Spyr hvar grænu efnahagsaðgerðirnar séu

Stjórn­ar­þing­maður telur að stuðn­ingur rík­is­ins verði að vera mark­viss­ari – og meira um grænar fjár­fest­ingar, græna og sjálf­bæra upp­bygg­ingu ferða­þjón­ust­unnar og umhverf­is­vænar lausnir í mat­væla­fram­leiðslu.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður VG, segir það vera von­brigði að frum­vörpum sem snú­ast um umhverf­is­mál hafi verið frestað fram á haust­þing og spyr hvar grænu efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar séu. Umhverf­is­málum megi ekki vera ýtt til hliðar út af COVID-19 eða öðru, heldur þvert á móti, eigi þau að vera í for­grunni „akkúrat núna á svona tímum“. Þetta sagði hún í dag­skrár­liðnum störf þings­ins í dag.

„Það blasa við okkur risa­vaxnar áskor­anir í efna­hags­líf­inu og í hag­kerf­inu. Tug­þús­undir manna eru á atvinnu­leys­is­skrá og spáð er rúm­lega 7 pró­sent sam­drætti hag­vaxtar hér á landi á þessu ári. Grunnatvinnu­grein Íslend­inga síð­ast­liðin ár, ferða­þjón­ustan, er nán­ast eins og sviðin jörð. En nú er lag að byggja upp ferða­þjón­ustu á ný sem grund­vall­ast á nátt­úr­unni, umhverf­is­vernd og sjálf­bærni.

Í öllum efna­hags­að­gerða­björg­un­ar­pökkum rík­is­stjórn­ar­innar er afar mik­il­vægt að rík­is­valdið stígi inn í upp­bygg­ing­una eins og hefur verið gert en aðgerðir verði skil­virkar og opin­ber stuðn­ingur skil­yrtur við sið­ferði­lega við­skipta­hætti og sjálf­bæran rekstur, félags­lega jafnt sem umhverf­is­lega,“ sagði hún.

Stuðningur ríkisins verður að vera markvissari

Rósa Björk telur það skipta miklu máli að Íslend­ingar detti ekki af leið fram­sýnna umhverf­is­vænna lausna við þá upp­bygg­ingu sem er í vændum. „Þannig að við höldum fast í skuld­bind­ingar okkar við Par­ís­ar­sam­komu­lagið en frestum þeim ekki, finnum efna­hags­legan far­veg, hvata og lausnir fyrir sjálf­bæra og græna atvinnu­upp­bygg­ingu.“

Þá sagði hún að stuðn­ingur rík­is­ins yrði að vera mark­viss­ari og meira um grænar fjár­fest­ingar, græna og sjálf­bæra upp­bygg­ingu ferða­þjón­ust­unnar, umhverf­is­vænar lausnir í mat­væla­fram­leiðslu, tækninýj­ungum og grænt hug­vit í orku­geir­anum og græna nýsköpun. Áfram­hald­andi aðgerðir til að sporna við lofts­lags­breyt­ingum yrðu að vera stærri hluti af efna­hags­upp­bygg­ing­unni „eins og við sjáum í lönd­unum í kringum okkur þar sem áhersla á grænar lausnir við end­ur­reisn efna­hags­lífs­ins er mjög skýr og sterk“.

Ýmsir kalla eftir því að einblínt verði á grænar fjárfestingar

Rósa Björk benti enn fremur á að fjöl­mennur evr­ópskur hópur þing­manna og ráð­herra, for­stjórar stórra evr­ópskra fyr­ir­tækja og leið­togar verka­lýðs­hreyf­inga í Evrópu hefðu kallað opin­ber­lega eftir því að ein­blínt væri á grænar fjár­fest­ingar og líf­fræði­lega fjöl­breytni til að hefja aftur efna­hags­legan vöxt í álf­unni. „En ég verð að játa að ég sakna skýr­ari stefnu rík­is­stjórn­ar­innar um græna efna­hags­upp­bygg­ingu sem byggir á sjálf­bærri og umhverf­is­vænni end­ur­reisn og við­snún­ing.“

Þing­mað­ur­inn hvatti að lokum Guðmund Inga Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra til dáða í þessum efnum og hét honum stuðn­ingi við þessa vinnu. „Leggjum lín­urnar um hvernig sam­fé­lag við viljum byggja upp hér. Það sam­fé­lag verður að vera byggt upp með mann­úð­legum og grænum lausnum til fram­tíðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár