Óvissuferð þjóðar, græðgi útgerða, COVID-19 og „örlítill grenjandi minnihluti“

Mest lesnu fréttir árs­ins á Kjarn­anum sner­ust sumar um COVID-19 með einum eða öðrum hætti. Áhugi þjóð­ar­innar á öðrum stórum málum á hlað­borði sam­fé­lags­á­taka var þó áfram til staðar.

5. Spurði hvort „örlítill grenjandi minnihluti“ ætti að geta neitað þjóðinni um þjóðgarð

„Á ein­hver örlít­ill grenj­andi minni­hluti að hafa neit­un­ar­vald um það að þjóðin megi stofna þennan þjóð­garð sinn á sínu eigin land­i?“ spurði Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis og þing­maður Vinstri grænna í ræðu sinni um Hálend­is­þjóð­garð á Alþingi föstu­dags­kvöldið 8. des­em­ber.

For­seti Alþingis er ekki tíður gestur í ræðu­stól þings­ins, en Stein­grímur sagð­ist hafa látið það eftir sér að halda ræðu um mál­ið, sem hann sagði sér mik­il­vægt. „Ég hef sterkar taugar til þessa svæð­is,“ sagði Stein­grímur og bætti því við að fyrir honum væri leynd­ist hjarta Íslands og helgi­dómar á hálend­inu.

Þessi ummæli áttu eftir að hafa miklar afleið­ingar og urðu að sam­ein­ing­ar­tákni and­stæð­inga Hálend­is­þjóð­garðs­ins.

Lesið frétt­ina í heild sinni hér.

4. Kári býðst til að skima fyrir veirunni

Í byrjun mars var greint frá því að Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, hefði haft sam­band við heil­brigð­is­yf­ir­völd og boð­ist til að skima í sam­fé­lag­inu fyr­ir­ nýju kór­ónu­veirunni. „Ein­stakt á heims­vís­u,“ sagði Alma Möller land­læknir um málið á sam­eig­in­leg­um ­blaða­manna­fundi almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins og Land­helg­is­gæsl­unnar sem fór fram þennan dag.

Lesið frétt­ina í heild sinni hér.

3. Fjögur ráð til að hætta að snerta á sér andlitið

Það virð­ist sammann­legt að snerta stöðugt á sér and­litið með­ f­ingr­un­um. Við nuddum aug­un, klórum okkur í nef­inu, styðjum hönd undir kinn og stöng­um ­jafn­vel úr tönn­unum með nögl­un­um. En þegar við snertum á okkur and­litið berum við líka alls konar sýkla að því og þaðan eiga þeir greiða leið inn í lík­amann.

[adspot]Þegar COVID-19 hóf inn­reið sína í líf okkar bentu heil­brigð­is­yf­ir­völd ítrekað bent á að besta og ein­faldasta for­vörnin gegn smiti sé að þvo oft og vel á sér­ hend­urnar með sápu. Bent hefur verið á að til að sótt­varn­ar­ár­angur náist þurf­i að þvo hend­urnar í 20-30 sek­úndur í hvert sinn eða álíka lengi og það tekur að raula afmæl­is­söng­inn fyrir munni sér.

Einnig var bent á að hnerra og hósta í pappír eða oln­boga­bót því bakt­er­íur og veirur smit­ast með úða. Þá er okkur ráð­lagt að sleppa kossaflensi, knúsi og því að heilsa fólki með handa­bandi.

Og svo er okkur bent á að hætta að snerta á okkur and­litið í tíma og ótíma.

Kjarninn tók saman fjögur ráð til að hætta að þeim ósið.

Lesið frétt­ina í heild sinni hér.

2. Sjö útgerðir krefja ríkið um 10,2 milljarða króna auk hæstu mögulegu vaxta

Sjö útgerðir kröfðu íslenska ríkið um sam­tals 10,2 millj­arða króna auk hæstu fáan­legu vaxta vegna fjár­­­tjóns sem þau töldu sig hafa orðið fyrir vegna mak­ríl­kvóta sem fór ekki til þeirra á árunum 2011 til 2018. Útgerð­irnar ákváðu að höfða mál eftir að tveir dómar féllu í Hæsta­rétti í des­em­ber 2018 sem sögðu að ekki hefði verið rétt haldið á úthlutun á mak­ríl­kvóta.

Um var að ræða fyr­ir­tækin Gjög­ur hf., Ísfé­lag Vest­­manna­eyja hf., Skinn­ey-­­Þinga­­nes hf., Loðn­u­vinnsl­an hf. og Hug­inn ehf., Eskja hf. og Vinnslu­­stöðin hf. Hluti þeirra féll frá kröfum sínum í kjöl­far þess að umfang hennar var opin­bert, og kröf­urnar voru almennt for­dæmdar.

Það gerð­ist eftir að Kjarninn greindi frá mál­inu 11. apríl 2020.

Lesið frétt­ina í heild sinni hér.

1. Víðir: Við erum að leggja í mikla óvissuferð

„Það sem við erum að velta mjög mikið fyrir okkur og er auð­vitað áhyggju­efni er hvað ger­ist núna 4. maí. Hvernig útfærslan á þessu verður end­an­lega, hvernig við­brögðin verða og hvaða afleið­ingar það hefur á þau verk­efni sem við erum með í þessu. Og við erum að leggja í mikla óvissu­ferð með­ það. Við erum að reyna að finna sam­spilið milli þess að finna bestu lausn­ina ­sótt­varna­lega séð og gera það sem okkar sér­fræð­ingar telja öruggt að gera til­ að koma sam­fé­lag­inu í gang.

Við erum öll orðin lang­þreytt og höfum lagt gríð­ar­lega mik­ið á okk­ur. Og ef maður horfir aðeins til baka í dag þá erum við búin að vera í þessu í um þrjá mán­uði, frá því að við byrj­uðum að vinna í þessu á fullu. Auð­vitað væri það skelfi­legt ef að það sem við gerum í maí myndi verða til þess að við þyrftum að byrja upp á nýtt.“

Þetta sagði Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna 17. apríl 2020. Og frétt Kjarnans um þessi ummæli var mest lesna frétt árs­ins á miðl­inum.

Lesið frétt­ina í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár