Kvennafótboltinn á Englandi bannaður vegna of mikilla vinsælda

Á fyrstu kvenna­leikjum í fót­bolta rudd­ust áhorf­endur inn á völl­inn með klám og dóna­skap. En síðar urðu vin­sældir kvenna­bolt­ans svo miklar að karl­arnir urðu afbrýði­samir.

Liðskona Dick, Kerr Ladies glímir við liðsmann í öðru kvennaliði.
Liðskona Dick, Kerr Ladies glímir við liðs­mann í öðru kvenna­liði. Félagið hélt velli til 1965 þótt því væri bannað að keppa á lög­form­legum fót­bolta­völlum og stóð iðu­lega fyrir sýn­ing­ar­leikjum í fjár­öfl­un­ar­skyni.

Nú þegar áhugi á kvenna­fót­bolta fær­ist sífellt í auk­ana á Englandi, vegna frá­bærs árang­urs lands­liðs­ins á alþjóða­mótum und­an­farin miss­eri, þá er gaman að minn­ast þess að þvert ofan í það sem margir halda, þá er þetta alls ekki í fyrsta sinn sem kvenna­bolti hefur náð vin­sældum í þessu fæð­ing­ar­landi fót­bolt­ans.

Þegar árið 1881 fóru fram átta eins konar lands­leikir í kvenna­fót­bolta milli Englands og Skotlands. Í fyrsta leiknum hafði England frum­kvæðið í fyrri hálf­leik en tókst ekki að skora. Snemma í seinni hálf­leik skor­aði Lily St. Clare fyrir Skota og þær skosku bættu síðan við tveim mörkum sem þær Louise Cole og Maud Rimeford skor­uðu. Skotland vann því 3-0.

Þetta voru þó varla alvöru­leikir heldur eins konar sýn­ingar- eða skemmti­at­riði sem sett voru upp milli far­and­leik­flokka sem þá var algengt að færu um sveitir og bæi Bret­lands.

Nettie Honey­ball í fullum fót­bolta­skrúða 1895— …
Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár