Fjórir af hverjum tíu Íslendingum á þrítugsaldri búa enn í foreldrahúsum

Tæplega 40 pró­sent Íslend­inga á aldr­inum 20 til 29 ára búa enn heima hjá for­eldrum sínum. Í Danmörku er hlut­fallið um tíu pró­sent en í sumum öðrum Evr­ópu­löndum mun hærra. Á Ítalíu, Spáni og Póllandi er það til að mynda á bil­inu 60 til 80 pró­sent. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands sem Morg­un­blaðið greinir frá.

Þar er haft eftir Kolbeini Stef­áns­syni, sér­fræð­ingi í lífs­kjara­rann­sóknum hjá Hagstofu Íslands, að það hafi verið stöð­ugur stíg­andi í hlut­falli þeirra Íslend­inga á þrí­tugs­aldri sem búa enn í for­eldra­húsum. Um lang­tíma­þróun virð­ist vera að ræða. Tilgáta Kolbeins er sú að þró­unin teng­ist auk­inni aðsókn í háskóla­nám. Það sé erf­ið­ara fyrir fólk í námi að flytja að heiman en fólk sem er komið út á vinnu­mark­að­inn.

Einnig gæti ekki lengur verið jafn fýsi­legt að flytja að heiman nú en áður, meðal ann­ars vegna þess að leigu­verð sé of hátt. Kolbeinn telur að ástæða þess að hlut­fall fólks á þrí­tugs­aldri sem býr enn heima hjá for­eldum er mjög hátt hjá sumum Evr­ópu­löndum geti skýrst að hluta af menn­ing­ar­mun. Sums staðar sé hefð fyrir því að fólk búi lengur í for­eldra­húsum. Sömu­leiðis geti öðru­vísi hús­næð­is­stefna eða meira fram­boð af náms­manna­hús­næði skýrt lægra hlut­fall í öðrum löndum.

Leiguverð og húsnæðisverð hafa hækkað mikið


Alls voru 48.273 Íslend­ingar á aldr­inum 20 til 29 ára í upp­hafi þessa árs. Samkvæmt því búa tæp­lega 19 þús­und þeirra enn í for­eldra­húsum. Ljóst er að leigu­verð hefur hækkað mjög hratt und­an­farin ár. Í apríl síð­ast­liðnum kost­aði til að mynda um 139 þús­und krónur á mán­uði að leigja 60 fer­metra tveggja her­bergja íbúð í Reykja­vík, sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr leigu­gagna­grunni Þjóð­skrár. Í byrjun árs 2011 kost­aði um 101 þús­und krónur að leigja sömu íbúð. Á meðal þess sem talið er að hafi keyrt upp leigu­verð er mikið eft­ir­spurn ferða­manna eftir gist­ingu, en fjöldi þeirra hefur marg­fald­ast á örfáum árum og voru þeir um ein milljón alls í fyrra.

Hús­næð­is­verð hefur sömu­leiðis hækkað mikið. Þannig hefur vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að mynda hækkað um 36,5 pró­sent frá jan­úar 2011 til sama mán­aðar 2015. Grein­endur spá auk þess allt að 25 pró­sent hækkun til við­bótar út árið 2017.

Það er því ekki fyr­ir­sjá­an­legt að aðgengi fólks á þrí­tugs­aldri að hús­næð­is­mark­aðnum sé að fara að aukast veru­lega á allra næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár