Gunnar Smári leiðir í Reykjavík norður og Sólveig Anna á lista

Sós­í­alista­flokkur Íslands hefur nú birt fjóra af sex fram­boðs­listum sínum. Gunnar Smári Egilsson segir kom­andi kosn­ingar mögu­lega þær mik­il­væg­ustu í lýð­veld­is­sög­unni.

Sjö efstu á lista sósíalista í Reykjavíkurkjördæmi norður
Sjö efstu á lista sós­í­alista í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður Mynd: Sósíalistaflokkur Íslands

Gunnar Smári Egilsson leiðir lista Sós­í­alista­flokks Íslands í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður fyrir kom­andi kosn­ingar en list­inn hefur nú verið opin­ber­aður. Í öðru sæti er Laufey Líndal Ólafs­dóttir, stjórn­mála­fræð­ingur ,og í þriðja sæti er Atli Gíslason, tölv­un­ar­fræð­ingur. Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar er í fjórða sæti. [links]

Í til­kynn­ingu frá flokknum segir Gunnar Smári að kom­andi kosn­ingar séu kannski þær mik­il­væg­ustu á lýð­veld­is­tím­anum. „Það er raun­veru­leg hætta á að næstu fjögur árin muni stæk hægri­st­jórn þröngva upp á þjóð­ina einka­væð­ingu og nið­ur­broti grunn­kerfa og inn­viða sam­fé­lags­ins, ráða­gerð sem auð­valdið kallar við­spyrnu. Samtök atvinnu­lífs­ins, Við­skipta­ráð, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og önnur bar­áttu­tæki hinna ríku hafa lagt lín­urnar og boðað stór­kost­legar skatta­lækk­anir til fjár­magns- og fyr­ir­tækja­eig­enda, enn frek­ari fjár­austur úr almanna­sjóðum til hinna ríku, skerð­ingu á valdi og úrræðum verka­lýðs­fé­laga og að lífs­af­komu almenn­ings verði fórnað fyrir auk­inn hagnað hinna ríku,“ segir Gunnar Smári og bendir á að Sós­í­alista­flokk­ur­inn sé stofn­aður til þess „að veita auð­vald­inu and­spyrnu.“

Í til­kynn­ing­unni er einnig haft eftir Gunnari Smára að listi flokks­ins í Reykja­vík sýni það að flokk­ur­inn sé breiður flokkur sem end­ur­spegli vel almenn­ing. Öllum list­unum er stillt um af slembivöldum hópi meðal félaga flokks­ins.

List Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavík norður

  1. Gunnar Smári Egilsson, atvinnu­laus blaða­maður
  2. Laufey Líndal Ólafs­dóttir, náms­maður í hléi
  3. Atli Gíslason, tölv­un­ar­fræð­ingur
  4. Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar
  5. Oddný Eir Ævars­dóttir, rit­höf­undur
  6. Bogi Reyn­is­son, tækni­maður
  7. Krist­björg Eva Andersen Ramos, náms­maður
  8. Ævar Þór Magn­ús­son, verk­stjóri
  9. Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir, öryrki
  10. Gutt­ormur Þor­steins­son, bóka­vörður og for­maður Samtaka hern­að­ar­and­stæð­inga
  11. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi
  12. Atli Ant­ons­son, dokt­or­snemi
  13. Ævar Uggason, bók­sali
  14. Jóna Guðbjörg Torfa­dóttir, kenn­ari
  15. Bjarki Steinn Bragason, skóla­liði
  16. Nancy Coumba Koné, dans­kenn­ari
  17. Jökull Sólberg Auð­uns­son, ráð­gjafi
  18. Birgitta Jóns­dóttir, þing­skáld
  19. Sigurður Gunn­ars­son, ljós­mynd­ari
  20. Þor­varður Bergmann Kjart­ans­son, tölv­un­ar­fræð­ingur
  21. Ísabella Lena Borg­ars­dóttir, náms­maður
  22. María Krist­jáns­dóttir, leik­stjóri
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár