Vilborg leiðir Miðflokkinn í Reykjavík norður – Ólafur vék til að leysa „pattstöðu“

Ólafur Ísleifs­son þing­maður Mið­flokks­ins sótt­ist ekki eftir sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík norður til þess að leysa „patt­stöðu“ sem kom upp við upp­still­ingu list­ans í kjör­dæm­inu. Vilborg Þóranna Krist­jáns­dóttir lög­fræð­ingur mun leiða lista flokks­ins.

Ólafur Ísleifsson var kjörinn á þing fyrir Flokk fólksins í Reykjavík norður árið 2017, en færði sig yfir í Miðflokkinn eftir að Klausturmálið kom upp.
Ólafur Ísleifs­son var kjör­inn á þing fyrir Flokk fólks­ins í Reykja­vík norður árið 2017, en færði sig yfir í Mið­flokk­inn eftir að Klaust­ur­málið kom upp. Mynd: Bára Huld Beck

Vilborg Þóranna Krist­jáns­dóttir lög­fræð­ingur og sátta­miðl­ari leiðir lista Mið­flokks­ins í Reykja­vík norður til kom­andi alþing­is­kosn­inga, en félags­fundur flokks­ins í kjör­dæm­inu sam­þykkti í kvöld lista upp­still­ing­ar­nefndar með 77 pró­sentum greiddra atkvæða. Athygli vekur að eini núver­andi þing­maður flokks­ins í kjör­dæm­inu, Ólafur Ísleifs­son, er ekki á list­anum.

Til­kynn­ingu Mið­flokks­ins um nið­ur­stöðu félags­fund­ar­ins fylgir yfir­lýs­ing frá Ólafi, þar sem segir að hann hafi tekið ákvörðun um að sækj­ast ekki eftir sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í kjör­dæm­inu til að „leysa þá patt­stöðu“ sem upp hafi verið komin við upp­still­ingu á lista flokks­ins í kjör­dæm­inu.

Útilokar ekki að blanda sér í slaginn í Reykjavík suður

Þing­mað­ur­inn, sem kjör­inn var á þing fyrir Flokk fólks­ins árið 2017 en síðar rek­inn úr þing­flokknum, segir við RÚV í kvöld að hann úti­loki ekki að sækj­ast eftir odd­vita­sæti í Reykja­vík suður, en þar er einnig patt­staða uppi.

Félags­fundur felldi til­lögu upp­still­ing­ar­nefndar flokks­ins á fimmtu­dag í síð­ustu viku, en þar hafði verið gerð til­laga um að Fjóla Hrund Björns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Mið­flokks­ins, leiddi lista flokks­ins til kom­andi kosn­inga. Núver­andi þing­maður í því kjör­dæmi, Þor­steinn Sæmunds­son, var ekki á lista upp­still­ing­ar­nefnd­ar­innar.

Til stendur að halda odd­vita­próf­kjör þeirra á milli fyrst listi upp­still­ing­ar­nefnd­ar­innar var felldur og nú opnar Ólafur á að blanda sér í þá bar­áttu.

[adspot]

Einnig hefur komið fram að styr standi um upp­still­ingu lista Mið­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, en um helg­ina sagði mbl.is frá því að Karl Gauti Hjalta­son þing­maður, sem kom rétt eins og Ólafur yfir til Mið­flokks­ins frá Flokki fólks­ins í kjöl­far Klaust­ur­máls­ins, yrði ekki á lista upp­still­ing­ar­nefndar á Suð­ur­landi. Þar verður til­laga upp­still­ing­ar­nefndar borin fyrir félaga á mið­viku­dag.

Efstu sæti lista Miðflokksins í Reykjavík norður

  1. Vilborg Þóranna Krist­jáns­dóttir, lög­fræð­ingur og sátta­miðl­ari
  2. Tómas Ellert Tómasson, verk­fræð­ingur
  3. Erna Vals­dóttir, fast­eigna­sali
  4. Þórarinn Jóhann Krist­jáns­son, tölv­un­ar­fræð­ingur og kenn­ari
  5. Ásta Karen Ágústs­dóttir, laga­nemi og dóm­rit­ari
  6. Sólveig Bjarney Dan­í­els­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og aðstoð­ar­deild­ar­stjóri

Uppfært: Í til­kynn­ingu Mið­flokks­ins sagði að odd­vit­inn Vilborg Þóranna væri sátta­semj­ari og var þess getið í upp­haf­legri útgáfu frétt­ar­innar, en í leið­rétt­ingu frá flokknum sagði að hún væri sátta­miðl­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár