Flugvallarsprengingarnar voru við innritunarborð American Airlines

Farþegar og flugvallarstarfsmenn voru fluttir burt í morgun eftir tvær sprengingar við innritunarborð American Airlines á Zaventem flugvellinum í Brussel, höfuðborg Belgíu, í morgun.
Farþegar og flug­vall­ar­starfs­menn voru fluttir burt í morgun eftir tvær spreng­ingar við inn­rit­un­ar­borð American Airlines á Zaventem flug­vell­inum í Brussel, höf­uð­borg Belgíu, í morgun. Mynd: EPA

Guy Sablon, tals­maður neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerf­is­ins í Brussel, höf­uð­borg Belgíu, segir að minnst 15 séu látnir eftir hryðju­verka­árás í Maelbeek neð­an­jarð­ar­lest­ar­stöð­inni í Evr­ópu­hverf­inu í morgun. AP frétta­stofan greinir frá. Áður var talið að tíu hefðu lát­ist í þeirri spreng­ingu. Þrettán lét­ust í tveimur spreng­ingum á Zaventem flug­vell­inum klukku­stund áður, á háanna­tíma. Alls eru þá 28 látnir í árás­unum, sam­kvæmt erlendum fjöl­miðlum, en afar mis­vísandi fregnir eru þó af tölu lát­inna. Margir tugir eru særðir. Samkvæmt Sky News voru spreng­ing­arnar á flug­vell­inum við inn­rit­un­ar­borð American Airlines.

Fjöldi Íslend­inga í Brussel hefur merkt sig örugga á sam­fé­lags­miðlum í morgun. Utan­rík­is­ráðu­neytið beinir því til fólks í Brussel að nota frekar sam­fé­lags­miðla og SMS til að láta vita af sér þar sem gríð­ar­legt álag er á sím­kerf­inu.

Bæði flug­vell­inum og neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerf­inu öllu hefur verið lokað og borgin er nán­ast lokuð, að sögn Hall­gríms Odds­sonar, frétta­rit­ara Kjarnans í Brussel. Höf­uð­stöðvar NATO eru einnig lok­aðar, sem og nær allar aðrar opin­berar bygg­ingar. 

Búið er að hækka við­bún­að­ar­stig í Brussel vegna árásanna. Öll söfn verða lokuð í dag og fólk er beðið um að halda sig heima við eða innan dyra ef það er í vinnu.

Enginn hefur lýst árásinni á hendur sér enn sem komið er. Fyrir fjórum dögum hand­tók lög­reglan í Belgíu Salah Abdeslam, mann­inn sem skipu­lagði hryðju­verka­árás­irnar í París í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár