Reykjanesbær nær að semja við kröfuhafa

Reykja­nes­bær hefur náð sam­komu­lagi við kröfu­hafa Eign­ar­halds­fé­lags­ins Fast­eignar ehf. Frestur til þess rennur út í dag. Bæj­ar­stjóri segir málum miða í rétta átt.

Reykja­nes­bær hefur náð sam­komu­lagi við einn stærsta kröfu­hafa sveit­ar­fé­lags­ins, Eign­ar­halds­fé­lagið Fasteign ehf. Fram kemur í til­kynn­ingu frá Reykja­nesbæ að við­ræður við félagið hafi skilað árangri og í kjöl­farið muni vinna við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu Reykja­nes­bæjar og stofn­ana þess halda áfram.

Rætt verður við aðra kröfu­hafa á grund­velli við­ræðna við kröfu­hafa Eign­ar­halds­fé­lags­ins Fast­eignar og kapp verður lagt á að ljúka þeim eins fljótt og auðið er.

Fram kom í til­kynn­ingu frá Reykja­nesbæ í gær að veittur hafi verið frestur út dag­inn í dag, 5. febr­úar, til stærsta kröfu­hafa Reykja­nes­bæjar, kröfu­höfum Eign­ar­halds­fé­lags­ins Fast­eignar ehf., Glitni HoldCo ehf. f.h. Rík­is­sjóðs Íslands, Lands­bank­anum hf. og Íslands­banka hf. til þess að bregð­ast við til­lögu Reykja­nes­bæjar um afmörkun á skulda­vanda sveit­ar­fé­lags­ins. Viðræður við kröfu­hafa Eign­ar­halds­fé­lags­ins Fast­eignar ehf. hafa staðið yfir frá því í mars­mán­uði 2015 þegar til­kynnt var að Reykja­nes­bær hefði hafið við­ræður um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu bæj­ar­ins.

Haft er eftir Kjartani Má Kjart­ans­syni bæj­ar­stjóra í til­kynn­ing­unni að við­ræðum hafi miðað í rétta átt og ekki verði leitað eftir því að svo komnu máli að Reykja­nesbæ verði skipuð fjár­hags­stjórn.

Reykja­nes­bær, er eitt skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins. Skuldir þess voru tæp­lega 41 millj­arður króna í lok árs 2014. Skuld­irnar eru rúm­lega 250 pró­sent af reglu­legum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins en sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyfi­legt skulda­hlut­fall að hámarki 150 pró­sent. Skulda­staða Reykja­nes­bæjar er því bein­línis í and­stöðu við lög. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár