Fyrirtæki verða beðin um að rökstyðja notkun hlutabótaleiðarinnar

Þau fyr­ir­tæki sem hafa nýtt sér hluta­bóta­leið stjórn­valda verða beðin um að sýna fram á nauð­syn þess á næst­unni. Fjár­mála­ráð­herra segir „alveg óskap­lega slæmt“ að fyr­ir­tæki sem virð­ist ekki hafa haft þörf á að nýta úrræðið hafi gert það.

Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir.
Bjarni Bene­dikts­son og Katrín Jak­obs­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra eru á einu máli um að stöndug fyr­ir­tæki sem hafi tök á því að greiða út arð til hlut­hafa sinna hefðu ekki átt að nýta sér hluta­bóta­leið­ina og vilja að fyr­ir­tæki rök­styðji ákvarð­anir sínar. Þetta kom fram í máli þeirra tveggja í hádeg­is­fréttum RÚV.

Þegar hluta­bóta­leiðin var kynnt af hálfu stjórn­valda voru ekki settar neinar kvaðir um að fyr­ir­tæki sem hana nýttu mættu ekki greiða sér arð eða kaupa eigin hluta­bréf, en fregnir vik­unnar af arð­greiðslum og end­ur­kaupum hafa vakið úlfúð í sam­fé­lag­inu og einnig hjá leið­togum rík­is­stjórn­ar­innar.[links]

„Við virð­umst hafa til­vik þar sem fyr­ir­tæki hafa ekki haft neina raun­veru­lega þörf, þar sem að þau hafa til dæmis verið að dreifa pen­ingum til hlut­hafa sinna, til þess að nýta þetta úrræði,“ sagði fjár­mála­ráð­herra við RÚV eftir rík­is­stjórn­ar­fund í morgun og bætti við að þetta þætti honum „alveg óskap­lega slæmt“ og að þetta „ræki rýt­ing í sam­stöð­una“ sem mynd­ast hefði í sam­fé­lag­inu eftir að heims­far­ald­ur­inn skall á.

Haft var eftir for­sæt­is­ráð­herra að öllum fyr­ir­tækjum sem hafa nýtt sér hluta­bóta­leið­ina yrði sent bréf þar sem óskað yrði eftir rök­stuðn­ingi fyrir því að skerða starfs­hlut­fall starfs­manna. Fjár­mála­ráð­herra sagði einnig, aðspurður, að ef í ljós kæmi að fyr­ir­tæki hefðu nýtt sér hluta­bóta­leið­ina án full­nægj­andi skýr­inga væri ekki úti­lokað að farið yrði fram á að fyr­ir­tækin end­ur­greiddu rík­inu.

Eins og Kjarninn fjall­aði um þann 22. apríl hefur Vinnu­mála­stofnun ekki upp­lýs­ingar um hvort öll þau fyr­ir­tæki sem hafa verið starfs­menn í skertu starfs­hlut­falli und­an­farnar hafi upp­lifað sam­drátt í sínum rekstri eða tak­mark­anir vegna aðstæðna í sam­fé­lag­inu.

Að því hefur ekki verið spurt, þrátt fyrir heim­ild sé í lögum fyrir því að óska eftir rök­stuðn­ingi frá vinnu­veit­endum sem lækka starfs­hlut­fall starfs­manna sinna um það af hverju fyr­ir­tækið hafi gripið til þess ráðs.

„Frá gild­is­töku lag­anna hefur álag vegna mjög margra umsókna í þetta úrræði verið svo mikið að ekki hefur gef­ist tími til að stunda mikið eft­ir­lit,“ sagði Unnur Sverr­is­dóttir for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar í skrif­legu svari sínu við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Haft var eftir Unni, í hádeg­is­fréttum RÚV í dag, að þessu eft­ir­liti yrði sinnt eftir á, rétt eins og for­sæt­is­ráð­herra boðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár