Evrópsk flugmálayfirvöld ætla að hleypa MAX-vélunum í loftið í næstu viku

Stjórn­andi Flug­ör­ygg­is­stofn­unar Evrópu boð­aði á blaða­manna­fundi í morgun að Boeing 737 MAX-vél­arnar, sem hafa verið kyrr­settar frá því í mars 2019, fái heim­ild til flugs í evr­ópskri loft­helgi í næstu viku.

Boeing 737 MAX-vélar hafa ekki mátt fljúga í evrópskri lofthelgi frá því í mars 2019.
Boeing 737 MAX-vélar hafa ekki mátt fljúga í evr­ópskri loft­helgi frá því í mars 2019. Mynd: EPA

Flug­ör­ygg­is­stofnun Evr­ópu­sam­bands­ins (EASA) ætlar að gefa grænt ljós á flug Boeing 737 MAX-véla í næstu viku. Þetta kom fram í máli Patrick Ky, stjórn­anda stofn­un­ar­innar, á raf­rænum blaða­manna­fundi í morgun. 

AFP-frétta­stofan segir frá og hefur eftir Ky að fjórum helstu kröfum EASA hafi verið mætt af hálfu Boeing. MAX-vélar fyr­ir­tæk­is­ins hafa ekki fengið að fljúga um evr­ópska loft­helgi í heila 22 mán­uði, eða frá því í mars árið 2019.

Floti MAX-véla var kyrr­settur á heims­vísu eftir tvö flug­slys með skömmu milli­bili í lok árs 2018 og upp­hafi árs 2019 sem urðu í heild­ina 346 manns að bana. Slysin voru rakin til galla í hug­bún­aði vél­anna, svoköll­uðu MCAS-kerfi, sem á að sporna við ofrisi. Galli í bún­að­inum leiddi til þess að nef vél­ar­innar þving­að­ist niður á við.

Fyrsta far­þega­flug MAX-vélar eftir kyrr­setn­ingu flot­ans fór í loftið 9. des­em­ber síð­ast­lið­inn í Brasilíu. Síðan hefur heim­ur­inn smám saman verið að taka MAX-vél­arnar aftur í notkun. Nú hyllir undir að hægt verði að fara að fljúga á þeim um evr­ópska loft­helgi.

Icelanda­ir hefur gert ráð fyrir því að MAX-­­vél­­­ar fyr­ir­tæk­is­ins verði komnar í notkun í vor, en nú virð­ist liggja ljóst fyrir að félagið gæti byrjað að fljúga á þeim strax í næstu viku, ef vél­arnar eru klárar til flugs. 737 MAX-vél­arnar í flota Icelandair eru sex tals­ins sem stendur.[links]

Flug­fé­lagið náði í sumar sam­komu­lagi við Boeing um bætur vegna kyrr­setn­ingar vél­anna og breytta afhend­ing­ar­á­ætlun þeirra MAX-véla sem félagið hafði pantað en ekki enn fengið afhentar.

Icelandair samdi við Boeing um að fá að falla frá kaupum á fjórum MAX-vélum, en mun fá sex slíkar afhentar á tíma­bil­inu frá öðrum árs­fjórð­ungi 2021 fram til fyrsta árs­fjórð­ungs 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár