Ungir fara af leigumarkaði yfir í foreldrahús

Leigu­mark­að­ur­inn hefur dreg­ist nokkuð saman í kjöl­far veiru­far­ald­urs­ins, en tölu­vert lík­legra er að ung­menni búi í for­eldra­húsum nú en fyrir ári síðan.

Fleiri ungir kjósa að búa heima hjá foreldrum sínum í ár heldur en að reyna fyrir sér á leigumarkaðnum.
Fleiri ungir kjósa að búa heima hjá for­eldrum sínum í ár heldur en að reyna fyrir sér á leigu­mark­aðnum. Mynd: Pexels

Fólk á aldr­inum 18-24 ára er að færa sig af leigu­mark­aði og í for­eldra­hús, sam­kvæmt nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS). Rekja má lækkun í vísi­tölu leigu­verðs að hluta til þessa brott­hvarfs ungs fólks, en í skýrsl­unni er einnig leitt að því líkum að aðrir ald­urs­hópar hverfi af leigu­mark­aði í eigið hús­næði.

Ungir líklegir til að verða fyrir kreppunni

Nið­ur­stöður HMS eru úr könnun sem fyr­ir­tækið Zenter lét gera fyrir stofn­un­ina, en sam­kvæmt henni fækkar á leigu­mark­aði í öllum ald­urs­hópum, ef miðað er við breyt­ing­arnar á hlut­falli hvers hóps á leigu­mark­aði milli áranna 2019 og 2020.

Fækkunin er lang­mest á meðal yngsta ald­urs­hóps­ins, sem telur fólk á milli 18 og 24 ára, en þeir eru 16 pró­sentum ólík­legri til að vera á leigu­mark­aði í ár heldur en þeir voru í fyrra. Á sama tíma er fólk í þessum ald­urs­hópi 18 pró­sentum lík­legri til að búa í heima­húsum heldur en þeir voru í fyrra. HMS telur að lík­lega megi tengja þessa breyt­ingu við slæmt atvinnu­á­stand þessa ald­urs­hóps vegna sam­dráttar í ferða­þjón­ustu og tengdum greinum.

„Ald­urs­hóp­ur­inn 25-34 ára er hins vegar að færa sig af leigu­mark­aði yfir í eigið hús­næði, en greina má til­færslu í öllum eldri ald­urs­hópum af leigu­mark­aði yfir í eigið hús­næði, sem er í takt við þróun á fast­eigna­mark­aðnum í kjöl­far vaxta­lækk­ana,“ segir einnig í skýrsl­unni.

Leiguverð lækkar á fermetra

Í heild­inni hefur hlut­fall fólks á leigu­mark­aðnum lækkað eftir að far­ald­ur­inn skall á í vor, úr tæpum 17 pró­sentum niður í tæp 14 pró­sent. Á sama tíma hefur vísi­tala leigu­verðs HMS lækkað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víða ann­ars staðar. Í októ­ber á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var leigan 1,1 pró­senti ódýr­ari heldur en hún var tólf mán­uðum á undan.Hins vegar hefur með­al­fjár­hæð leigu hækkað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sökum þess að fólk leigir nú að með­al­tali í stærri íbúðum heldur en áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár