Vilja dýpka Viðeyjarsund og losa efni við Engey

Til að dýpka Við­eyj­ar­sund í 10 og 12,5 metra, líkt og Faxa­flóa­hafnir stefna að, þarf að fjar­lægja rúm­lega þrjár millj­ónir rúmmetra af efni af hafs­botni. Hluta efn­is­ins á að nýta í land­fyll­ingar en varpa afgang­inum í hafið við Engey.

Yfirlitsmynd af öllum fyrirhuguðum landfyllingum og dýpkunarsvæði.
Yfir­lits­mynd af öllum fyr­ir­hug­uðum land­fyll­ingum og dýpk­un­ar­svæði. Mynd: Úr tillögu að matsáætlun

Skip eru orðin það stór og munu fara stækk­andi í fram­tíð­inni, að nauð­syn­legt er að ráð­ast í dýpkun og að bæta aðstöðu í Sunda­höfn. Þetta eru rök­semdir Faxa­flóa­hafna fyrir því að fara í frek­ari land­fyll­ingar á athafna­svæð­inu og dýpkun Við­eyj­ar­sunds. Tillaga að mats­á­ætlun vegna mats á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmd­ar­innar hefur nú verið lögð fram til kynn­ingar. Fyr­ir­hug­uðum fram­kvæmdum er hægt að skipta í þrennt; dýpkun Við­eyj­ar­sunds, efn­islosun við Engey og land­fyll­ingar og hafn­ar­gerð á athafna­svæði Sunda­hafnar.

Faxa­flóa­hafnir fyr­ir­huga að lengja Skarfa­bakka til suð­urs, færa Klepps­bakka utar og lengja Sunda­bakka og Voga­bakka svo að þeir nái saman. Við Kletta­garða er stefnt að stækkun núver­andi land­fyll­ingar utan við skólp­hreinsi­stöð Veitna. Í heild­ina er áætlað að taka 3.150.000 rúmmetra (m3) af efni af hafs­botni við dýpkun Við­eyj­ar­sunds en heild­ar­efn­is­þörf allra land­fyll­inga er metin um tvær millj­ónir rúmmetra.

[adspot]

Með fram­kvæmd­unum myndu hafn­ar­bakkar aðeins lengj­ast um 190 metra sam­an­lagt enda eru fram­kvæmd­irnar aðal­lega ætl­aðar til að auð­velda mót­töku stærri skipa, einkum nýrra flutn­inga­skipa, en einnig til að taka á móti stærri skemmti­ferða­skipum. Ströndin á þessum kafla er öll mann­gerð land­fyll­ing og í til­lögu að mats­á­ætlun kemur fram að engri nátt­úru­legri strand­lengju verði raskað.

Þar sem fyr­ir­huguð efn­istaka og haug­setn­ing nemur meira en 150 þús­und rúmmetrum á svæði sem er yfir fimm hekt­arar er fram­kvæmdin háð umhverf­is­mati. Tillaga að mats­á­ætlun er eitt skref í þeirri vinnu. Í fram­hald­inu verður unnin frum­mats­skýrsla og er stefnt að því að senda hana til með­ferðar Skipu­lags­stofn­unar í apríl og von­ast er til þess að álit stofn­un­ar­innar liggi fyrir næsta haust.

Botninum að mestu leyti þegar raskað

Á Við­eyj­ar­sundi er fyr­ir­hugað að dýpka botn­inn og fjar­lægja alls 3.150.000 rúmmetra af efni á 113 hekt­ara svæði. Fyr­ir­hugað er að botn­inn verði á 10 og 12,5 metra dýpi að fram­kvæmdum loknum. Dýpk­un­ar­svæðið er allt innan athafna­svæðis Sunda­hafnar og í til­lögu að mats­á­ætlun segir að nátt­úru­legum botni hafi að miklu leyti þegar verið raskað með fyrri dýpk­un­ar­að­gerðum.

Efni úr dýpk­un­inni er meira fyll­ing­ar­efni en Faxa­flóa­hafnir þurfa í sínar land­fyll­ingar og verður leit­ast við að nýta efnið í aðrar land­fyll­ingar, verði þess nokkur kostur, t.d. á vegum Reykja­vík­ur­borgar eða nálægra sveit­ar­fé­laga.

Til stendur að umfram­efni úr dýpk­un­ar­fram­kvæmdum, sem ekki er hægt að nýta í land­fyll­ingar, verði að hluta losað í sjó­inn við Engey. Í til­lögu að mats­á­ætlun kemur fram að efni hafi verið losað við Engey frá árinu 2005 og þá aðal­lega í aflagða efn­is­námu austan við hana. Þessar gömlu efn­is­námur eru að fyll­ast, auk þess sem þær eru nálægt núver­andi efn­is­töku­svæði Björg­unar. Því hyggj­ast Faxa­flóa­hafnir losa efni í fram­tíð­inni í gamlar efn­is­námur norð­vestan við Engey.

Engin nátt­úru­leg strand­lengja er eftir innan fram­kvæmda­svæð­is­ins og engar þekktar nátt­úru- né menn­ing­arminjar eru innan þess. Í næsta nágrenni eru þó svæði á nátt­úru­minja­skrá; Engey, Viðey, Gufu­nes­höfði og vest­ur­horn Laug­ar­ness. Fram­kvæmdir munu ekki hrófla við umræddum nátt­úru­minja­svæðum, segir í til­lögu Faxa­flóa­hafna.

Mengun á hafsbotni

Beint og var­an­legt rask yrði á því svæði sem fyr­ir­hugað er að dýpka. Þá munu land­fyll­ingar breyta ásýnd strand­lengj­unnar til fram­búðar. Efn­islosun við Engey mun jafn­framt hylja sjáv­ar­botn­inn stað­bundið. Land­fyll­ing­arnar eru allar stækk­anir á fyrri land­fyll­ingum og því mun, að sögn fram­kvæmda­að­ila, engin búsvæði fugla eða gróður á landi raskast.

Í umsögn Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur um dýpkun Sunda­hafnar sem gefin var í júní í fyrra er þó minnt á að í Engey og á hinum eyj­unum í sund­inu eru varp­svæði fugla sem sækja fæðu sína í sjó­inn umhverfis þær. Einnig kemur fram í umsögn­inni að nið­ur­stöður rann­sókna á botns­eti sýni að á sumum svæðum á þessum slóðum séu meng­un­ar­efni á borð við PCB og þung­málma. Kanna þurfi hvort mengun frá dýpk­un­ar­efni geti haft áhrif á fæðu fugl­anna en í set­inu eru m.a. þung­málmar sem safn­ast geta saman í líf­keðj­unni. Í til­lögu Faxa­flóa­hafna kemur fram að efni í var­úðar- og hættu­flokki sam­kvæmt skil­grein­ingu Umhverf­is­stofn­unar, verði lokað af í land­fyll­ingum. Fyr­ir­hugað er að stærsta land­fyll­ingin við Vatna­garða eða land­fyll­ing norðan við Laug­ar­nes verði notuð til þess.

Getur haft áhrif á laxfiska

Í til­lögu Faxa­flóa­hafna að mats­á­ætlun þró­unar Sunda­hafnar er fjallað um að fram­kvæmdin sem þar er lýst geti haft áhrif á lax­gengd í Elliða­ánum. Allir lax­fiskar á leið í árnar fara um eða rétt fram hjá fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmda­svæði. Sömu­leiðis fara seiði á leið til sjávar um og fram hjá fram­kvæmda­svæð­inu og því verða áhrif fram­kvæmd­ar­innar á lax­fiska metin í frum­mats­skýrslu – næsta skrefi umhverf­is­mats­ins.

[adspot]

Í til­lög­unni er bent á að fyr­ir­hug­aðar land­fyll­ingar muni ekki þrengja frekar að Við­eyj­ar­sundi. „Göngu­leiðir lax­fiska verða því áfram óhindr­aðar, mögu­lega þá stækka þær með auknu dýpi á Við­eyj­ar­sundi. Grugg og umsvif vinnu­véla á fram­kvæmda­tíma gætu þó mögu­lega haft ein­hver áhrif á far lax­fiska.“

Allir geta kynnt sér til­lögu Faxa­flóa­hafna að mats­á­ætlun vegna mats á umhverf­is­á­hrifum þró­unar Sunda­hafnar og lagt fram athuga­semdir. Athuga­semdir skulu vera skrif­legar og ber­ast eigi síðar en 4. febr­úar 2021 til Skipu­lags­stofn­unar bréfleiðis eða með tölvu­pósti á skipulag@skipulag.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

faxaflóahafnir

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár