Ná sáttum um stjórnarmenn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna

VR hefur náð sam­komu­lagi við Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna um að þeir stjórn­ar­menn sem nú sitja í stjórn­inni í nafni VR munu láta af störfum og í stað þeirra munu þeir stjórn­ar­menn sem VR skip­aði í síð­ustu viku taka sæti í stjórn­inni.

VR hefur náð sam­komu­lagi við Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna og frá­far­andi stjórn­ar­menn líf­eyr­is­sjóðs­ins sem til­nefndir voru af VR. Þeir stjórn­ar­menn sem nú sitja í stjórn­inni í nafni VR munu láta af störfum og í stað þeirra taka sæti í stjórn­inni nýir stjórn­ar­menn sem skip­aðir voru af VR þann 14. ágúst síð­ast­lið­inn. Dómsmál VR gegn Fjár­mála­eft­ir­lit­inu vegna máls­ins hefur jafn­framt verið fellt niður. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá VR.

Skipuðu nýja stjórnarmenn í síðustu viku

[links]Á fundi sem hald­inn var í full­­­­­­­­­trú­a­ráð­i VR í Líf­eyr­is­­­­­­­­­sjóð­i verzl­un­ar­manna ­í júní síð­­­­­ast­liðnum var sam­­­­­­­­­þykkt að aft­­­­­­­­­ur­­­­­­­­­kalla umboð stjórn­­­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­­­­­­­­sjóðs verzl­un­ar­manna og var að auki sam­­­­­­­­­þykkt til­­­­­­­­­laga um nýja stjórn­­­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­menn til­­­­­­­ bráða­birgða. Áður­­­­­­­ hafði stjórn­­­­­­­ VR­­­ lýst yfir trún­­­­­­­­­að­­­­­­­­­ar­bresti gagn­vart stjórn­­­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­mönnum félags­­­­­­­­­ins hjá sjóðnum vegna sam­­­­­­­­­þykktar stjórnar hans um hækkun breyt­i­­­­­­­­­legra vaxta verð­­­­­­­­­tryggðra sjóð­­­­­­­­­fé­laga­lána sem gengur í ber­högg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxta­­­­­­­­lækk­­­­­­­­­­­­­­­­­anir í nýgerðum kjara­­­­­­­­samn­ing­i.


Greint var frá því í fréttum í byrjun júlí að Fjár­­­mála­eft­ir­litið teldi aft­­­ur­köllun á til­­­­­nefn­ingu stjórn­­­­­ar­­­manna sjóða vega að sjálf­­­stæði stjórna þeirra. VR sætti sig ekki við þetta heldur stendi Fjár­­­mála­eft­ir­lit­inu í lok júlí síð­­ast­lið­ins fyrir að við­­ur­­kenna ekki lög­­­­­­mæti ákvörð­unar full­­­­trú­a­ráðs VR um að aft­­­­ur­­­­kalla umboð stjórn­­­­­­­ar­­­­manna í Líf­eyr­is­­­­sjóði verzl­un­ar­manna.

Í síð­ustu viku skip­aði stjórn VR svo nýja stjórn­ar­menn til bráða­birgða. Þeir eru Guð­rún Johnsen, Bjarni Þór Sig­­urðs­­son, Helga Ing­­ólfs­dóttir og Stefán Svein­­björns­­son.

Fallast á sjónarmið um inngrip í sjóðsstjórnir

Í til­kynn­ingu VR er greint frá því að VR fall­ist á það sjón­ar­mið sem fram hafa komið af hálfu líf­eyr­is­sjóðs­ins og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um að óæski­legt sé að þeir sem fari með vald til til­nefn­ingar í stjórn sjóðs­ins hlut­ist til um ákvarð­anir sjóðs­stjórnar með því að skipta út stjórn­ar­mönnum áður en kjör­tíma­bili þeirra lýkur og vonar að slík inn­grip heyri nú sög­unni til.

Dómsmál VR gegn Fjár­mála­eft­ir­lit­inu hefur verið fellt niður í kjöl­farið. Í mál­inu stefndi VR Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna og gerði verka­lýðs­fé­lagið kröfu um að dæmd verði ógild ákvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins frá 3. júlí 2019 þess efnis að stjórn­ar­menn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna sem til­kynntir voru til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins þann 23. mars 2019, væru enn stjórn­ar­menn líf­eyr­is­sjóðs­ins.

„VR lýsir yfir mik­illi ánægju með þessi mála­lok enda nauð­syn­legt að ljúka deilu VR við sjóð­inn og Fjár­mála­eft­ir­litið sem fyrst og koma ró á starf­semi sjóðs­ins. Allir aðilar hafa haft hags­muni sjóðs­ins í fyr­ir­rúmi og þessi mála­lok eru gerð í sátt allra aðila með fram­tíð sjóðs­ins að leið­ar­ljósi,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár