Ferðamannaparadís sem varð að fangelsi fyrir flóttamenn

Benjamín Julian fylgd­ist með því hvernig sam­fé­lagið á grísku strand­paradís­inni Kíos breytt­ist þegar ákveðið var að fang­elsa flótta­menn sem þangað komu. Ferða­menn­irnir hurfu, efna­hag­ur­inn hrundi og heima­menn sner­ust gegn flótta­mönnum sem sátu fastir í ömur­legum aðstæðum.

Í fyrra var lít­illi eyju sem reiðir sig á túrisma breytt í fang­elsi fyrir flótta­menn. Koma ferða­manna hrundi og sam­fé­lagið, svelt af við­skiptum, sner­ist gegn flótta­fólk­inu. Hvorki sveit­ar­stjórn né rík­is­stjórn fengu leyfi til að færa þá annað. Í algeru mátt­leysi heima­manna hefur fas­ismi nú frjóan jarð­veg.

Ég var við­staddur meg­in­stef þess­arar sögu, fylgd­ist með fang­els­un­inni 20. mars, fyrstu þjóð­ern­issinn­uðu hóp­fund­unum og árásum þeirra á flótta­fólk, og heim­sótti búð­irnar aftur núna um jólin. Sagan sem fylgir er ekki um afskræmdar mann­eskjur, heldur vilj­andi afskræm­ingu sam­fé­lags. Hún er lexía um hvað fólk getur gert þegar það er svipt virð­ing­unni og allri stjórn á aðstæðum sínum. Þetta er, í hnot­skurn, saga stjórn­mál­anna í dag, og hún ger­ist á grísku strand­paradís­inni Kíos.

Fangelsið

Það tók langan tíma að útskýra fyrir fólk­inu hinum megin við gadda­vír­inn hvers vegna það var lokað inni. Lög­reglan var sjálf ekki alveg viss, tal­aði ekki mikla ensku …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár