156 smitaðir og um 1.500 verða í sóttkví í lok dags

Hópar ótengdir stjórn­völdum eru að und­ir­búa að stíga inn og tryggja við­kvæmum hópum mat­ar­gjafir. Útvarps­stjóri segir að teymið sem stýrir aðgerðum hér­lendis í bar­átt­unni við COVID-19 sé á heims­mæli­kvarða.

Í hádeg­inu í dag var búið að taka 1.526 sýni til að leita eftir veirunni sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. Af þeim höfðu 156 verið greind jákvæð. Þar af var um 31 ann­ars stigs smit og fimm þriðja stigs­smit. Fjögur smit hefur ekki verið hægt að rekja og 14 eru enn í rakn­ingu.

Alls eru um 1.400 komnir í sótt­kví og búist er við að þeir verði orðnir rúm­lega 1.500 áður en dag­ur­inn í dag er allur. Þetta kom fram í máli Víðis Reyn­is­sonar, yfir­lög­reglu­þjóns hjá rík­is­lög­reglu­stjóra á dag­legum upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og sótt­varn­ar­læknir sem fram fór í dag.

Víðir sagði að nú færa fram upp­færsla á hættu­mati og að verið væri að horfa sér­stak­lega á Spán, Frakk­land og Þýska­land í þeim efnum.

[adspot]Hann var spurður hvort að stjórn­völd ætl­uðu að grípa til aðgerða í ljósi þess að Mæðra­styrks­nefnd og Fjöl­skyldu­hjálp séu hætt að veita við­kvæmum hópum mat­ar­gjafir. Víðir sagði að hópar hefðu mynd­ast sem hefðu sett sig í sam­band við stjórn­völd með það að mark­miði að leysa stöðu þeirra sem treysta á slíkar mat­ar­gjafir án aðkomu stjórn­valda og að það verði kynnt frekar síðar í dag.

Alma Möller land­læknir þakk­aði heil­brigð­is­fólki sér­stak­lega fyrir þeirra fram­lag á þessum erf­iðu tímum. Hún sagði að nú væri alls um 300 manns skráðir í hina svoköll­uðu bak­varð­ar­sveit heil­brigð­is­starfs­manna og helm­ingur þeirra væri skráður til að sinna sjúk­lingum sem greinst hafi með COVID-19. Þar af eru 51 læknir.

Þórunn Svein­björns­dóttir, for­maður Lands­sam­bands eldri borg­ara var einnig á fund­inum og ræddi áhrif far­ald­urs­ins á þann hóp, sem er einna við­kvæm­astur fyrir vegna hans. Á meðal þess sem hún hvatti til var að fjöl­skyldur leggi til hliðar allt sem áður hafi mögu­lega staðið á milli ein­stak­linga innan þeirra og standi saman við þessar aðstæður sem nú eru uppi.

Stefán Eiriks­son, útvarps­stjóri RÚV og fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, var einnig á fund­inum og sagð­ist þar hafa tölu­verða reynslu af neyð­ar­stjórnun úr fyrri störfum. Stefán sagði að það fólk sem héldi um skipu­lagn­ingu aðgerða: land­læknir, sótt­varn­ar­læknir og almanna­varnir rík­is­lög­reglu­stjóra, væri fólk á heims­mæli­kvarða.

Hann fór svo yfir þær aðgerðir sem RÚV hefur ráð­ist í til að mæta þeirra stöðu sem nú er uppi í sam­fé­lag­inu, meðal ann­ars stór­auknu fram­boði á dag­skrá og vinnsla frétta­efnis um COVID-19. Hann boð­aði líka sam­tal við fram­leið­endur og rétt­hafa um að gera gam­alt efni frá RÚV aðgengi­legt á sér­stakri gull­sjón­varps­rás.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár