Guðmundur Ingi leiðir Vinstri græn í Kraganum

Forvali Vinstri grænna í Suð­vest­ur­kjör­dæmi lauk kl. 17:10 í dag. Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra verður odd­viti flokks­ins í kjör­dæm­inu í kom­andi kosn­ingum.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra mun leiða lista Vinstri grænna í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, en hann varð hlut­skarpastur í for­vali flokks­ins sem lauk kl. 17:10 í dag. Ólafur Þór Gunn­ars­son þing­maður sem einnig sótt­ist eftir odd­vita­sæti varð í öðru sæti í for­val­inu og Una Hild­ar­dóttir í þriðja sæti.

Í fjórða sæti varð Kolbrún Hall­dórs­dóttir, fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra, sem sneri aftur í stjórn­málin og sótt­ist eftir öðru sæti í for­val­inu. Þóra Elfa Björns­son varð fimmta, en í for­val­inu, sem hófst á fimmtu­dag, var valið í fimm efstu sæti á fram­boðs­lista hreyf­ing­ar­innar fyrir kosn­ing­arnar sem fram fara í haust.

Alls voru níu manns í fram­boði. 1.699 manns voru á kjör­skrá og 844 greiddu atkvæði, sem sam­svarar 50 pró­sent þátt­töku. Kjör­stjórn mun í fram­hald­inu leggja fram lista með 22 fram­bjóð­endum fyrir kjör­dæm­is­þing til sam­þykktar í sam­ræmi við lög og stefnu hreyf­ing­ar­innar, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá VG.

Niðurstaða forvalsins:

  1. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son með 483 atkvæði í 1. sæti
  2. Ólafur Þór Gunn­ars­son með 361 atkvæði í 1.-2. sætið
  3. Una Hild­ar­dóttir með 482 atkvæði í 1.-3. sæti
  4. Kolbrún Hall­dórs­dóttir með 435 atkvæði í 1.-4. sæti
  5. Þóra Elfa Björns­son með 421 atkvæði í 1.-5. sæti

[adspot]

Vinstri græn náðu þeim árangri 2017 að verða næst stærsti flokk­ur­inn í Krag­anum og fá tvo kjör­dæma­kjörna þing­menn. Þá leiddi Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir lista flokks­ins og Ólafur Þór Gunn­ars­son sat í öðru sæti.

Rósa Björk ákvað hins vegar að styðja ekki myndun rík­is­stjórnar með Sjálf­stæð­is­flokki og varð því strax að nokk­urs­konar oln­boga­barni innan þing­flokks Vinstri grænna eftir síð­ustu kosn­ing­ar. Það leiddi á end­anum til þess að hún yfir­gaf flokk­inn og hefur nú gengið til liðs við Sam­fylk­ing­una, þar sem hún verður í fram­boði í Reykja­vík.

Guð­mundur Ingi er ekki þing­maður í dag, en hann var feng­inn sem utan­þings­ráð­herra Vinstri grænna inn í umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið þegar rík­is­stjórn VG, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar var mynduð í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár