Meðalaldur fyrstu fasteignakaupenda hefur hækkað í 29 ár

Staða fyrstu fast­eigna­kaup­enda hefur batnað og eru þeir nú orðnir 20 pró­sent kaup­enda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sam­an­borið við 13,6 pró­sent með­al­tal frá árinu 2008. Með­al­aldur fyrstu kaup­enda hefur þó hækkað og er í dag 29 ár, sem er svip­aður með­al­aldur fyrstu kaup­enda í Bret­landi. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu sem Reykja­vík Economics hefur unnið fyrir Íslands­banka, en helstu nið­ur­stöður hennar verða kynntar á opnum fundi í úti­búi bank­ans á Granda í dag.

Í skýrsl­unni kemur jafn­framt fram að þing­lýstum kaup­samn­ingum fjölg­aði um tæp­lega 12 pró­sent á síð­asta ári frá árinu á undan, en sam­tals voru þeir 8.314 á síð­asta ári. Þá nam heild­ar­velta á íbúða­mark­að­inum 257 millj­örðum króna sem er rúm­lega 16 pró­sent hækkun að nafn­virði en árið á undan. Íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 8,8 pró­sent á síð­asta ári, verð á eignum í fjöl­býli hækk­aði um níu pró­sent og eignir í sér­býli hækk­uðu um 7,7 pró­sent.

Takmörkuð bólumyndun


Á und­an­förnum árum hefur ekki verið byggt nægi­lega mikið af nýjum íbúðum til að mætta nátt­úru­legri íbúa­fjölgun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, að því er fram kemur í skýrslu Reykja­vík Economics. Þar segir að sam­tals 954 íbúðir hafi verið full­gerðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á síð­asta ári, sem er 203 fleiri íbúðir en árið á undan. Að jafn­aði hafa tæp­lega 1.200 íbúðir verið full­gerðar árlega á tíma­bil­inu 1983 til 2014. Alls voru 1813 íbúðir í bygg­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem eru 364 færri íbúðir en um ára­mótin 2013. Þá var byrjað á 570 íbúðum á síð­asta ári, sem er vel undir lang­tíma með­al­tal­inu.

Þá segir í skýrsl­unni að skulda­staða heim­ila hafi batnað nokkuð með minnk­andi atvinnu­leysi og auknum kaup­mætti. Bólu­myndun á fast­eigna­mark­aði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sé tak­mörkuð en íbúð­ar­hús­næði sé engu að síður orðið dýrt mið­svæðis í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár