Reiknar ekki með neinum skemmtiferðaskipum í ár

Gísli Gíslason, hafn­ar­stjóri Faxa­flóa­hafna, segir að hann reikni ekki með því að eitt ein­asta skemmti­ferða­skip legg­ist að bryggju í Reykja­vík í ár, þó mögu­lega gætu nokkur smærri skip komið síðar á árinu. Alls voru 189 komur bók­aðar hjá Faxa­flóa­höfnum.

Skemmtiferðaskip við bryggju á Akureyri.
Skemmti­ferða­skip við bryggju á Akureyri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Áætlað var að 189 skemmti­ferða­skip kæmu til Reykja­víkur á þessu ári, en Gísli Gíslason hafn­ar­stjóri Faxa­flóa­hafna segir að nú sé ekki búist við því að eitt ein­asta skili sér, sökum áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á skemmti­sigl­inga­iðn­að­inn.

Gísli segir ljóst að tapið vegna þessa fyrir hafnir lands­ins hlaupi á millj­örðum, en bara hjá Faxa­flóa­höfnum sé tekju­fallið áætlað 600-700 millj­ónir króna, sem sé um 15 pró­sent af árs­tekj­unum.

Hafn­ar­stjór­inn segir þó, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, að ein­hver minni skemmti­ferða­skip, svokölluð „expedition“-skip, gætu hugs­an­lega komið til lands­ins með haustinu, en þau verði tæp­lega mörg.

Gísli segir ekki blása byr­lega í skemmti­sigl­inga­brans­anum þessa dag­ana, en skipin liggja um þessar mundir lang­flest verk­efna­laus í höfnum heims­ins.

Heims­far­ald­ur­inn fór illa með brans­ann, enda voru þó nokkur dæmi um að hóp­sýk­ingar kæmu upp í þessum risa­vöxnu hót­elum hafs­ins og hálf­gerðar hryll­ings­sögur bár­ust frá far­þegum sem lýstu dvöl sinni á skipum sem fengu hvergi að leggj­ast að bryggju eftir að far­þegar fóru að veikj­ast um borð.[links]

Gísli segir að merkja megi áhuga útgerða á að kom­ast aftur af stað, en ferða­vilji við­skipta­vina ráði þó eflaust meiru um hvernig málin þró­ast en áhugi útgerð­anna.

Á næsta ári, segir Gísli, er tals­vert bókað fyrir skemmti­ferða­skip, en ennþá er óljóst hver þró­unin verður, þó reikna megi með því að skemmti­ferða­skipin verði almennt farin að sigla ef ekki verði bakslag í far­aldr­inum.

Sem áður segir býst Gísli við því að tekjur Faxa­flóa­hafna drag­ist saman um nærri 15 pró­sent sökum þess að skemmti­ferða­skipin koma ekki, en hann segir að hafnir á borð við Ísa­fjarð­ar­höfn og Akur­eyr­ar­höfn hafi enn hærra hlut­fall af sínum heild­ar­tekjum frá skemmti­ferða­skipum. Þá eigi eftir að telja með tap ferða­þjón­ustu­að­ila uppi á landi.

Samkvæmt könnun sem sam­tökin Cruise Iceland unnu árið 2018 í sam­starfi við Hafna­sam­band Íslands var þjóð­hags­legur ávinn­ingur af komum skemmti­ferða­skipa um 16,4 millj­arðar króna það ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

faxaflóahafnir

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár