Ásmundur Einar og Lilja leiða fyrir Framsókn í Reykjavík

Brynja Dan Gunn­ars­dóttir verður í öðru sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Flokk­ur­inn náði ein­ungis einum þing­manni inn úr báður höf­uð­borg­ar­kjör­dæm­unum í síð­ustu kosn­ingum.

Framvarðarsveit Framsóknarflokksins í Reykjavík í komandi kosningum.
Fram­varð­ar­sveit Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík í kom­andi kosn­ingum. Mynd: Aðsend

Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, mun áfram leiða Fram­sókn­ar­flokk­inn í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður í kom­andi þing­kosn­ingum. Hún sat í sama sæti í kosn­ing­unum haustið 2017 og varð þá síð­asti kjör­dæma­kjörni þing­maður kjör­dæm­is­ins eftir að hafa hlotið 8,1 pró­sent atkvæða þar. Í öðru sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík suður verður Aðal­stein Haukur Sverr­is­son, fram­kvæmda­stjóri, en hann sat í tíunda sæti á lista flokks­ins í kjör­dæm­inu fyrir tæpum fjórum árum síðan.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, leiðir lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður en hann ákvað fyrir nokkru að færa sig um kjör­dæmi eftir að hafa verið odd­viti Fram­sókn­ar­flokks í Norð­vest­ur­kjör­dæmi síð­ast þegar kosið var. Í öðru sæti á lista Fram­sóknar í norð­ur­hluta höf­uð­borg­ar­innar situr Brynja Dan Gunn­ars­dóttir, frum­kvöð­ull og fram­kvæmda­stjóri sem stendur meðal ann­ars að rekstri Extra­lopp­unnar. Framsókn var langt frá því að ná inn kjör­dæma­kjörnum manni í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í síð­ustu þing­kosn­ingum þegar flokk­ur­inn fékk ein­ungis 5,3 pró­sent atkvæða þar. Þá leiddi Lárus Sigurður Lárusson lög­maður lista flokks­ins.

[adspot]Listar Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík voru sam­þykktir á auka kjör­dæma­þingi á Hilton Hóteli í kvöld en næstu Alþing­is­kosn­ingar fara fram 25. sept­em­ber.

Í þriðja sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður er Sigrún Elsa Smára­dóttir, fram­kvæmda­stjóri og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi, í fjórða sæti er Íris E. Gísla­dóttir, frum­kvöð­ull í mennta­tækni og í fimmta sæti er Þor­valdur Dan­í­els­son, stofn­andi Hjóla­krafts og MBA.

Í norð­ur­hlut­anum er Þórunn H. Svein­björns­dóttir, frá­far­andi for­maður Lands­sam­bands eldri borg­ara, í þriðja sæti, í fjórða sæti er Gauti Grét­ars­son sjúkra­þjálf­ari og í fimmta sæti er Magnea Gná Jóhanns­dóttir, laga­nemi.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mæld­ist með 10,1 pró­sent fylgi í síð­ustu könnun Gallup og dróst fylgi flokks­ins saman um eitt pró­sentu­stig milli mán­aða. Hann fékk 10,7 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017 sem er það minnsta sem þessi tæp­lega 105 ára gamli flokkur hefur nokkru sinni fengið í sögu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár