Í nokkur ár hafa Bjarni Klemenz og Eshan Sayed Hoseiny, eða Eshan Ísaksson, spilað saman fótbolta. Þegar Bjarni tók Eshan tali kom í ljós að hann fær bæði sektarkennd og martraðir vegna þess sem gerðist þegar hann varð sendisveinn smyglara í Tyrklandi. Sjálfur hafði hann verið svikinn á flóttanum, eftir að hafa farið fótgangandi frá Íran yfir landamærin til Tyrklands með litla bróður sínum.
Heima Þegar þú átt svona flókna sögu getur verið flókið að skilgreina hvar heima er. Heima er í Íran þar sem foreldrar hans og vinir eru, það er í Afganistan þaðan sem hann kemur og það er líka á Íslandi þar sem Eshan hefur kynnst fólki sem samþykkti hann. Bróðir hans varð hins vegar eftir í Noregi, og það var sárt að þurfa að aðskiljast honum.
Mynd: Úr einkasafni
Hvað varstu gamall þegar þú fórst frá Íran og af hverju?
BræðurnirBræðurnir voru bara börn þegar þeir lögðu á flótta. Þessi mynd var tekin í Íran árið 2011, áður en þeir lögðu af stað fótgangandi yfir landamærin í Tyrklandi, þar sem þeir lentu í klóm smyglara.
Mynd: Úr einkasafni
15 ára. Af því að ég var bara núll og nix fyrir írönskum stjórnvöldum, ég tilheyri útbrunnu kynslóðinni, við erum börn flóttamanna. En það sem gerðist var að vinnufélagi pabba sparkaði honum úr fyrirtækinu sem þeir stofnuðu. Og við höfðum þá enga pappíra og gátum ekki leitað réttar okkar fyrir dómstólum.
Hvert fórstu?
Ég gat ekki ferðast löglega, það var ekkert annað í stöðunni en að fara fótgangandi yfir landamærin til Tyrklands. Það tók …
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Athugasemdir
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Athugasemdir