Sólveig Anna ekki búin að ákveða hvort hún bjóði sig aftur fram til formennsku

Frá­far­andi for­maður Eflingar seg­ist skilja bolla­legg­ingar um hvort hún muni bjóða sig aftur fram til for­mennsku. Hún hafi fengið gríð­ar­legt magn skila­boða frá félags­fólki um að hún megi ekki fara frá bar­átt­unni.

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Aðspurð hvort það komi til greina að hún bjóði sig aftur fram til for­mennsku í Eflingu seg­ir Sól­veig Anna Jóns­dóttir, frá­far­andi for­maður félags­ins, að hú sé ekki búin að ákveða neitt.

[links]Hún skilji þó að það séu bolla­legg­ingar um hvort hún muni fara aftur fram í kom­andi for­manns­kosn­ingum í Efl­ingu, sem þurfa að fara fram fyrir lok mars á næsta ári. „Ég hef fengið gríð­ar­legt magn af skila­boðum frá alls­konar fólki sem lýsir yfir upp­námi yfir því að þetta sé að ger­ast og inn­takið í þessum skila­boðum frá félags­fólki Efl­ingar er ein­beitt ósk um að þetta megi ekki vera að ger­ast. Það er ekki vegna þess að þeim finnst ég svo skemmti­leg mann­eskja, heldur út af þeim árangri sem hefur náðst. Og vegna þess að það fólk sem ég hef unnið með, til dæmis í samn­inga­nefnd­um, veit að ég gefst ekki upp. Ég segi alltaf satt og rétt frá og leita alltaf eftir lýð­ræð­is­legu umboði fyrir því sem ég geri og hef reynt að vera alltaf til staðar fyrir félags­fólk. En ég lít svo á núna að ég geti ekki hugsað lengra fram í tím­ann en einn dag í einu núna. Ég er bara þar.“

[adspot]Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítar­legu við­tali við Sólveigu Önnu í Kjarn­anum sem birt var í gær. Þar steig tjáði hún sig í fyrsta sinn beint við fjöl­miðil eftir að hafa til­kynnt um afsögn sína fyrir viku síðan.

Ekki búin að ákveða næstu skref

Þegar Sólveig Anna greindi frá afsögn­inni, í stöðu­upp­færsl­u á Facebook, sagði hún að hún ætl­aði aldrei að hætta í bar­áttu fyrir rétt­læti fyrir þá sem til­heyrum stétt verka- og lág­launa­fólks og þekkja lífið undir oki auð­valds­kerf­is­ins og lág­launa­stefn­unn­ar.

Þegar hún er spurð hvað þetta þýði, og hvort hún sé að boða end­ur­komu inn í stétt­ar­fé­lags­bar­áttu innan tíð­ar, segir Sól­veig Anna ekki vera komin þang­að. „Ég er að vinna mig í gegnum þetta áfall að vera hrakin burt úr emb­ætti for­manns Efl­ingar sem ég tel mig hafa notið nær afdrátt­ar­lauss stuðn­ings félags­manna til að gegna. Og ég ætla bara að fá að vera þar. Eina ákvörð­unin sem ég hef tekið er að klára loks­ins ævi­sögu Rosu Lux­emburg, sem er mik­ill doðr­ant­ur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár