Gleðifréttir: Fyrsti sjúklingurinn sem var í öndunarvél á gjörgæslu útskrifaður

Núna liggja 45 á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins. Ellefu eru á gjör­gæslu Land­spít­al­ans og einn á Akureyri. Á Land­spít­al­anum eru átta í önd­un­ar­vél og einn á Akureyri.

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, var til svara á upplýsingafundinum í dag.
Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, var til svara á upp­lýs­inga­fund­inum í dag. Mynd: Lögreglan

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, greindi frá þeim gleði­fréttum á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að fyrsti sjúk­ling­ur­inn sem þurfti að leggj­ast á gjör­gæslu vegna COVID-19 og fara í önd­un­ar­vél er nú útskrif­aður af deild­inni og dvelur nú á almennri deild. Þetta er sá sjúk­lingur sem fyrstur þurfti að fara í önd­un­ar­vél vegna sjúk­dóms­ins. „Jákvæðar og góðar fréttir í dag,“ sagði Páll. „Þetta er auð­vitað gleði­legt fyrir sjúk­ling­inn sjálfan og aðstand­endur en einnig fyrir allt starfs­fólkið sem hefur sinnt honum og svo okkur öll.“

Núna liggja 45 á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins. Ellefu eru á gjör­gæslu Land­spít­al­ans og einn á Akureyri. Á Land­spít­al­anum eru átta í önd­un­ar­vél og einn á Akureyri.

Páll benti á að þrjá­tíu sjúk­lingar sem hafa verið lagðir inn á Land­spít­al­ann með COVID-19 hafi verið útskrif­aðir frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Í heild hafa 336 ein­stak­lingar hér á landi jafnað sig af sjúk­dómnum.

Á upp­lýs­inga­fund­inum var spurt hvenær og hversu margir hefðu legið á gjör­gæslu Land­spít­al­ans þegar flest hefur verið. Alma Möller land­læknir, sem var yfir­læknir á gjör­gæslu­deild­inni í Fossvogi lengi, sagð­ist muna eftir því að fyrir um tíu árum hafi þrettán sjúk­lingar verið á gjör­gæslu sam­tímis. „En það var mjög óvenju­legt.“

Alma man eftir því að það voru 13 sjúk­lingar á gjör­gæslu einu sinni fyrir tíu árum. „það var mjög óvenju­legt.“

Land­spít­al­ann fékk margar önd­un­ar­vélar að gjöf á dög­unum. Þær hafa verið yfir­farnar og eru nú til reiðu þegar og ef á þarf að halda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár