Eskimo breytir um nafn

Mót­mæla­aldan gegn kyn­þátta­mis­rétti teygir anga sína víða. Meðal ann­ars til Dan­merkur en vin­sæl­ustu íspinnar þar í landi hafa hingað til heitið Eskimo. Annar tveggja stærstu ísfram­leið­enda Dan­merkur gefur íspinn­unum nýtt nafn.

Kassar af Eskimo Pie ís frá Dreyer's. Fyrirtækið hyggst breyta nafni íssins síðar á árinu en nýja nafnið er óákveðið.
Kassar af Eskimo Pie ís frá Dreyer's. Fyr­ir­tækið hyggst breyta nafni íss­ins síðar á árinu en nýja nafnið er óákveðið. Mynd: Wikimedia

Rætur kyn­þátta­mis­réttis víða um heim eiga sér aldagamla sögu. Dauði Banda­ríkja­manns­ins George Floyd í maí hratt af stað mik­illi mót­mæla­öldu, fyrst í Banda­ríkj­unum en síðar víða um lönd, meðal ann­ars í gömlum nýlendu­ríkjum í Evrópu. Styttur af nýlendu­herrum hafa víða verið fjar­lægðar, ann­ars staðar hafa þær verið skemmdar eða fengið yfir sig máln­ing­ar­dembu.

Í Nuuk, höf­uð­stað Græn­lands, hefur um ára­tuga skeið staðið stytta af Hans Egede. Hann kom til Græn­lands árið 1721 þeirra erinda að boða kristna trú. Hann varð lands­stjóri Dana á Græn­landi og margir Græn­lend­ingar líta á hann sem tákn­gerv­ing kúg­unar og und­ir­ok­unar Dana á Græn­lend­ingum gegnum ald­irnar. Styttan stendur hátt og stað­setn­ingin er í hugum margra tákn­ræn: útsend­ari herra­þjóð­ar­innar sem þannig er sífellt minnt á.

Í júní fóru fram kosn­ingar í Nuuk um það hvort styttan skyldi áfram vera á sínum stað eða hvort hún yrði fjar­lægð. Nið­ur­staðan var að styttan skyldi áfram standa á stalli sínum, bæj­ar­stjórn Nuuk tekur hins vegar end­an­lega ákvörðun varð­andi stytt­una í sept­em­ber.

Þegar Hans Egede hóf trú­boðið á Græn­landi þekktu lands­menn ekki brauð, vissu ekki hvað við var átt. Hans Egede gerði þess vegna þá breyt­ingu á Fað­ir­vor­inu að í stað þess að segja „gef oss í dag vort dag­legt brauð,“ sögðu Græn­lend­ingar „gef oss í dag vorn dag­lega sel.“ Það skyldu allir.

Eskimóar, Inúítar, Grænlendingar

Í dönsku orða­bók­inni er orðið eski­mói útskýrt þannig að „það til­heyri hluta þess asíska fólks sem búa á norð­ur­heims­skauts­svæðum Græn­lands.“ Í bók­inni stendur jafn­framt að orðið geti þótt sær­andi eða óvið­eig­andi og Græn­lend­ingar vilji fremur nota orðið Inúíti. En helst ein­fald­lega orðið Græn­lend­ingur, Græn­lend­ingar.

Ekki er full­kom­lega ljóst hvaðan orðið eski­mói er komið. Sumir sér­fræð­ingar í mál­vís­indum telja það dregið af franska orð­inu esquimaux „sá sem borðar hrátt kjöt,“ aðrir að orðið komi úr máli þjóð­flokks í Quebec og Labrador og þýði „sá sem gerir snjó­þrúgur.“

Inúíti er talið komið úr tungu­málum frum­byggja á Norð­ur­slóðum, þar á meðal Græn­landi. Orðið Inúíti þýðir mann­eskja eða fólkið og er í dag eins­konar sam­heiti þjóð­flokka í mörgum löndum á norð­lægum slóðum. En eins og áður var nefnt vilja Græn­lend­ingar kenna sig við land sitt.

Ísinn

Danir eru, að eigin sögn, mikil ísþjóð, borða mik­inn ís. Sölu­tölur stað­festa þetta. Helm­ingur þess íss sem Danir neyta er inn­fluttur en af dönskum fram­leið­endum er Mejerigaar­den sem fram­leiðir ís undir nafn­inu Premier stærstur, þar vinna 145 manns við fram­leiðsl­una. Aðrir stórir danskir ísfram­leið­endur eru Hansen, Vebbestrup og Ryaa is. Frisko var lengi vel meðal stærstu ísfram­leið­enda í Danmörku en fyr­ir­tækið er ekki lengur í danskri eigu og ísinn fram­leiddur í öðrum löndum.

Efstur á ísvin­sælda­list­anum í Danmörku er pinni. Vanilluís með súkkulaði­hjúp og inni í ísnum er sól­berjasósa. Ísfram­leið­andi sem ekki býður upp á svona íspinna þarf ekki að gera sér vonir um lang­lífi á dönskum mark­aði. Áður­nefndir íspinnar ganga, hver sem fram­leið­and­inn er, undir heit­inu Eskimo og stærri útgáfan Kæmpe Eskimo. Einn fram­leið­andi reyndi fyrir mörgum árum að fá einka­leyfi á Eskimo nafn­inu, en fékk ekki.

Reyndar er Eskimo nafnið á íspinnum ekki ein­skorðað við Danmörku, í Banda­ríkj­unum hefur fyr­ir­tækið Dreyers um nær hund­rað ára skeið fram­leitt íspinna undir heit­inu Eskimo pie. Dreyers hefur nú til­kynnt að síðar á þessu ári verði heiti þessa vin­sæla íspinna breytt, en nýja nafnið hefur ekki verið til­kynnt.

Hvað gera Danir?

Eins og nefnt var hér að framan hefur orðið eski­mói lengi verið umdeilt í Danmörku. Þótt margir hafi verið ósáttir við orðið hefur það fram til þessa litlu breytt. En nú er öldin önnur, að minnsta kosti hvað ísinn varðar.

Hansens Is hefur til­kynnt að Eskimo íspinn­arnir fái brátt nýtt nafn. Nýja nafnið er O‘Payo. Nafnið er dregið af kakó­baun­unum sem not­aðar eru í hjúp­inn á ísnum, baun­irnar eru keyptar frá Nicaragua. Aðrir ísfram­leið­endur í Danmörku hafa ekki ákveðið hvort nafn­inu á íspinn­unum verði breytt, í við­tali við danska útvarpið, DR, sögðu tals­menn nokk­urra fyr­ir­tækja að málið væri í athugun.

Græn­lend­ingar, búsettir í Danmörku, hafa lýst mik­illi ánægju með ákvörðun Hansens Is og skora á aðra ísfram­leið­endur að gera slíkt hið sama.

Danska Þjóðminjasafnið breytir sýningarheiti

Í danska þjóð­minja­safn­inu er sér­stök deild um Grænland, sögu þess og íbúa lands­ins. Þessi deild, sem að stofni til er frá árinu 1992, hefur hingað til gengið undir nafn­inu ,,Eskimoer og Grønland“ en heit­inu verður nú breytt. Hefur reyndar lengi staðið til. Græn­lenskur þing­maður sem Kristeligt Dagblad ræddi við sagð­ist fagna þess­ari breyt­ingu, sem væri löngu tíma­bær. Morten Messerschmidt, þing­maður Danska Þjóð­ar­flokks­ins, sem blaðið ræddi líka við, sagði yfir­menn þjóð­minja­safns­ins rolur (pjok) sem hlaupi eftir því hvernig vind­ur­inn blæs. Rane Willerslev yfir­maður safns­ins sagði þessi orð þing­manns­ins dæma sig sjálf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár