Smáir líkamarnir visna fyrir augum okkar

„Ég skrifa ekki vegna þess að orð muni stöðva dauð­ann – heldur til að stað­festa að við vorum hér,“ skrifar hin 25 ára gamla Nada Maher frá Jabalia-flótta­manna­búð­unum.

Nada með fjölskyldu sinni, áður en stríðið braust út.
Nada með fjöl­skyldu sinni, áður en stríðið braust út.

Ég heiti Nada Maher og er 25 ára gömul palest­ínsk kona úr hjarta Gaza – nánar til­tekið frá Jabalia-búð­unum, sem hafa orðið tákn þján­ingar og seiglu. Ég skrifa þessi orð úr hjarta þjóð­ar­morðs­ins, frá rúst­unum sem áður voru heim­ili, frá þeim sem eftir lifa úr fjöl­skyldum, frá röddum barna sem hvorki eiga til hnífs né skeiðar – né vernd fyrir sprengjuregni.

Ég er ung kona, eins og hver önnur, sem eitt sinn dreymdi um venju­legt líf. Ég átti drauma um fram­tíð, um nám og vinnu, um sjálf­stæði og von. En í stað­inn lifum við nú í þjóð­ar­morði sem sundrar fjöl­skyldum okkar, rænir börnin bernsku sinni og reynir að slökkva það sem enn er eftir af mann­úð­inni í okkur.

Við búum við þjóð­ar­morð sem fer fram fyrir opnum tjöldum – undir augum heims sem þegir. Þögn sem er ekki lengur hlut­leysi, heldur með­sekt. Á hverjum morgni, áður en við …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Raddir Gaza

ViðtalRaddir Gaza

Bakar kleinur fyrir bág­stadda á Gaza – „Getum öll hjálpað“

Að horfa upp á stríð getur verið yfir­þyrm­andi og haft í för með sér mikla van­mátt­ar­kennd. Þrátt fyrir það finnur fólk leiðir til að gefa af sér með óvenju­legum hætti. Sigríður Rósa Sig­urð­ar­dóttir er ein þeirra og styður við og styrkir fólk á Gaza með því að selja kleinur. Hún seg­ist forð­ast það að horfa á fréttir af ástand­inu og skilur ekki hvers vegna ekki sé gripið til aðgerða til að stöðva stríðið – en hún imprar á því að allir geti lagt hönd á plóg til að hjálpa.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár