Tíu staðreyndir um stöðu mála í íslensku efnahagslífi í COVID-19 faraldri

COVID-19 er tví­þættur far­aldur. Í fyrsta lagi er hann heil­brigð­isvá. Í öðru lagi þá hefur hann valdið gríð­ar­legum efna­hags­legum skaða. Hér er farið yfir helstu áhrif hans á íslenskt efna­hags­líf.

1. Þetta er djúp kreppa

Sá sam­dráttur sem búist er við að verði á þessu ári verður sá mesti sem mælst hefur á einu ári hér­lendis síðan árið 1920 og umtals­vert meiri enn sá sem varð eftir banka­hrunið, en árið 2009 dróst hag­vöxtur saman um 6,8 pró­sent. Seðla­banki Íslands er svart­sýnni á stöð­una nú en hann var í ágúst. Ástæðan þess er þriðja bylgja COVID-19 smita í haust sem leiddu af sér hertar sótt­varnir. Sú staða dró úr við­spyrnu í efna­hags­líf­inu. Þess vegna spáir Seðla­bank­inn nú 8,5 pró­sent sam­drætti á árinu 2020, sem er ríf­lega einu pró­sentu­stigi meiri en hann gerði í ágúst.

2. Vöruviðskipti hafa dregist mikið saman

Íslend­ingar flytja aðal­lega út tvenns­konar vörur sem seldar eru fyrir gjald­eyri, sjáv­ar­af­urðir og raf­orku sem seld er til erlendra fyr­ir­tækja sem reka stór­iðju­starf­semi á Íslandi. Um 80 pró­sent af allri raf­orku sem fram­leidd er á land­inu fer til slíkra stór­kaup­enda. Á fyrstu átta mán­uðum árs­ins dróst vöru­út­flutn­ingur okkar í greiðslu­jöfn­uði saman um 10,7 pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra. Í fyrra voru þau um 438,6 millj­arðar króna en í ár hafa þau verið 391,5 millj­arðar króna. Þar munar um 47,1 millj­arð króna á milli ára. Bæði orku­fyr­ir­tæki lands­ins og útgerðir þess eru þó í góðri stöðu til að standa af sér þetta ástand.

3. Ferðaþjónustusamdrátturinn bítur hart

Þjón­ustu­við­skipti Íslend­inga, sem eru aðal­lega sala á ferða­þjón­ustu til útlend­inga, hafa dreg­ist saman um 45,9 pró­sent á fyrstu átta mán­uðum árs­ins miðað við sama tíma­bil í fyrra. Þá voru tekjur af útfluttri þjón­ustu 456,6 millj­arðar króna en frá byrjun árs og út ágúst voru þær 247 millj­arðar króna. Þar munar tæp­lega 210 millj­örðum króna. Helsta birt­ing­ar­mynd þessa sam­dráttar er nær algjört tekju­fall í ferða­þjón­ustu­geir­anum og fjölda­at­vinnu­leysi innan hans.

4. Ríkissjóður í miklu tapi

Halli á rekstri rík­is­sjóðs í ár verður 269,2 millj­arðar króna. Það er mesti halli sem nokkru sinni hefur verið á rekstri hans. Fjárlög fyrir árið 2020 gerðu ráð fyrir tíu millj­arða króna halla þegar þau voru sam­þykkt í nóv­em­ber 2019.

Á næsta ári verður staðan nán­ast sú sama. Áætlaður halli er 264,2 millj­arðar króna. Á tveimur árum verða tekjur rík­is­sjóðs því 533,4 millj­örðum krónum lægri á árunum 2020 og 2021 en útgjöld hans. Þessi munur verður fjár­magn­aður með lán­tökum.

Til sam­an­burðar má nefna að hall­inn á rekstri rík­is­sjóðs árið 2008, þegar banka­hrunið varð, nam 194 millj­örðum króna. Mesti tekju­af­gangur sög­unnar varð árið 2016, þegar að tekjur voru 302 millj­örðum króna meiri en útgjöld í kjöl­far þess að slitabú fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja greiddu stöð­ug­leika­fram­lög í rík­is­sjóð.

5. 11.444 störf hafa tapast að öllu leyti

Í jan­ú­ar­lok voru 8.808 skráðir atvinnu­lausir hér á landi. Í lok októ­ber voru 20.252 að öllu leyti atvinnu­lausir og auk þess 4.759 í hluta­bóta­vinnu. Þannig hafa 11.444 störf hafi tap­ast að öllu leyti og 16.203 að öllu eða ein­hverju leyti. Flest störfin sem hafa tap­ast eru í ferða­þjón­ustu. Rík­is­stjórnin kynnti á föstu­dag að grunnatvinnu­leys­is­bætur verði hækk­aðar um alls 6,2 pró­sent á næsta ári og verði 307 þús­und krónur.

Þessi hópur hefur orðið harð­ast fyrir barð­inu á efna­hags­legum áhrifum COVID-19, sá sem misst hefur störf og þar með kaup­mátt. At­vinnu­leysið er lang­mest á Suð­ur­nesjum þar sem það mæld­ist í heild 21,2 pró­sent í októ­ber. Almenna atvinnu­leysið þar mæld­ist 20,1 pró­sent en 1,1 pró­sentu­stig bætt­ist við vegna hluta­bóta­leið­ar­inn­ar.

Heild­ar­at­vinnu­leysi á meðal erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi var um 25 pró­sent í októ­ber og almenna atvinnu­leysið um 22 pró­sent. Það þýðir að hefð­bundnir atvinnu­leit­end­ur, þ.e. þeir sem voru í almenna bóta­kerf­inu en ekki á hluta­bóta­leið­inni, í hópi erlendra rík­is­borg­ara voru 8.204 tals­ins í lok síð­asta mán­að­ar. Því eru 41 pró­sent allra atvinnu­lausra á land­inu erlendir rík­is­borg­ar­ar. Í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins voru erlendir rík­is­borg­arar sem búa hér­lendis 51.120 tals­ins, eða tæp­lega 14 pró­sent íbúa lands­ins.

6. Atvinnuleysið á eftir að aukast

Vinnu­mála­stofnun spáir því að almennt atvinnu­leysi eigi eftir að aukast næstu vikur og verði komið upp í 11,3 pró­sent í lok árs 2020. Það var 9,9 pró­sent í lok októ­ber og náði þar með að klifra yfir mesta atvinnu­leysið sem varð á Íslandi eftir banka­hrunið 2008, en í febr­úar og mars 2009 mæld­ist það 9,3 pró­sent. Alþýðu­sam­band Íslands birti fyrr í mán­uð­inum hag­spá sína fyrir tíma­bilið 2020-2022. Þar er spáð að atvinnu­leysi hald­ist yfir 6,9 pró­sent út tíma­bilið þrátt fyrir spá um hóf­legan 1,8 pró­sent hag­vöxt á næsta ári. Spá ASÍ gerði ráð fyrir að atvinnu­leysi myndi verða 8,6 pró­sent á næsta ári. Því er við­búið að lang­tíma­at­vinnu­lausum fjölgi mikið í nán­ustu fram­tíð, en alls höfðu 3.614 hefð­bundnir atvinnu­leit­endur verið án atvinnu í meira en 12 mán­uði í lok októ­ber. Þeim hafði þá fjölgað um 2.148 á einu ári eða um tæp­lega 150 pró­sent.

7. Þeir sem halda störfum hagnast á ástandinu

Innlán heim­ila í banka­kerf­inu hafa auk­ist mikið í kjöl­far COVID-19-far­sótt­ar­innar, en það þýðir að fólk sem er með fé á milli hand­anna er ekki að eyða því eins og áður. Þau juk­ust til að mynda um ell­efu pró­sent milli ára á þriðja fjórð­ungi árs­ins. Almennar launa­hækk­anir, minni neyslu­út­gjöld sam­hliða sótt­varn­ar­að­gerðum, aðgerðir til að styðja við heim­ilin í tengslum við far­ald­ur­inn skipta þar máli. Eða eins og Seðla­banki Íslands segir í nýjasta riti Pen­inga­mála þá hefur mikil óvissa „leitt til auk­innar var­kárni heim­ila í útgjalda­á­kvörð­unum og áhrif efna­hags­á­falls­ins eru lík­lega ekki komin fram hjá þeim sem orðið hafa fyrir tekju­falli nema að tak­mörk­uðu leyti vegna ýmissa stuðn­ings­að­gerða stjórn­valda. Sparn­aður heim­ila hefur því vaxið veru­lega und­an­farna mán­uði.“

8. Húsnæðisverð hækkar skarpt

Þá hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem tveir af hverjum þremur lands­mönnum búa, hækkað um 5,2 pró­sent síð­ast­liðna tólf mán­uði. Nú er með­al­sölu­tími nýrra íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 65 dagar. Á fyrstu átta mán­uðum árs­ins mæld­ist árs­hækkun í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins 3,9 pró­sent en ann­ars staðar á lands­byggð­inni mæld­ist 2,4 pró­sent lækkun þegar miðað er við vísi­tölu paraðra við­skipta.

Helsta ástæða þessa er sú að það er orðið miklu ódýr­ara að taka pen­inga að láni eftir að stýri­vaxta­lækk­anir Seðla­banka Íslands (bank­inn hefur lækkað vexti niður í 0,75 pró­sent). Breyt­i­­legir óverð­­­tryggðir vextir á hús­næð­is­lánum Lands­­­bank­ans og Íslands­­­banka eru nú til að mynda 3,5 pró­­­sent. Á sam­­­­bæri­­­­legum lánum hjá Arion banka eru vext­irnir 3,54 pró­­­­sent. Í upp­­­hafi árs í fyrra voru breyt­i­­­legir óverð­­­tryggðir vextir bank­anna á bil­inu sex til 6,6 pró­­­sent. Þeir sem hafa haldið vinn­unni, og eru með láns­hæfi, hafa því líka notið efna­hags­lega góðs af þessu ástandi.

9. Búist við hægari bata á næsta ári

Þrátt fyrir jákvæðar fréttir af bólu­efni gerir sú mikla óvissa um efna­hags­horfur sem er uppi vegna far­sótt­ar­innar það að verkum að Seðla­banki Íslands hefur breytt spá sinni um hag­vöxt á næsta ári. Nú telur hann að hag­vöxt­ur­inn verði 2,3 pró­sent en í ágúst spáði bank­inn að hag­vöxtur yrði 3,4 pró­sent á árinu 2021. Helsta ástæða þessa er sú að Seðla­bank­inn telur að færri ferða­menn komi til lands­ins á næsta ári en áður var reiknað með. Í for­sendum fjár­laga er gengið út frá því að þeir verði 900 þús­und á árinu 2021 en Seðla­bank­inn telur að þeir verði 750 þús­und. Þetta mun leiða til þess að atvinnu­leysi mun aukast meira og verða þrá­lát­ara.

10. Töluvert í að hagkerfið nái fyrri styrk

Seðla­banki Ísland telur að það verði kröft­ugur hag­vöxtur á árunum 2022-2023 en að fram­leiðslu­stig árs­ins 2019 muni ekki nást fyrr en árið 2023. Það er því nokkuð í það, sam­kvæmt spá Seðla­bank­ans, að Ísland nái þeirri stöðu sem var uppi fyrir COVID-far­ald­ur­inn.

Þá á enn eftir að borga fyrir allan þann kostnað sem fylgir því að reka rík­is­sjóð í met­halla árum saman. Áætlanir stjórn­valda nú gera ráð fyrir að skulda­söfn­unin stöðv­ist við 59 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu árið 2025 og taki svo að lækka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár