Haraldur Ingi leiðir Sósíalistaflokkinn í Norðausturkjördæmi

Haraldur Ingi Har­alds­son verk­efna­stjóri og Margrét Pét­urs­dóttir verka­kona skipa tvö efstu sætin á lista Sós­í­alista­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi fyrir kom­andi kosn­ingar.

Listi Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi. Haraldur Ingi oddviti er fyrir miðju og Margrét, sem skipar annað sætið, er hægra megin við hann.
Listi Sós­í­alista­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Haraldur Ingi odd­viti er fyrir miðju og Margrét, sem skipar annað sætið, er hægra megin við hann. Mynd: Aðsend

Haraldur Ingi Har­alds­son, verk­efna­stjóri hjá Akur­eyr­arbæ, skipar efsta sæti á lista Sós­í­alista­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi fyrir kom­andi kosn­ingar og Margrét Pét­urs­dóttir verka­kona er í öðru sæti list­ans, sam­kvæmt til­kynn­ingu hjá flokknum sem á nú ein­ungis eftir að kynna lista sinn í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir kom­andi kosn­ingar.

Í til­kynn­ingu Sós­í­alista­flokks­ins segir að odd­vit­inn Haraldur Ingi hafi víð­tæka reynslu af atvinnu­líf­inu og hafi starfað sem kenn­ari, leið­sögu­maður, við kræk­linga­rækt, við safna­störf og fleira. Hann hefur tekið virkan þátt í félags­starfi flokks­ins og situr í fram­kvæmda­stjórn hans.

„Haraldur Ingi hefur lagt stund á listir og sífellt sjálfs­nám um vinstri sinnuð stjórn­mál, sagn­fræði og hag­fræði. Nið­ur­staða þess náms fyrir honum er að félags­legt og efna­hags­legt órétt­læti fer hrað­vax­andi og ástæða þess er sam­fé­lags­kerfi sem leggur fyrst og fremst áherslu á skyndigróða með sem minnstum til­kostn­aði og sem minnsta ábyrgð og veitir ávinn­ingnum að mestu leiti til eig­enda stór­fyr­ir­tækja, hlut­hafa og stjórn­enda og fjár­magns­eig­enda,“ segir um odd­vit­ann í til­kynn­ingu flokks­ins.

Haft er eftir Haraldi að það sé „kom­inn tími á rót­tæka vinstri­stefnu sem hefur skýra fram­tíð­ar­sýn og hafnar stöð­ugum mála­miðl­unum til hægri“ og að mála­miðl­anir hafi „engu skilað nema aft­ur­för, síauknum ójöfn­uði og auð­söfnun lít­ils hluta þjóð­ar­innar.“

[adspot]

„Skatta­hækk­anir á bóta­þega og almennt launa­fólk, slig­andi hús­næðis- og leigu­mark­aður og níð­þungur fjár­magns­kostn­aður og fjár­mála­kerfi leggja þungar byrðar á þjóð­ina en soga hins vegar gríð­ar­legan arð til fjár­magns­eig­enda og stór­fyr­ir­tækja,“ er haft eftir Haraldi Inga.

Listanum í Norð­aust­ur­kjör­dæmi var stillt upp af slembivöldum hópi félaga flokks­ins, sem áttu sam­kvæmt til­kynn­ingu flokks­ins að „end­ur­spegla sem skýr­ast vilja gras­rótar flokks­ins“.

Listi Sósíalistaflokks Íslands í Norðausturkjördæmi:

  1. Haraldur Ingi Har­alds­son, verk­efn­is­stjóri
  2. Margrét Pét­urs­dóttir, verka­kona
  3. Guðrún Þórs­dóttir, menn­ing­ar­stjóri og ráð­gjafi
  4. Þor­steinn Bergsson, bóndi
  5. Unnur María Máney Berg­sveins­dóttir, sirku­slista­kona og sagn­fræð­ingur
  6. Auður Trausta­dóttir, sjúkra­liði
  7. Rúnar Freyr Júl­í­us­son, náms­maður
  8. Karolina Sig­urð­ar­dóttir, verka­kona
  9. Bergrún Andra­dóttir, náms­maður
  10. Brynja Sig­ur­óla­dóttir, öryrki
  11. Stefán L. Rögn­valds­son, bóndi og raun­sæ­is­skáld
  12. Kolbeinn Agn­ars­son, sjó­maður
  13. Halldóra Haf­dís­ar­dóttir, mynd­list­ar­maður
  14. Arin­björn Árnason, fv. bóndi og bif­reið­ar­stjóri
  15. Ari Sig­ur­jóns­son, sjó­maður
  16. Árni Daníel Júl­í­us­son, sagn­fræð­ingur
  17. Michal Polacek, lög­fræð­ingur
  18. Katrín María Ipaz, þjónn
  19. Skúli Skúlason, leið­bein­andi.
  20. Jóhann Axelsson, pró­fessor emeritus
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár