Línan milli fjölmiðlunar og fjarskipta er horfin, blóðugur bardagi um neytendur framundan

Tilkynnt var um sam­ein­ingu Símans og Skjásins, sem rekur meðal ann­ars Skjáeinn, Skjábíó, Skjákrakka, Skjáheim, Skjá­sport og útvarps­stöð­ina K100,5, í morgun. Í raun hefði þetta skref verið stigið fyrir mörgum árum síðan ef eft­ir­lits­yf­ir­völd hefðu heim­ilað það, enda Skjárinn verið syst­ur­fé­lag Símans í ára­tug.

Þess í stað hefur Skjárinn verið að kaupa þjón­ustu af Símanum árum saman sem gerði það að verkum að skuld upp á meira en millj­arð króna hafði mynd­ast á efna­hags­reikn­ingi Skjásins. Þeirri skuld var að mestu breytt í hlutafé í lok árs 2013. Síminn hefur á móti, vegna skil­yrða sem sett voru af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu árið 2005, ekki mátt nýta efni Skjásins við sölu á vörum sínum innan fjar­skipta­hluta félags­ins.

Nú er þetta allt breytt. Og ljóst að íslenskir neyt­endur munu finna vel fyrir þeirri eðl­is­breyt­ingu sem er að eiga sér stað á fjöl­miðla- og fjar­skipta­mark­aði á næstu miss­erum.

Alþjóðleg breyting sem Ísland tekur fullan þátt í


Það er alþjóð­leg þróun að línan milli fjar­skipta og fjöl­miðl­unar og afþrey­ingar hefur verið að hverfa. Í nútíma­sam­fé­lagi þar sem þorri íbúa er með tölvu í formi snjall­síma í vas­anum, fær þorra þeirra upp­lýs­inga sem hann leitar eftir staf­rænt í gegnum snjall­tæki eða tölvur og vill ráða sinni eigin afþrey­ing­ar­dag­skrá í stað þess að vera bund­inn dag­skrár­upp­still­ingu sjón­varps­stöðva þá er í það í raun rök­rétt skref að sam­þætta píp­urnar sem miðla efn­inu við efn­is­fram­leiðsl­una sjálfa.

Á Íslandi hófst þessi þróun á síð­asta ári þegar stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, 365 miðlar, sam­ein­uð­ust fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Tali. 365 hafði raunar áður hafið að bjóða upp á fjar­skipta­þjón­ustu undir eigin nafni og bjóða í ýmis leyfi á því sviði, en skrefið var full­stígið þegar Tal var rennt inn í starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Síðan að þetta gerð­ist hefur 365 getað „pakkað“ fjar­skipta- og sjón­varps­þjón­ustu vörum saman í böndul og selt not­endum.

Vodafone til­kynnti síðan í byrjun viku að félagið hefði komið á fót áskrift­ar­veitu með sjón­varps­efni sem verður aðgengi­legt í Vodafone Sjón­varpi, sem mun heita Vodafone Play.

[caption id="attachment_25267" align="alignnone" width="606"] 365 miðlar og Tal sam­eiðn­ustu á síð­asta ári.[/caption]

Baráttan hefst fyrir alvöru


Með til­komu Símans að fullum krafti inn á þennan markað hefst bar­áttan hins vegar fyrir alvöru. Síminn er enda langstærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins og eftir að búið er að vinda ofan af mik­illi skuld­setn­ingu félags­ins og semja um sam­keppn­is­mál er það mjög vel í stakk búið til að keppa af miklum krafti á þessum mark­aði. Eigið fé Símans í lok síð­asta árs var um 30 millj­arðar króna. Til sam­an­burðar er eigið fé sam­ein­aðs félags 365 miðla og Tals 3,8 millj­arðar króna.

365 miðlar og Tal sameiðnustu á síðasta ári.
365 miðlar og Tal sam­eiðn­ustu á síð­asta ári.

Þrátt fyrir að Síminn hafi átt Skjáinn í ára­tug þá hefur hann ekki mátt „pakka“ vörum saman á sama hátt vegna skil­yrða sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið setti á sínum tíma. En heim­ur­inn hefur breyst mikið frá árinu 2005 og mögu­leikar fólks á notkun fjöl­miðla lík­lega aldrei gengið í gegnum jafn mikla kúvend­ingu.

Þá voru enn tvö ár í að fyrsta iPhone-inn kæmi á markað. Þá var Netflix enn þjón­usta sem sendi DVD-diska heim til fólks. Þá voru ekki til pöddur eða snjallúr. Ekki einu sinni VOD-leigur í sjón­varp­inu þínu. Ef þú vildir horfa á sjón­varps­þátt þá gastu annað hvort nið­ur­halið honum ólög­lega eða beðið eftir því að hann væri á dag­skrá sjón­varps­stöðvar.

[caption id="attachment_12433" align="align­right" width="160"] Orri Hauksson, for­stjóri Símans.[/caption]

Orri Hauksson, forstjóri Símans.
Orri Hauksson, for­stjóri Símans.

Í ljósi þeirrar þró­unar blasti við að þau skil­yrði sem sett voru fyrir eign Símans á Skjánum áttu ekki lengur við, sér­stak­lega eftir að sam­keppn­is­að­ilar á inn­an­lands­mark­aði fóru að sam­þætta fjöl­miðlun og fjar­skipti. Í gær var því und­ir­rituð sátt þar sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið slak­aði veru­lega á skil­yrð­unum sem sett voru fyrir ára­tug.

Orri Hauksson, for­stjóri Símans, segir að þetta hafi verið tíma­bært skref. „Við áttum auð­veld­ara með að vinna með 365 miðlum sam­kvæmt skil­yrð­unum en okkar eigin dótt­ur­fé­lagi.“ Nú geti Síminn hins vegar „pakkað“ mörgum vörum sínum saman í vöndul og selt til við­skipta­vina sinna. Hann nefnir sem dæmi að nú sé til að mynda hægt að bjóða þeim sem sé með snjall­sjón­varp hjá Símanum (Sjónvarp Símans) við­bætur á borð við nokkrar fríar kvik­myndir sem Skjárinn á rétt­inn af. „Nú getum við farið að taka alls­konar efn­is­þætti og pakkað þeim saman við aðra þjón­ustu hjá okkur.“

Rekstur inn­lendrar línu­legrar dag­skrár­gerðar, sem eru sjón­varps­stöðv­arnar Skjáreinn og Skjár­sport, verður hins vegar að vera áfram efna­hags­lega og bók­halds­lega aðskil­inn frá öðrum rekstri Símans. Því verða áfram skýr tak­mörk á því hversu mikið má „pakka“ til að mynda áskrift­ar­sölu á þeim stöðvum saman við fjar­skipta­þjón­ustu Símans.

Línuleg dagskrá á undanhaldi


Það er hins vegar ljóst að Síminn er ekki að horfa á línu­lega sjón­varps­dag­skrá sem aðal­at­riði í þróun sinni á afþrey­ingar- og fjöl­miðla­þjón­ustu fyrir við­skipta­vini sína. Orri bendir á að áhorf á línu­legt sjón­varp hafi fallið mjög mikið und­an­farið. „Heim­ur­inn er að fara í svo­lítið aðra átt en að vera í línu­lega form­inu. Og þessi sátt hjálpar okkur mjög mikið við að geta þróað okkar módel áfram í þeim heimi.“

En munu áskrif­endur Skjásins finna fyrir þess­ari breyt­ingu á næst­unni? Líklega ekki. Þótt rekstur sjón­varps- og útvarps­stöðva félags­ins fær­ist undir hinar ýmsu deildir Símans munu engar breyt­ingar á dag­skránni eða fram­setn­ingu efnis í þess­ari umferð. Í aðdrag­anda kom­andi vetr­ar­dag­skrár mun það breyt­ast.

Orri segir að í því felist ekki að fjölga sjón­varps­stöðvum, kaupa eitt­hvað stór­kost­lega mikið magn af nýju efni, auka útvarps­rekstur eða stofna dag­blað. „Við munum miklu frekar sam­þætta það efni sem er hjá Skjánum með öðrum vörum sem eru í fjar­skipta­hlut­anum núna.“

Skoða mjög alvarlega að bjóða í enska boltann


Það vakti athygli í nóv­em­ber 2014 þegar Skjárinn tryggði sér sýn­ing­ar­rétt­inn á Evr­ópu­móti karla í knatt­spyrnu næstu sumar. Þjónusta við íþrótta­á­huga­menn á Íslandi hefur verið mjög góð und­an­farin ár, til dæmis innan véband­anda 365 miðla þar sem fjöl­margar spor­trásir eru reknar og sýnt frá fjöl­breyttu og afar vin­sælu íþrótta­efni og því miklar kröfur gerðar til þess að Skjárinn geti sinnt fram­setn­ingu efn­is­ins svo sómi sé af.

Að sögn Orra hefur Síminn verið að und­ir­búa þennan sjón­varps­við­burð með Skjánum und­an­farna mán­uði og hann full­yrðir að þjón­ustan sem áhorf­endur fái verði sú mesta sem boðið hefur verið upp á. Búið sé að ráð­ast í mikla vöru­þróun til að nýta þá mögu­leika sem tæknin býður upp á til að auka upp­lifun. „Það að sam­eina félögin gerir það mun ein­fald­ara og að auknu keppi­kefli fyrir okkur.“

Hann segir það klárt mál að Síminn muni skoða að kaupa sýn­inga­rétt­inn að öðrum íþrótta­við­burðum. Íþróttir séu mjög vin­sælt sjón­varps­efni og þær verði áfram stór hluti af sjón­varps­á­ætlun Símans. Aðspurður hvort til standi að bjóða í sýn­ing­ar­rétt­inn að enska bolt­anum, en samn­ingur 365 miðla um að sýna hann rennur út eftir næsta tíma­bil, segir Orri það ekki hafa verið ákveðið. „En við erum klár­lega að skoða það mjög alvar­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár