Landsmenn tekið út tvisvar sinnum meiri séreignarsparnað en reiknað var með

Þegar rík­is­stjórnin heim­il­aði lands­mönnum að taka út eigin sér­eign­ar­sparnað vegna COVID-19 þá bjóst hún við að um tíu millj­arðar króna færu út kerf­inu. Nú lítur út fyrir að sú upp­hæð verði næstum 20 millj­arðar króna.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Alls hafa tæp­lega sjö þús­und lands­menn tekið úr 14,5 millj­arða króna af sér­eign­ar­sparn­aði sínum eftir að það var heim­ilað í fyrsta efna­hag­s­pakka rík­is­stjórn­ar­innar til að bregð­ast við áhrifum kór­ónu­veirunnar, sem fram fór 21. mars síð­ast­lið­inn.

[links]Fram til næstu ára­móta eru áætl­aðar greiðslur upp á 18 millj­arða króna. Í heild­ina eru áætl­aðar útgreiðslur sem nema 19,8 millj­örðum króna sem dreifast fram í mars 2022. Í upp­hafi var reiknað með að umfang þessa úrræðis yrði tíu millj­arðar króna á 24 mán­aða tíma­bili og því stefnir í að úttekt á sér­eign­ar­sparn­aði verði tvisvar sinnum það sem búist var við.

Þetta kemur fram í minn­is­blaði Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um yfir­lit yfir stöðu stærstu efna­hags­að­gerða vegna COVID-19, sem kynnt var í rík­is­stjórn 14. ágúst síð­ast­lið­inn. Miðað við þetta er með­al­greiðsla á hvern þann sem hefur nýtt sér úrræðið um hálf milljón króna.

Fækkar í hópi þeirra sem nýta úrræðið

Heim­ildin felur í sér að ein­stak­lingum er gert kleift að ganga á eigin sparnað, en þeir þurfa hins vegar að greiða skatt af honum við útgreiðslu líkt og ef þeir tækju hann út á efri árum. Aðgerðin er því tekju­öfl­un­ar­að­gerð fyrir rík­is­sjóð. Margir lands­menn nýta nú þegar sér­eign­ar­sparnað sinn til að greiða niður hús­næð­is­lán, en ef sú leið er valin nýtur útgreiðslan skatt­frelsis.

[adspot]Í minn­is­blað­inu kemur fram að heldur hafi fækkað í hópnum sem fær greitt út í hverjum mán­uði. Í byrjun yfir­stand­andi mán­aðar voru 2,2 millj­arðar króna greiddir út til 4.365 ein­stak­lingar. Mánuði fyrr voru greiddir út þrír millj­arðar króna til 5.798 ein­stak­linga.

Opið er fyrir umsóknir út þetta ár þannig að heild­ar­um­fang aðgerð­ar­innar verður ekki ljóst fyrr en að þeim tíma liðnum en hver ein­stak­lingur má taka út allt að 12 millj­ónum króna. Útgreiðslan dreif­ist með jöfnum greiðslum á allt að 15 mán­aða tíma­bil að hámarki 800 þús­und á mán­uði.

Þjóðin þegar búin að eyða miklu af séreign

Sam­bæri­leg aðgerð var sett í gang í kjöl­far banka­hruns­ins. Þá tóku lands­menn um fjórð­ung af öllum sér­eign­ar­sparn­aði í land­inu út úr kerf­inu, eða hátt í 100 millj­arða króna.

Kjarninn greindi frá því fyrr á þessu ári að um síð­ustu ára­mót höfðu lands­menn nýtt 73,5 millj­arða króna af sér­eign­ar­sparn­aði sínum til að greina niður hús­næð­is­lán eða sem útgreiðslu fyrir íbúð frá því að úrræðin tóku gildi um mitt ár 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár