Margt skrýtið í danska kýrhausnum

Der er noget galt í Danmark heitir þekkt danskt lag. Þessi tit­ill ætti kannski vel við mál dansks athafna­manns sem fékk millj­ónir í styrki en var á sama tíma dæmdur í háar fjár­sektir, og fang­elsi.

Burger King-verslun á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn
Burger King-verslun á Ráð­hús­torg­inu í Kaup­manna­höfn Mynd: Shutterstock

Líklega kann­ast fáir les­endur Kjarnans við Riaz Butt, 63 ára athafna­mann, búsettan í Danmörku. Nafn hans hefur ekki heldur verið á hvers manns vörum í heima­land­inu og stundum hefur hann verið kall­aður huldu­mað­ur­inn í dönsku atvinnu­lífi.

Riaz Butt hefur verið eig­andi fjöl­margra veit­inga­staða í Kaup­manna­höfn, Hró­arskeldu og víðar í Danmörku. Sömu­leiðis á hann að minnsta kosti eitt keilu­hús ásamt hót­eli. Þekkt­ustu veit­inga­stað­irnir undir stjórn Riaz Butt eru án vafa Burger King, en átta slíkir voru í hans eigu í Danmörku.

Fyr­ir­komu­lagið á rekstri Burger King í Danmörku, eins og víð­ast hvar, er með þeim hætti að til­tek­inn ein­stak­lingur, eða fyr­ir­tæki hefur rekstr­ar­leyfi sem móð­ur­fyr­ir­tækið, í þessu til­viki í Banda­ríkj­unum, hefur samið um. Útlit stað­anna fylgir ákveðnum reglum, sem móð­ur­fyr­ir­tækið hefur ákveðið og sama gildir um mat­seð­il­inn. Leyf­is­haf­inn greiðir svo sér­stakt gjald til móð­ur­fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta fyr­ir­komu­lag er alþekkt. Sá sem ræður yfir rekstr­ar­leyf­inu getur svo samið við svo­nefnda und­ir­verk­taka um rekst­ur­inn á einum eða fleiri stöðum.

Umfangsmikil rannsókn

Snemma árs 2016 hafði lög­reglan fengið veður af því að sitt­hvað í rekstri fyr­ir­tækja Riaz Butt sam­ræmd­ist ekki lögum og reglum. 1. mars gerði lög­reglan mikla „rassíu“ í fyr­ir­tækjum Riaz Butt, hald var lagt á tölvur, far­síma og skjöl. Í kjöl­farið hófst svo umfangs­mikil rann­sókn á rekstr­inum. Rann­sóknin spann­aði þriggja ára tíma­bil, frá 2013 til 2016. Lög­reglan komst fljótt að því að grun­ur­inn um óhreint mjöl í poka­horni athafna­manns­ins átti við rök að styðj­ast. [adspot]

Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var í stuttu máli sú að Riaz Butt og sex sam­starfs­menn hans hefðu gerst brot­legir við lög. Svindlið fór meðal ann­ars þannig fram að, á papp­írum, var starfs­fólk veit­inga­stað­anna, hót­els­ins og keilu­húss­ins skráð hjá starfs­manna­leigum (vik­ar­bur­eauer) sem í reynd voru skúffu­fyr­ir­tæki, skrald­espandsselska­ber. Eigandi þess­ara skúffu­fyr­ir­tækja, sem voru fimm, var einn sam­starfs­manna Riaz Butt, Ali Hashem að nafni. Þessi fyr­ir­tæki stóðu ekki skil á sköttum og gjöldum, og fóru svo á haus­inn, og áttu öll sam­eig­in­legt að „engar eignir fund­ust í búinu“.

Auk þess fann lög­reglan fjöld­ann allan af „heima­til­búnum“ reikn­ingum, vegna vinnu iðn­að­ar­manna, en sú vinna hafði aldrei átt sér stað. Fleira af svip­uðu tagi fannst í bók­hald­inu, allt gert í þeim til­gangi að búa til frá­drátt og lækka þannig virð­is­auka­skatts­greiðslur. Peningar, sem skúffu­fyr­ir­tækin drógu af starfs­fólk­inu, vegna skatta, voru fluttir úr landi og sama gilti um launa­tengd gjöld.

Rétt er að geta þess að móð­ur­fyr­ir­tæki Burger King hefur sagt upp sam­ingum við Riaz Butt.

Dómarnir

Það tók sér­fræð­inga lög­regl­unnar langan tíma að kom­ast til botns í öllum þeim gögnum sem hún hafði lagt hald á. Nið­ur­staðan var sú að sam­tals hefðu skatt­svik fyr­ir­tækja Riaz Butt numið rúmum 29 millj­ónum danskra króna (600 millj­ónir íslenskar).

Dómur í máli Riaz Butt var kveð­inn upp 3. júlí í fyrra við bæj­ar­rétt­inn á Frederiks­berg. Dómurinn hljóðar upp á tveggja og hálfs árs fang­elsi og jafn­framt skal Riaz Butt borga 9,8 millj­ónir (200 millj­ónir íslenskar) í sekt. Sam­starfs­menn hans fengu sömu­leiðis dóma, mis­þunga. Einn þeirra, erlendur rík­is­borg­ari, var dæmdur í fjög­urra ára fang­elsi og verður vísað úr landi að lok­inni afplánun. Riaz Butt áfrýj­aði dóm­inum til Lands­réttar en ekki liggur fyrir hvenær dómur þar verður kveð­inn upp.

Dómarnir vöktu ekki sér­staka athygli í Danmörku en það gerðu hins­vegar fréttir sem nýlega birt­ust í dönskum fjöl­miðlum.

Naut góðs af tekjufallsstyrkjum

Fyrir nokkrum dögum greindu danskir fjöl­miðlar frá því að á tíma­bil­inu 15. apríl til 16. júní á síð­asta ári hefði Riaz Butt mót­tekið 2,8 millj­ónir danskra króna (57 millj­ónir íslenskar) í tekju­falls­styrki. Þetta var á meðan skulda­mál hans var fyrir rétti. Síðar, eftir að dómur í máli hans féll, fékk hann greiddar 670 þús­und krónur (14 millj­ónir íslenskar) í bætur vegna fastra útgjalda Burger King veit­inga­stað­anna. Sem þá, vel að merkja, voru ekki lengur í hans höndum.

Samtals hefur Riaz Butt því fengið um það bil jafn­gildi 71 millj­óna íslenskra króna úr sjóðum danska rík­is­ins. Fyrir liggur að þessir pen­ingar hafa allir verið fluttir úr landi, inn á reikn­ing hjá breska net­bank­anum Revolut. Ekki ein ein­asta króna hefur verið notuð til að bjarga rekstri Burger King, en það var til­gang­ur­inn með tekju­falls­styrkj­unum.

Ekki eina tilvikið

Frétt­irnar af tekju­fall­styrkj­unum til Riaz Butt hefur orðið til þess að vekja athygli á fyr­ir­komu­lagi þess­ara styrk­veit­inga. Samtök danskra end­ur­skoð­enda, FSR, hafa fyrir nokkrum dögum birt skýrslu um efna­hagsaf­brot í Danmörku. Myndin sem þar er dregin upp er dökk. Á síð­asta ári hafi rann­sókn­ar­nefnd gegn pen­inga­þvætti (Hvidvasksekret­ari­atet) fengið 4500 til­kynn­ingar vegna gruns um svindl í tengslum við tekju­falls­styrki og aðra hjálp­ar­pakka stjórn­valda. Charlotte Jepsen, fram­kvæmda­stjóri SFR, sagð­ist, í við­tali við dag­blaðið Information, ótt­ast að þetta væri aðeins topp­ur­inn á ísjaka­naum. Greini­legt væri að stjórn­völd þurfi að setja mun skýr­ari reglur og sam­ræma eft­ir­lit.

Þingmenn eru ósáttir

Margir þing­menn hafa tekið undir það álit fram­kvæmda­stjóra SFR, að eft­ir­lit varð­andi aðstoð hins opin­bera þurfi að bæta. Það nái ekki nokk­urri átt að maður sem var fyrir rétti, vegna skattsvika fái millj­ónir greiddar úr opin­berum sjóðum, jafn­vel eftir að hann hefur hlotið dóm. „Það ætti að minnsta kosti að vera hægt að geyma pen­ing­ana á vörslu­reikn­ingi (deponere) þangað til end­an­legur dómur hefur verið kveð­inn upp“ sagði Rune Lund þing­maður Ein­ing­ar­list­ans í blaða­við­tali.

Riaz Butt hefur ekki viljað tjá sig við fjöl­miðla á meðan mál hans er fyrir Lands­rétti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár