Rekstur Reykjavíkurborgar mun þyngri en búist var við

Rekstr­ar­nið­ur­staða sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar (A og B hluta) var jákvæð um 303 millj­ónir króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Það er langtum minni afgangur en áætl­anir gerðu ráð fyrir, en í þeim var gert ráð fyrir 2.141 milljón króna afgangi á tíma­bil­inu. Ástæður fyrir slæmu hálfs­árs­upp­gjöri eru sagðar minni hagn­aður Orku­veitu Reykja­víkur vegna lækk­andi álverðs og einnig lak­ari afkomu A-hluta borg­ar­innar en áætlun gerði ráð fyrir. Þar ræður hækkun launa­kostn­aðar og minni sala á bygg­ing­ar­rétti mestu. Alls nam tap af rekstri A-hluta rúmum þremur millj­örðum króna.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg um rekst­ur­inn á fyrri hluta árs.

„Nið­ur­staða sex mán­aða upp­gjörs­ins kemur ekki á óvart og und­ir­strikar að það er áskorun að eiga fyrir nýgerðum kjara­samn­ingum og mik­il­vægi þess að árangur náist í end­ur­mati á mála­flokki fatl­aðs fólks og dag­gjöldum hjá hjúkr­un­ar­heim­ilum, en um millj­arð vantar upp á að ríkið láti þá fjár­muni fylgja sem þarf vegna þessa. Mikil upp­bygg­ing framundan léttir þó undir og við munum taka skipu­lega og fast á fjár­mál­unum, líkt og und­an­farin ár,“ segir Dagur B.Egg­erts­son borg­ar­stjóri í til­kynn­ingu.

Mikið tap af rekstri A-hluta


Tap af rekstri A-hluta borg­ar­innar nam 3.038 millj­óum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, en áætl­anir gerðu ráð fyrir að hún yrði nei­kvæð um 1.865 millj­ónir á tíma­bil­inu. Til A- hluta tekst starf­semi sem að hluta eða öllu leyti er fjár­mögnuð með skatt­tekjum. Verri afkoma er eins og fyrr greinir rakin til læk­gri tekna af sölu bygg­ing­ar­réttar og sölu fast­eigna, sem var 552 millj­ónum króna undir áætlun, og hækkun launa­kostn­aðar umfram áætlun um 403 millj­ónir króna.

Heild­ar­eignir sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar, það eru A og B hlutar, námu í lok júní sam­tals 513.207 millj­ónum króna. Heild­ar­skuldir ásamt skuld­bind­ingum námu 282.812 millj­ónum króna og eigið fé var 220.395 millj­ónir króna. Eig­in­fjár­hlut­fall er 42,9 pró­sent en var 41, pró­sent um síð­ustu ára­mót.

Til B-hluta telj­ast fjár­hags­lega sjálf­stæð fyr­ir­tæki sem að hálfu eða meiri­hluta eru í eigu borg­ar­innar, en rekstur þeirra er að stofni til fjár­magn­aður með þjón­ustu­tekjum. Fyr­ir­tækin eru: Faxa­flóa­hafnir sf., Félags­bú­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði hf., Orku­veita Reykja­víkur, Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.

Sjálfstæðismenn ósáttir


Borg­ar­stjórn­ar­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi frá sér yfir­lýs­ingu í kjöl­far birt­ingu upp­gjörs­ins í dag og benti á að Fjár­mála­skrif­stofa borg­ar­innar segi í skýrslu sinni að þessi slæma nið­ur­staða kalli á við­brögð í fjár­mála­stjórn borg­ar­innar. „Mikill þungi er í þeim orðum fjár­mála­skrif­stof­unnar og und­ir­strikar þörf þess að mark­viss vinna verði sett strax af stað við að taka á rekstr­ar­vanda­málum Reykja­vík­ur­borgar. Við afgreiðslu árs­reikn­ings árs­ins 2014 lögðu borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins til að slík vinna færi strax af stað,“ segja sjálf­stæð­is­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár