Hafa þurft að grípa til ráðstafana til að afstýra lyfjaskorti vegna hamsturs

Afgreiðsla malar­íu­lyfs­ins Plaquenil hefur verið tak­mörkuð við 30 daga skammt og ávísun lyfs­ins bundin við til­teknar sér­greinar.

Plaquenil
Plaquenil Mynd: Úr safni

Í nokkrum til­vikum hefur þurft að grípa til fyr­ir­byggj­andi ráð­staf­ana svo ekki kæmi til lyfja­skorts hér­lendis vegna hamst­urs. Það á til dæmis við um malar­íu­lyfið Plaquenil sem að ein­hverju marki hefur verið notað sem til­rauna­með­ferð við COVID-19, en í því til­viki var afgreiðsla lyfs­ins til að mynda tak­mörkuð við 30 daga skammt og ávísun lyfs­ins bundin við til­teknar sér­greinar.

Þetta kemur fram í svari Lyfja­stofn­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Í svar­inu segir að hingað til hafi svo til alveg tek­ist að koma í veg fyrir lyfja­skort hér­lendis sem hefði getað leitt af COVID-19 far­aldr­inum. Þar komi margt til.

„Lyfja­stofnun fór þegar í lok jan­úar í víð­tækar aðgerðir sem mið­uðu að því að tryggja lyfja­ör­yggi í land­inu eins og hægt væri. Þær fólust meðal ann­ars í því að greina birgða­stöðu lyfja í land­inu og þar skipti máli mikið og náið sam­starf við lyfja­fyr­ir­tæki, inn­flutn­ings­að­ila og dreif­ing­ar­fyr­ir­tæki. Einnig þurfti að tryggja og treysta allar flutn­ings­leiðir lyfja til lands­ins með hlið­sjón af ferða­tak­mörk­unum víðs vegar,“ segir í svar­inu.

Þá nefnir Lyfja­stofnun sam­starf evr­ópskra lyfja­stofn­ana undir hatti Lyfja­stofn­unar Evrópu (EMA) „sem alla­jafna er mikið og gott, en var eflt í tengslum við COVID-19; einn sér­fræði­hópur EMA sinnir lyfja­ör­yggi og lyfja­skorti, og hefur sá hópur átt reglu­bundna síma­fundi þar sem sér­stak­lega er fylgst með fram­vindu mála vegna far­ald­urs­ins. Í erlendu sam­vinn­unni er síðan sér­stak­lega þétt og náið sam­starf við nor­rænu syst­ur­stofn­an­irnar, en stærsti hluti þeirra lyfja sem fluttur er til Íslands kemur frá Norð­ur­löndum, einkum Danmörku.“

Margir óvissuþættir tengjast faraldrinum

Fram kemur hjá stofn­un­inni að álag í vinnu við að koma í veg fyrir lyfja­skort hafi vissu­lega verið meira í tengslum við far­ald­ur­inn en í venju­legu árferði. En í góðri sam­vinnu við lyfja­fyr­ir­tæki, erlendar syst­ur­stofn­anir og aðrar inn­lendar heil­brigð­is­stofn­anir hafi tek­ist að greiða úr þeim vanda­málum sem upp hafa komið í tengslum við COVID-19.

Hvað varðar stöðu lyfja­birgða í nán­ustu fram­tíð séu engar sér­stakar vís­bend­ingar um að komið geti til lyfja­skorts hér­lendis vegna COVID-19. Hins vegar sé því ekki að leyna að margir óvissu­þættir teng­ist far­aldr­inum, til að mynda eft­ir­spurn eftir lyfjum í öðrum löndum og fram­leiðslu­geta lyfja­fyr­ir­tækja og flutn­ings­mögu­leikar í löndum sem eru stór­tæk í lyfja­fram­leiðslu, eins og til dæmis Indland; þar séu enn í gangi harðar aðgerðir til að hefta útbreiðslu far­sótt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár