DNB gæti fengið 5,7 milljarða króna sekt vegna slakra varna gegn peningaþvætti

Stærsti banki Noregs, sem er grun­aður um að hafa hjálpað Samherja að koma fjár­munum sínum í skatta­skjól, gæti þurft að greiða 5,7 millj­arða íslenskra króna í sekt fyrir að halda ekki uppi nógu góðum vörnum gegn pen­inga­þvætti.

Fjár­mála­eft­ir­lit Noregs hefur varað norska bank­ann DNB við sekt upp á 5,7 millj­arða íslenskra króna ef vegna lélegra varna gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Rík­is­sak­sókn­ari Noregs rann­sakar nú bank­ann vegna gruns um að hafa komið fjár­munum Samherja í skatta­skjól.

DNB greindi sjálfur frá aðvör­un­inni í til­kynn­ingu sem barst kaup­höll­inni í Osló í dag. Samkvæmt henni fram­kvæmdi fjár­mála­eft­ir­lit Noregs reglu­bundna grein­ingu á vörnum bank­ans og birti á dög­unum skýrslu byggða á henni. Samkvæmt skýrsl­unni á bank­inn í hættu á að greiða 400 millj­ónir norskra króna í sekt, breyti það ekki vörnum sínum, en það gildir 5,7 millj­örðum íslenskra króna.

Bankinn til­tekur að hann sé ekki grun­aður um hvít­þvætti, heldur hafi fjár­mála­eft­ir­litið gagn­rýnt hann fyrir að halda ekki uppi nægum vörnum til þess að fram­fylgja þar­lendum lögum sem koma eigi í veg fyrir pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka.

Enn fremur tekur DNB fram að hann muni ganga að skil­yrðum sem til­greind eru í skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Hins vegar greinir bank­inn ekki nánar frá því hver þessi skil­yrði eru, en sam­kvæmt honum er ekki hægt að til­kynna inni­hald skýrslu fjár­mála­eft­ir­lits­ins frekar, þar sem rann­sókn hennar á bank­anum sé ekki lokið.

Rannsókn vegna Samherjamálsins

Formleg rann­sókn stendur nú yfir hjá rík­is­sak­sókn­ara Noregs vegna við­skipta­hátta DNB við Samherja. Samkvæmt umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar, Wikileaks og Al Jazeera var hluti þeirra pen­inga sem Samherji færði inn á reikn­inga DNB skráður í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum.

DNB lok­aði á reikn­inga Samherja á árinu 2018 vegna gruns um að þeir væru not­aðir til að stunda pen­inga­þvætti. Í kjöl­farið hóf bank­inn inn­an­hús­rann­sókn á mál­inu og til­kynnti hann nið­ur­stöður hennar svo til norsku efna­hags­brota­lög­regl­unnar, Økokrim, í lok nóv­em­ber­mán­aðar í fyrra.

Kjarninn greindi svo frá því í haust að æðsti yfir­maður Økokrim hafði lýst sig van­hæfan til þess að fjalla um málið vegna fyrri starfa sinna í lög­mennsku. Málið var í kjöl­farið fært frá efna­hags­brota­lög­regl­unni til rík­is­sak­sókn­ara, sem hefur það nú á sínu borði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár