Það er neyðarástand á húsnæðismarkaði og það er ekki að fara að lagast

Hús­næð­is­mál voru eitt helsta kosn­inga­málið fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar, sem fram fóru árið 2013. Þau voru líka í algjöru aðal­hlut­verki í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, sér­stak­lega í höf­uð­borg­inni Reykja­vík. Ástæðan er ein­föld: stór og sístækk­andi hópur lands­manna á í miklum erf­ið­leikum með að koma þaki yfir höf­uðið.

Ástæður þessa eru nokkrar og sam­verk­andi. Hér hefur verið byggt allt of lítið á und­an­förnum árum, þær íbúðir sem byggðar hafa verið eru of stórar og dýrar fyrir þann hóp sem er mest þurf­andi, fjár­magns­höftin og gróða­vonin hafa ýtt fag­fjár­festum út í risa­vaxin upp­kaup á íbúða­hús­næði, hertar lána­reglur gera meðal­jón­inum erf­ið­ara fyrir að stand­ast greiðslu­mat og svo eru það auð­vitað ferða­menn­irnir. Stór hluti þeirra litlu og með­al­stóru íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem áður voru á almennum leigu­mark­aði eru nú fyrst og síð­ast leigðar til ferða­manna fyrir mun hærra verð en áður fékkst fyrir þetta.

Allt þetta hefur þrýst hús­næð­is­verði hratt upp. Og leigu­verði jafn­vel enn hraðar, með þeim afleið­ingum að jafn­vel með­al­tekju­fólk á Íslandi er á hrak­hólum milli allt of dýrra leigu­í­búða vegna þess að það sér sér ekki fært að leggja til hliðar fyrir útborgun á sama tíma og það greiðir þorra ráð­stöf­un­ar­tekna sinna í hús­næð­is­kostnað á leigu­mark­aði.

Það ríkir neyð­ar­á­stand á íslenskum hús­næð­is­mark­aði. Og það er stjórn­valda að bregð­ast við því neyð­ar­á­standi með ein­hverjum hætti. Mikið er talað, bæði hjá ríki og borg, en er það að skila ein­hverju?

Lofað upp í ermina á sér


Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks er eitt áherslu­mál efst á blaði: Heimilin. Það áherslu­mál snérist raunar fyrst og fremst um leið­rétt­ingu á verð­tryggðum hús­næð­is­skuldum hluta lands­manna, eða rúm­lega þriðj­ungi þeirra. Þorri þeirra rúm­lega 80 millj­arða króna sem greiddur var út sem skaða­bætur fyrir verð­bólgu­skot eft­ir­hrunsár­anna fór til fólks í kringum fimm­tugt og fjórð­ungur upp­hæð­ar­innar fór til tekju­hæsta fimmt­ungs þeirra sem sóttu um leið­rétt­ingu. Þá fengu 1.250 manns sem áttu yfir 100 millj­ónir króna í hreinni eign hús­næð­is­skuldir sínar leið­réttar.

Greiðsla leið­rétt­ing­ar­innar er ein ástæða þess að einka­neysla hefur auk­ist hratt und­an­farið. Önnur ástæða þess­arar þenslu eru þær háu launa­hækk­anir sem tekið hafa gildi á almenna og opin­bera vinnu­mark­aðnum und­an­farið, í kjöl­far þess að laun lækna voru hækkuð um tugi pró­senta með samn­ingum við ríkið í upp­hafi árs. Raunar hefur vöxtur einka­neyslu ekki verið hrað­ari í níu ár og hún drífur áfram þann hag­vöxt sem landið upp­lifir nú um stundir.

Hitt ríka áherslu­málið tengt heim­il­inum í land­inu var að breyta sem flestum hús­næð­is­lánum úr verð­tryggðum í óver­tryggð, meðal ann­ars til að „koma í veg fyrir þenslu­hvetj­andi áhrif leið­rétt­ing­ar­innar“.

[caption id="attachment_10966" align="alignnone" width="633"] Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar var lögð rík áhersla á heim­ilin í land­inu. Sú áhersla snérist fyrst og fremst um skulda­leið­rétt­ingu og aðgerðir til að draga úr fjölda verð­tryggðra lána.[/caption]

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar var lögð rík áhersla á heimilin í landinu. Sú áhersla snérist fyrst og fremst um skuldaleiðréttingu og aðgerðir til að draga úr fjölda verðtryggðra lána.
Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar var lögð rík áhersla á heim­ilin í land­inu. Sú áhersla snérist fyrst og fremst um skulda­leið­rétt­ingu og aðgerðir til að draga úr fjölda verð­tryggðra lána.

Þessu tak­marki hefur alls ekki verið náð. Þegar nýju bank­arnir hófu að bjóða upp á óver­tryggð lán með föstum vöxtum til þriggja eða fimm ára 2011 hopp­uðu margir lán­tak­endur á þann vagn, enda verð­bólga á þeim tíma oft­ast á bil­inu 5-6 pró­sent.

Síðan þá hefur hún hríð­lækkað og hefur nú verið undir verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans, 2,5 pró­sent, í eitt og hálft ár. Samhliða hafa íslenskir lán­tak­endur valið að taka verð­tryggð lán frekar en óverð­tryggð og er skipt­ingin und­an­farin miss­eri þannið að á milli 60 og 70 pró­sent nýrra lána eru verð­tryggð. Ástæðan: fólk borgar 30 pró­sent minna í afborg­anir að jafn­aði af verð­tryggðum lánum en óverð­tryggðum og hefur því meira fé til ann­arra hluta á milli hand­anna. Svo spilar mögu­lega inn í að komið er for­dæmi fyrir því að rík­is­sjóður greiði verð­tryggðum hús­næð­is­skuld­urum skaða­bætur ef verð­bólga yfir ákveðið tíma­bil hækkar skarpt.

Ljóst er að almenn­ingur kýs með vesk­inu og vill verð­tryggðu lánin. Eina sýni­lega leiðin til þess að það breyt­ist er ef vextir á óverð­tryggðum lánum verði lækk­aðir umtals­vert. Við­skipta­bank­arnir, sem starfa á mark­aði, munu ekki gera slíkt sjálfir. Því þyrftu stjórn­völd að grípa inn í með íþyngj­andi laga­setn­ingu til að skikka bank­ana til að græða minna, nið­ur­greiða lán með skattfé eða taka upp nýjan gjald­miðil sem útheimti ekki jafn háa vexti, til að breyta þess­ari for­gangs­röðun.

Nú eða bíða bara eftir næsta verð­bólgu­skoti.

Gríðarleg vöntun á húsnæði


Síðar í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar, undir kafla sem heitir „Vel­ferð­ar­mál“ segir: „Rík­is­stjórnin leggur áherslu á að lands­menn búi við öryggi í hús­næð­is­málum í sam­ræmi við þarfir hvers og eins og hafi raun­veru­legt val um búsetu­form.“

Staðan á íslenskum hús­næð­is­mark­aði er þannig að eftir banka­hrun var ákveðið offram­boð af hús­næði eftir þenslu­árin sem á undan höfðu komið. Á fimm ára tíma­bili, 2009 til 2013, var hins vegar ein­ungis lokið við bygg­ingu um tvö þús­und íbúða. Grein­ingar sýna að það þurfi að byggja um 1.500 til 1.800 íbúðir á ári til að mæta eðli­legri eft­ir­spurn. Það vant­aði því allt að sjö þús­und íbúðir á þessu ára­bili til að svala þeirri þörf sem er fyrir íbúðir á þessu ára­bili, án þess að til­lit sé tekið til þess offram­boðs sem var til staðar við hrunið, sem var þó ein­ungis brot af þess­ari tölu.

Í mars síð­ast­liðnum voru 2.274 íbúðir í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sam­kvæmt taln­ingu Samtaka iðn­að­ar­ins. Um tvö ár tekur að byggja nýja íbúð og því þurfa um þrjú þús­und íbúðir að vera í bygg­ingu á hverjum tíma til að mæta neðri mörkum eðli­legrar eft­ir­spurnar hér­lendis.

Í nýbirtu fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar segir að „hár bygg­ing­ar­kostn­aður miðað við íbúða­verð er helsta ástæða þess hversu lítil íbúða­fjár­fest­ing síð­ustu ára hefur verið en hækk­andi hús­næð­is­verð hefur ýtt undir frek­ari fjár­fest­ingar“.

Fjögur þúsund íbúðir leigðar út til ferðamanna


Ýmislegt annað hefur hins vegar einnig spilað inn í. Ferða­mönnum hefur til að mynda fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi und­an­farin ár og allar spár gera ráð fyrir því að sú aukn­ing haldi hratt áfram. Í fyrra komu tæp­lega ein milljón slíkra hingað til lands og í ár er búist við því að þeir verði 1,3 millj­ónir. Á næsta ári gætu þeir orðið um 1,5 millj­ónir. Árið 2010 voru þeir undir 500 þús­und.

Allir þessir ferða­menn þurfa vit­an­lega að gista ein­hvers­staðar og því er í gangi gull­graf­ara­æði í bygg­ingu hót­ela. Sú hraða upp­bygg­ing gisti­rýmis gerir það að verkum að vöntun er á vinnu­afli, sér­stak­lega fag­mennt­uðu, til að byggja íbúðir.

[caption id="attachment_21270" align="alignnone" width="2048"] Um fjögur þús­und íbúðir á land­inu eru leigðar út til ferða­manna.[/caption]

Um fjögur þúsund íbúðir á landinu eru leigðar út til ferðamanna.
Um fjögur þús­und íbúðir á land­inu eru leigðar út til ferða­manna.

Og þótt að varla megi sjást auður gras­bali á höf­uð­borg­ar­svæð­inu án þess að fjár­fest­inga­fé­lag, stýrt af fyrrum banka­starfs­mönnum með alla vasa fulla af líf­eyr­is­sjóðs­pen­ingum byggi þar hótel, er fram­boð gist­ingar á hót­elum fjarri því að mæta þeirri eft­ir­spurn sem er til staðar.

Þess vegna eru um fjögur þús­und íbúðir á Íslandi í útleigu til ferða­manna, að mati Samtaka atvinnu­lífs­ins. Þetta eru íbúðir sem ella væru á almennun leigu­mark­aði. Ferða­menn leigja til skamms tíma í einu og því fæst hærra verð fyrir hverja útleigða nótt en á almennum leigu­mark­aði.

Þar að auki hafa fag­fjár­festar sett upp ýmsa sjóði og félög sem kaupa upp íbúð­ar­hús­næði. Til skamms tíma hagn­ast þeir á hækk­andi leigu­verði og til lengri tíma á hærra hús­næð­is­verði. Þessir sjóðir og félög hafa verið að kaupa upp hús­næði víðs­vegar um höf­uð­borg­ar­svæðið, þó aðal­lega í mið­borg­inni og í hverf­unum í kringum það. Um er að ræða hund­ruðir íbúða hið minnsta.

Þessi staða þrýstir bæði upp verði á hús­næði og leigu­verði.

Reykjavík ekki í stakk búin að lækka lóðaverð


Það er rétt sem fram kemur í fjár­laga­frum­varp­inu að bygg­inga­kostn­aður íbúa sé hár og að það auki á vand­ann á hús­næð­is­mark­aði. Þær nýju ibúðir sem hafa verið byggðar und­an­farin ár, og eru í bygg­ingu, eru flest allar allt of dýrar fyrir þá sem vilja koma sér inn á hús­næð­is­mark­að­inn.

[caption id="attachment_38321" align="alignnone" width="1024"] Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Borgin glímir við mik­inn rekstr­ar­vanda. Mynd: Anton.[/caption]

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur. Borgin glímir við mikinn rekstrarvanda. Mynd: Anton.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Borgin glímir við mik­inn rekstr­ar­vanda. Mynd: Anton.

Stór hluti í bygg­ing­ar­kostn­aði er lóða­verð. Miðað við þá afleitu stöðu sem er uppi í rekstri Reykja­vík­ur­borgar ( tap af rekstri borg­ar­innar var yfir þrír millj­arðar króna á fyrri hluta þessa árs) má ekki búast við að verð á lóðum verði lækkað hand­virkt. Raunar hefur Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, útskýrt tapið á fyrri hluta árs­ins með því að lóða­sala hafi taf­ist. Þær tekjur muni vinn­ast upp á síð­ari hluta árs­ins 2015.

Í nóv­em­ber í fyrra lagði Dagur fram til­lögu að áætlun um upp­bygg­ingu 500 félags­legra leigu­í­búða, á næstu fimm árum í Reykja­vík. Þar er gert ráð fyrir að Reykja­vík­ur­borg leggi til tíu pró­sent eigið fé í kaup á íbúð­unum 500 og að ríkið leggi til 20 pró­sent. Sex borg­ar­full­trúar Sam­fylk­ingar, Bjartrar fram­tíðar, Vinstri grænna, Pírata og Sjálf­stæð­is­flokks­ins sam­þykktu áætl­un­ina. Margir, meðal ann­ars borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, hafa gagn­rýnt þessa áætlun og sagt að það þurfi að byggja mun meira. Nóg sé komið af tali.

Færri hafa efni á að standa á eigin fótum


Og hvert hefur þessi þróun á hús­næð­is­mark­aði, sem rakin er hér að ofan, skilað okkur?

Samhliða strang­ari lána­skil­málum hjá bönkum, meðal ann­ars vegna nýrra laga um neyt­enda­lán sem tóku gildi árið 2013, hafa gert lág- og með­al­tekju­fólki sem ekki eiga kost á fjár­hags­legri með­gjöf fjöl­skyldu eða vanda­manna erfitt, og oft ómögu­legt, að kaupa fast­eign.

Fyrir þriggja her­bergja íbúð í mörgum hverfum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag er hægt að búast við því að þurfa að greiða um 30 millj­ónir króna hið minnsta, þótt vissu­lega sé tölu­verður verð­munur milli hverfa og hægt sé að finna ódýr­ari lausnir. Verð á íbúð­ar­hús­næði hefur enda hækkað um 41,8 pró­sent frá árs­byrjun 2011, sam­kvæmt minn­is­blaði sem Eygló Harð­ar­dóttir, félags og hús­næð­is­mála­ráð­herra, kynnti á fundi rík­is­stjórnar á þriðju­dag.

Nýir fast­eigna­kaup­endur þurfa því að eiga að minnsta kosti sex millj­ónir króna til að ráð­ast í þá fjár­fest­ingu. Það eiga fæstir.

Þessi staða hefur orsakað það að í dag býr tæp­lega 40 pró­sent Íslend­inga á aldr­inum 20 til 29 ára enn heima hjá for­eldrum sínum. Í Danmörku er það hlut­fall tíu pró­sent. Þá hefur með­al­aldur fyrstu kaup­enda hækkað skarpt og er í dag 29 ár.

Þeir sem leigja hafa illa efni á að leigja


Þegar fjöl­skyldur geta ekki keypt íbúðir sökum fjár­skorts, í hús­næð­is­kerfi sem byggir á sér­eigna­stefnu, þá leita þær vit­an­lega út á leigu­mark­að­inn. Íslenskum heim­ilum á leigu­mark­aði fjölg­aði um þrettán þús­und á árunum 2007 til 2013, eða um sjö þús­und umfram fjölgun heim­ila í land­inu á því tíma­bili. Þeim hefur vafa­litið fjölgað síðan og keppa þar við hvort annað og alla­ferða­menn­ina um hvert laust leigu­hús­næði. Leiga á 70-80 fer­metra þriggja her­bergja íbúð í Reykja­vík í ágúst kost­aði að með­al­tali 145 til 165 þús­und krónur á mán­uði í ágúst síð­ast­liðnum.

[quote font="0" align="right"]Leigu­verð á hús­næð­is­mark­aði hefur hækkað um 40,2 pró­sent frá árs­byrjun 2011. Um 45 pró­sent launa­manna hér­lendis voru með heild­ar­laun á bil­inu 300-500 þús­und krónur á mán­uði á árinu 2014.[/quote]

Leigu­verð á hús­næð­is­mark­aði hefur hækkað um 40,2 pró­sent frá árs­byrjun 2011. Um 45 pró­sent launa­manna hér­lendis voru með heild­ar­laun á bil­inu 300-500 þús­und krónur á mán­uði á árinu 2014.

Ráð­stöf­un­ar­tekjur þessa hóps, eftir skatta og gjöld, oft­ast nær á bil­inu 215 til 350 þús­und krónur. Það þýðir að ein­stæð­ingur með 300 þús­und krónur í laun á mán­uði sem þyrfti að leigja sér íbúð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu myndi nota yfir 70 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í hús­næð­is­kostnað. Sá sem væri með 500 þús­und krónur í heild­ar­laun myndi nota um 45 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum.

Þá eiga þeir eftir að borga fyrir allt hitt sem þarf til að lifa.

Ástandið er ekki að fara að lagast mikið


Miðað við hversu mik­ill tími hefur farið í að ræða um neyð­ar­á­standið á hús­næð­is­mark­aði og ósjálf­bærni íslenskra hús­næð­is­lána­kerf­is­ins mætti ætla að næsta ár yrði ár verka hjá íslenskum stjórn­völdum. Nú yrðu ermar brettar upp og vanda­málið tæklað af þeirri alvöru sem ástandið kallar á. Miðað við fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar virð­ist það ekki vera ætl­unin.

Þar er lít­ill kafli um aðgerðir í hús­næð­is­málum sem í segir að miklu máli skipti að hið opin­bera stuðli að auknu fram­boði og lægri bygg­ing­ar­kostn­aði „þannig að stöð­ug­leiki og eðli­legt jafn­vægi náist á sem skemmstum tíma á fast­eigna­mark­aði ásamt því að spornað sé gegn því að sér­tækar aðgerðir hins opin­bera ýti undir eft­ir­spurn og þar með hærri hús­næð­is­kostnað“.

[caption id="attachment_38727" align="alignnone" width="1236"] Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur ekki gengið vel að koma til­lögum að úrbótum á hús­næð­is­mark­aði í gegnum rík­is­stjórn­ina sem hún situr í.[/caption]

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ekki gengið vel að koma tillögum að úrbótum á húsnæðismarkaði í gegnum ríkisstjórnina sem hún situr í.
Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur ekki gengið vel að koma til­lögum að úrbótum á hús­næð­is­mark­aði í gegnum rík­is­stjórn­ina sem hún situr í.

Síðan eru boð­aðar tvenns konar aðgerðir. Önnur snýst um að auð­velda ungu fólki fyrstu kaup með óút­færðum stuðn­ingi hins opin­bera.

Hitt úrræðið, sem er útfært, snýst um að auka stuðn­ing við leigj­endur með því að lækka skatta á leigu­tekjur úr 14 pró­sent í tíu pró­sent „í þeim til­gangi að lækka leigu­verð og auka fram­boð leigu­í­búða.“ Margir hafa áhyggjur af því að leigusalar muni ekki skila þessum skatta­lækk­unum til neyt­enda, heldur stinga þeim sjálfir í vas­ann, enda eft­ir­spurn eftir eign þeirra mun meiri en fram­boðið.

Samhliða á að hækka húsa­leigu­bætur um rúm­lega einn millj­arð króna. Ef miðað sé við að heim­ili lands­ins séu um 130 þús­und tals­ins, og að um 30 pró­sent þeirra séu á leigu­mark­aði, leigja um 39 þús­und fjöl­skyldur hús­næði hér­lendis. Ef einum millj­arði króna er skipt niður á þessar fjöl­skyldur gerir það rúm­lega 2.100 krónur á mán­uði.

Að lokum ætlar rík­is­stjórnin að hrinda af stað „átaki í bygg­ingu félags­legra leigu­í­búða þar sem lögð verður áhersla á að fjölga hag­kvæmum og ódýrum íbúðum til að tryggja tekju­lágum fjöl­skyldum leigu­hús­næði til lengri tíma. Stefnt er að því að byggja allt að 2.300 íbúðir á næstu fjórum árum, þ.e. á árunum 2016–2019, og allt að 600 íbúðir árlega. Ráðgert er að á næsta ári verði haf­ist handa við að reisa allt að 400 íbúðir og til þess varið 1,5 mia.kr. í ný fram­lög.“

Vanda­málið við þessa áætlun er að sitj­andi rík­is­stjórn er ekki með umboð nema út þetta kjör­tíma­bil, sem klár­ast á vor­mán­uðum 2017. Af þeim 2.300 íbúðum sem hún er að loka á fjög­urra ára tíma­bili er hún því ein­ungis í færum til að tryggja að haf­ist verði handa við að reisa þær 400 sem áætlað er að hefj­ast handa við á næsta ári. Líkt og kom fram hér að ofan er það langt frá því að svala þeirri þörf sem er á hús­næð­is­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár