Þórólfur: Einum kafla lokið í stríðinu við COVID

Sótt­varna­læknir segir að nú þurfi að gera upp far­ald­ur­inn og þá vinnu sem unnin hefur verið hér. Í fram­hald­inu gæti sú reynsla gagn­ast öðrum þjóðum.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

„Þetta er fal­legur dagur sem von­andi er fyr­ir­boði góðra tíma,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir við upp­haf upp­lýs­inga­fundar almanna­varna í dag. Aðeins eitt nýtt smit greind­ist á land­inu í gær. Sagði Þórólfur far­ald­ur­inn „klár­lega kom­inn niður“ og að lítið smit væri í gangi meðal almenn­ings. Þá hefði álag á heil­brigð­is­kerfið minnkað mjög mikið.

„Ég held að þetta þýði að við munum sjá örfá smit á næst­unni en það verður ekki hægt að úti­loka hóp­sýk­ingar,“ sagði Þórólfur og að þess vegna þurfum við að halda áfram að taka sýni og vera vak­andi.

„Nú er einum kafla lokið í stríð­inu við COVID hér,“ sagði Þórólfur. „En stríðið er nokkrir kaflar og við erum ekki komin að landi.“

Nýr kafli felst í því að koma í veg fyrir að far­ald­ur­inn blossi upp aftur, „og við þurfum að fara var­lega næstu mán­uði ef ekki á illa að fara“. Áskor­unin verði að aflétta tak­mörk­unum hægt, við­hafa við­un­andi ferða­tak­mark­anir næstu miss­eri, við­halda sótt­vörnum, vernda við­kvæma hópa og kanna mótefna­stöðu almenn­ings þegar það verður tíma­bært.

[links]„Annar þáttur er svo að gera upp þennan far­aldur og þá vinnu sem hefur verið innt af hendi af mjög mörgum aðilum,“ sagði Þórólfur. Miklar upp­lýs­ingar hefðu feng­ist síð­ustu vikur og mikil reynsla og þekk­ing skap­ast. Það mun gagn­ast okkur í fram­tíð­inni, m.a. ef önnur bylgja far­ald­urs kemur upp hér á landi.

En að sögn Þórólfs mun þessi þekk­ing einnig gagn­ast öðrum þjóðum. Mik­il­vægt sé að fara í þá vinnu núna að draga þetta saman og deila reynsl­unni með öðrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár