan aðal­braut­ar­stöð­ina í Kaup­manna­höfn og rétta fram tóman pappa­bolla. Hæsti­réttur Dan­merkur hefur dæmt lit­háískan mann í 60 daga fang­elsi fyrir betl. Málið gæti komið til kasta Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Árið 2017 voru heim­il­is­lausir í Dan­mörku um það bil eitt þús­und. Stærstur hluti þessa hóps hafði komið til Dan­merkur frá Aust­ur-Evr­ópu og dró fram lífið á betli og snöp­um.
Árið 2017 voru heim­il­is­lausir í Dan­mörku um það bil eitt þús­und. Stærstur hluti þessa hóps hafði komið til Dan­merkur frá Aust­ur-Evr­ópu og dró fram lífið á betli og snöp­um. Mynd: Pexels

Dómur Hæsta­réttar, sem kveð­inn var upp í síð­ustu viku, var stað­fest­ing á dómi Eystri-Lands­réttar í mars 2020 og þar áður dómi Bæj­ar­réttar Kaup­manna­hafnar. Í Danmörku eru dóm­stigin þrjú og öll mál, nema í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum byrja í bæj­ar­rétt­inum. Bæj­ar­rétt­ur­inn dæmdi Litháann í 60 daga fang­elsi eins og áður sagði. Og brott­vísun úr landi að lok­inni afplánun.

Sér­stakar reglur gilda um hvort hægt sé að áfrýja til æðra dóms­stigs, flestir dómar í Bæj­ar­rétti fara aldrei lengra. Þótt mál Litháans myndi í flestum til­vikum flokk­ast sem minni háttar eru sér­stakar ástæður fyrir því að það fór alla leið í Hæsta­rétt. Þær ástæður eru tvær, ann­ars vegar dönsk laga­setn­ing frá árinu 2017, sem ekki hefur áður reynt á fyrir æðsta dóm­stól Dan­merkur, hin ástæðan var dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu (MDE) í sviss­nesku máli (svo­nefndu Lacatus-máli) en þar var nið­ur­stöðu dóm­stóls í Sviss snúið við.

Forsaga þess máls var að kona af austur-evr­ópskum upp­runa hlaut, í jan­úar í fyrra, dóm fyrir að betla á götum Genfar. Konan hafði verið sektuð en sökum þess að hún gat ekki greitt sekt­ina var henni gert að sæta fimm sól­ar­hringa fang­elsi. Þessari nið­ur­stöðu var skotið til MDE, sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að brotið hefði verið gegn mann­rétt­indum kon­unnar, sem var nýkomin til Sviss ásamt börnum sínum. Hún tal­aði ekki tungu­mál lands­manna, gat ekki leitað aðstoðar ætt­ingja eða vina­fólks og hafði engan rétt til opin­berrar aðstoðar. Í til­viki kon­unnar, sagði í dómi MDE, var betl eini mögu­leiki hennar til að draga fram lífið. Sviss­nesk yfir­völd ákváðu að sækja ekki um að fá málið tekið fyrir í yfir­deild MDE. Þessi dómur MDE vakti athygli í Danmörku einkum vegna þess að dönsku lögin um betl eru strang­ari en þau sviss­nesku.

Lagasetningin 2017

Árið 2017 sam­þykkti danska þing­ið, Fol­ket­in­get, breyt­ingar á lögum um betl. Sam­kvæmt nýju lög­unum var heim­ilt að hand­taka, án und­an­geng­innar áminn­ing­ar, fólk sem staðið var að betli á götum og torg­um. Jafn­framt var í nýju lög­unum heim­ild til fang­els­is­dóms fyrir betl, tvær vikur að hámarki, fyrir fyrsta brot. Ástæðan fyrir þessum hertu ákvæðum lag­anna var stór­auk­inn fjöldi betl­ara á götum borga og bæja. Árið 2017 voru heim­il­is­lausir í Dan­mörku um það bil eitt þús­und og hafði fjöld­inn um það bil tvö­fald­ast á tveimur árum.

Stærstur hluti þessa hóps hafði komið til Dan­merkur frá Aust­ur-Evr­ópu og dró fram lífið á betli og snöp­um. Í umræðum á danska þing­inu kom fram að þing­menn höfðu áhyggjur af sívax­andi fjölda betl­ara og þótt ýmsir úr hópi þing­manna hafi gagn­rýnt herta lög­gjöf var hún sam­þykkt í þing­inu, með stuðn­ingi Sós­í­alde­mókrata, sem þá voru í stjórn­ar­and­stöðu. Stuðn­ings­flokkar núver­andi rík­is­stjórnar greiddu atkvæði gegn frum­varp­inu. Síðan lögin tóku gildi árið 2017 hafa hátt í eitt hund­rað hlotið fang­els­is­dóm fyrir betl og að minnsta kosti tutt­ugu til við­bótar skil­orðs­bund­inn dóm. Í lög­unum frá 2017 var svo­nefnt sól­ar­lags­á­kvæði, sem gerði ráð fyrir að lögin féllu úr gildi árið 2020 en áður en að því kom var gild­is­tím­inn fram­lengdur.

Vildi ekki breyta dönsku lögunum

Eftir að dómur MDE í Lacatus mál­inu féll voru nokkur „betl­ara­mál“ sett í bið hjá danska ákæru­vald­inu. Sér­fræð­ingar dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins vildu fara nákvæm­lega yfir úrskurð MDE en fjöldi þing­manna og dönsk mann­rétt­inda­sam­tök höfðu hvatt dóms­mála­ráð­herr­ann til að breyta dönsku lög­unum, sem eru strang­ari en þau sviss­nesku. Ráð­herr­ann til­kynnti, eftir að hafa farið ítar­lega yfir málið, að ekki væri ástæða til laga­breyt­inga í Danmörku. Þá var rykið dustað af ákær­unum.

Undir lok júlí í fyrra var til­kynnt að dómur (sá fyrsti í Danmörku eftir Lacatus-dóm MDE ) yrði kveð­inn upp 12. ágúst. Um var að ræða Rúmena sem sat flötum beinum á Strikinu, með útrétta hönd. Margir veltu fyrir sér hver úrskurður Bæj­ar­réttar Kaup­manna­hafnar yrði, ekki síst í ljósi ummæla dóms­mála­r­á­herra sem hafði sagt að vel gæti svo farið að Danmörk myndi tapa ef farið yrði með dóm í betl­ara­máli fyrir MDE í Strass­borg.

Dómur Bæj­ar­réttar Kaup­manna­hafnar 12. ágúst í fyrra var afdrátt­ar­laus. Rúmeninn var fund­inn sekur um betl, dæmdur í fjórtán daga fang­elsi og til greiðslu sak­ar­kostn­aðar. Fjórar krónur sem lágu í lófa hans við hand­tök­una voru gerðar upp­tækar.

Aftur að manninum með pappabollann

Eins og nefnt var í upp­hafi þessa pistils var Lithái með pappa­bolla í hendi dæmdur í 60 daga fang­elsi í Hæsta­rétti Dan­merkur, fyrir nokkrum dögum. Ástæða þess að sam­þykki fékkst fyrir að láta málið ganga til æðsta dóm­stóls lands­ins var sú að nauð­syn­legt þurfti að fá úr því skorið hvernig Hæsti­réttur tæki á mál­inu, í ljósi Lacatus-máls­ins sviss­neska þar sem MDE sneri við dómi Hæsta­réttar Sviss. Mál Litháans með pappa­boll­ann væri próf­mál.

En úr því að Hæsti­réttur Sviss var gerður aft­ur­reka með Lacatus-dóm­inn var þá ekki ein­sýnt að Hæsti­réttur Dan­merkur tæki mið af því og sýkn­aði Litháann mætti spyrja. Svarið við þeirri spurn­ingu var eins og áður sagði nei. Og fyrir því eru ástæður sem raktar eru í dóms­nið­ur­stöð­unni.

Margt ólíkt með Danmörku og Sviss

Níu hæsta­rétt­ar­dóm­arar úrskurð­uðu í máli Litháans með pappa­boll­ann. Nið­ur­staða þeirra var að 60 daga fang­elsi og brott­vísun úr landi að afplánun lok­inni væri ekki mann­rétt­inda­brot. Í rök­stuðn­ingi þeirra fyrir dóms­nið­ur­stöð­unni kom fram að í Danmörku væri „örygg­is­netið“ til staðar og það væri ein­göngu í „algjörum und­an­tekn­inga­til­vikum“ að mann­eskja væri í slíkri neyð að betl væri eina leiðin til að kom­ast af. Opin­berir aðilar sjá til þess að allir fái lág­marks­að­stoð. Af þessum sökum telji Hæsti­réttur ekki að leyfi til að betla flokk­ist undir mann­rétt­indi.

Dómur Hæsta­réttar hefur sætt gagn­rýni danskra mann­rétt­inda­sam­taka sem segja nið­ur­stöð­una von­brigði. Lög­fræð­ingur sem dag­blaðið Information ræddi við sagði nauð­syn­legt að skjóta mál­inu til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Í dómi Hæsta­réttar væru alltof mörg vafa­at­riði sem brýnt sé að fá skorið úr um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár