Vodafone Play - ný áskriftarveita fyrir sjónvarp

Vodafone hefur komið á fót áskrift­ar­veitu með sjón­varps­efni sem aðgengi­legt verður í Vodafone Sjón­varpi, sem ber nafnið Vodafone PLAY. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Vodafone.

„Með Vodafone PLAY fá áskrif­endur ótak­mark­aðan aðgang að fjölda íslenskra og erlendra kvik­mynda, tón­leikum, barna­efni og upp­lesnum ævin­týrum – hvenær sem þeim hentar. Um er að ræða fyrstu íslensku alhliða áskrift­ar­veit­una fyrir alla fjöl­skyld­una, í anda hinnar vin­sælu veitu Netflix,“ segir í til­kynn­ingu frá Vodafone.

Frá og með fimmtu­deg­inum 16. apríl geta allir við­skipta­vinir með gagn­virkt sjón­varp Vodafone prófað Vodafone PLAY án skuld­bind­inga og við­bótar end­ur­gjalds, til og með 31. maí næst­kom­andi. Vodafone PLAY mun birt­ast sjálf­krafa í aðal­val­mynd sjón­varps­þjón­ust­unnar. Við­skipta­vinir sem skrá sig í þjón­ust­una á þessu tíma­bili fá hana án við­bótar kostn­aðar til og með 30. júní en eftir það kostar þjón­ustan 2.490 krónur á mán­uði. Engu skiptir hversu oft er horft á efni, öll notkun áskrift­ar­veit­unnar er inni­falin í mán­að­ar­gjald­inu, segir í til­kynn­ing­unni.

Stefán Sig­urðs­son for­stjóri Vodafone segir þetta spenn­andi nýj­ung hjá félag­inu. „Um allan heim er að eiga sér stað spenn­andi sam­spil afþrey­ing­ar­efnis og fjar­skipta. Með Vodafone PLAY færum við við­skipta­vinum okkar fyrstu áskrift­ar­veit­una fyrir alla fjöl­skyld­una sem er sér­hönnuð fyrir íslenskan markað. Mikill vöxtur Netflix á alþjóða­vísu, sýnir glöggt að við­skipta­vinir kunna vel að meta þessa teg­und sjón­varps­þjón­ustu. Vodafone PLAY er þannig mik­il­væg við­bót við annað fram­boð sjón­varps­þjón­ustu á Íslandi og und­ir­strikar metnað okkar til að vera í far­ar­broddi á því sviði.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár