Bjarni: Þurfum að kjósa sem fyrst

Alþing­is­kosn­ingar verða í nóv­em­ber, gangi hug­myndir Bjarna Bene­dikts­sonar eftir.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, segir að staðan sem komin sé upp í íslenskum stjórn­málum, sé þannig að kjós­endur þurfi nú að ráða ferð­inni.

Hann segir að það þurfi stjórn­mála­flokka í land­inu við völd sem hafi „djúpar rætur“ og falli ekki niður í vind, í dæg­ur­þrasi stjórn­mál­anna.

Hann segir að fólkið í land­inu þurfi nú að koma að og kjósa sér nýja rík­is­stjórn.

Á blaða­manna­fundi sem Bjarni hélt í Valhöll, sagði hann að við­ræður við stjórn­mála­leið­toga ann­arra flokka, hefðu farið á þann veg, að það væri eins og ekk­ert hefði breyst frá því í kosn­ing­unum síð­asta haust. 

Á fund­inum sagði hann að þetta ferli allt, þar sem stjórn Bjartrar fram­tíðar hefði slitið sig frá rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu, hefði verið óþarft með öllu. Anda hefði mátt rólega, ræða saman og halda áfram með rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.

Hann sagði að málin, er tengj­ast umfjöllun um það hvernig afbrota­menn fá upp­reist æru sína eftir að afplánun er lokið, verið bæði erfið og við­kvæm.

Hann sagði jafn­framt að það hefði verið honum áfall, að fá upp­lýs­ingar um það að faðir hans, Benedikt Sveins­son, hefði verið meðal með­mæl­enda fyrir því að Hjalti Sigurjón Hauksson, barn­a­níð­ingur, fengi upp­reist æru sína. 

Hann sagð­ist hafa litið svo á, miðað við hvernig staða máls­ins var innan stjórn­kerf­is­ins, að hann hefði þurft að fara með upp­lýs­ing­arnar um að faðir hans hefði þessa stöðu, sem trún­að­ar­mál. Ekki á neinum tíma­punkti hefði það verið vilji hans að hylma yfir mál, eða leyna þeim með ein­hverjum hætti.

Fréttin verður upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár