Síminn og Skjárinn sameinast, framkvæmdastjóri Skjásins hættir

Skjárinn, sem rekur meðal ann­ars Skjáeinn, Skjábíó, Skjákrakka, Skjáheim, Skjá­sport og Útvarps­stöð­ina K100,5, hefur verið sam­ein­aður Símanum. Þetta ger­ist í kjöl­far sáttar við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um að aflétta kvöðum á sam­starfi félag­anna frá árinu 2005. Með sátt­inni er ákveðið að rekstur inn­lendrar línu­legrar sjón­varps­dag­skrár skuli vera efna­hags­lega og bók­halds­lega aðskil­inn frá öðrum rekstri Símans. Eft­ir­lits­nefnd um jafnan aðgang fjar­skipta­fyr­ir­tækja, EJAF, er ætlað að hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd sátt­ar­innar.

Síminn er því far­inn að bjóða upp á sjón­varps­efni undir eigin hatti. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands í dag. Skjárinn var áður dótt­ur­fé­lag Símans.

Þar segir að Síminn muni eftir sam­ein­ing­una bjóða upp á fjór­þætta þjón­ustu: tal­síma, far­síma, net­þjón­ustu og sjón­varps­efni. Þannig þjón­ust­fram­boð sé í sam­ræmi við þróun sem eigi sér stað erlendis "þar sem afþrey­ing og sjón­varps­efni tengj­ast fjar­skipta­þjón­ustu sífellt sterk­ari böndum".

Samhliða um starf­semi Skjásins flytja að mestu í hús­næði Símans í Ármúla. Friðrik Frið­riks­son, fram­kvæmda­stjóri Skjásins, mun vinna að sam­ein­ing­unni en láta síðan af störfum. Engin sér­stök yfir­stjórn verður yfir sjón­varps­starf­semi Símans.

Orri Hauksson, for­stjóri Símans, segir þetta mjög spenn­andi breyt­ingu. "Breytt skipu­lag gerir við­skipta­vinum okkar kleift að nálg­ast alla þjón­ustu á einum stað. Sam­ein­ingin kemur í kjöl­far mik­illa breyt­inga á fjöl­miðla- og fjar­skipta­mark­aði á und­an­förnum árum. Við höfum viljað breyta þeim kvöðum sem voru settar á sínum tíma og end­ur­spegl­uðu stöðu sem er ekki til staðar lengur á mark­aðnum. Það er ljóst að þessu skrefi mun fylgja tölu­verð rekstr­ar­hag­ræð­ing þar sem við rekum í ein­hverjum til­vikum svip­aðar ein­ingar á tveimur stöðum. Í kjöl­far sam­ein­ingar mun ekki verða sér­stök yfir­stjórn yfir þeim þjón­ustu­þáttum sem fær­ast til Símans. Ég vil þakka Friðrik kær­lega fyrir vel unnin störf á und­an­förnum árum og óska honum vel­farn­aðar."

Friðrik segir þetta skyn­sam­legt skref. "Fram að þessu var sam­ein­ing ekki mögu­leg og okkur er flestum ljóst að núver­andi fyr­ir­komu­lag aftr­aði fram­þróun beggja fyr­ir­tækja Símans og Skjásins við að bæta þjón­ustu­fram­boð sitt. Skjárinn hefur aldrei staðið betur en einmitt nú og ég er stoltur af þeim árangri sem náðst hefur með félagið á und­an­förnum árum og er viss um að þessi eðli­lega breyt­ing sé til far­sældar bæði fyrir við­skipta­vini Skjásins og starfs­fólk félags­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár