Ungar baráttukonur vilja nýja stjórnarskrá

Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir og Ósk Elfars­dóttir brenna fyrir nýju stjórn­ar­skránni og hafa lagt metnað sinn í að fræða ungt fólk um hana. Þær telja mik­il­vægt að efla skiln­ing og lýð­ræð­is­lega þátt­töku ungs fólks, sem þær stefna að því að gera í gegnum sam­fé­lags­miðla.

Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir og Ósk Elfarsdóttir
Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir og Ósk Elfars­dóttir Ungar bar­áttu­konur vilja nýja stjórn­ar­skrá og telja lyk­il­inn að því að henni verði komið til skila liggja í fræðslu og þátt­töku ungs fólks. Mynd: Owen Fiene

Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir og Ósk Elfars­dóttir vilja nýja stjórn­ar­skrá og leggja metnað sinn í bar­átt­una fyrir henni. Þær hafa nú stofnað Instagram-síð­una @nyjastjornarskrain, þar sem þær birta fræðslu­efni um stjórn­ar­skrána fyrir ungt fólk. Þær benda einnig á und­ir­skrifta­lista henni til stuðn­ings. 

Gunn­hildur hefur einnig beint sjónum sínum að miðl­inum Tiktok, þar sem hún birtir fræðslu­mynd­bönd í þeim til­gangi að veita ungu fólki skiln­ing á nýju stjórn­ar­skránni og þeim ferlum sem umlykja hana.

Und­ir­bún­ingur nýju stjórn­ar­skrár­innar hófst árið 2010 með kosn­ingum til stjórn­laga­þings og árið 2012 tók helm­ingur þjóð­ar­innar þátt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu þar sem tveir þriðju taldi að leggja ætti til­lögur stjórn­laga­ráðs til grund­vallar nýrri stjórn­ar­skrá. Alþingi kaus hins vegar að taka ekki mark á þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni, en það er í fyrsta skipti sem það ger­ist. Gunn­hildur og Ósk gagn­rýna þessa afstöðu Alþingis sem ólýð­ræð­is­lega, þar sem ein af helstu und­ir­stöðu­reglum íslenskrar stjórn­skip­unar sé að þjóðin er stjórn­ar­skrár­gjaf­inn, ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnarskrármálið

FréttirStjórnarskrármálið

„Ég er oft á milli steins og sleggju þegar kemur að við­kvæmum málum“

Þor­steinn Pálm­ars­son, eig­andi Allt-af ehf, fyr­ir­tæk­is­ins sem fjar­lægði vegg­lista­verkið „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“ seg­ist oft upp­lifa sig á milli steins og sleggju í deilu­málum milli þeirra sem mála á veggi og þeirra sem biðja um að verkin verði fjar­lægð. Hann vann við að hreinsa til eftir mót­mæli í Bús­á­halda­bylt­ing­unni.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár