ESMA mælir með að aðilar á fjármálamarkaði grípi nú þegar til aðgerða

Stjórn Evrópsku verð­bréfa­mark­aðs­eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.

Stjórn Evrópsku verð­bréfa­mark­aðs­eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar (ESMA) hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Þar mælir ESMA með að aðilar á fjár­mála­mark­aði grípi nú þegar til ákveð­inna aðgerða. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands í dag.

[links]Þá segir að Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hafi að und­an­förnu verið í sam­bandi við aðila á mark­aði vegna áhrifa COVID-19. „Fjár­mála­eft­ir­litið tekur undir til­mæli ESMA og hvetur íslensk fyr­ir­tæki á fjár­mála­mark­aði til að grípa til þeirra aðgerða sem ráð­lagðar eru,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjarninn greindi frá því í morgun að Nas­daq Iceland hf., sem rekur íslensku kaup­höll­ina, hefði ákveðið að breyta sveiflu­vörðum (e. Dyna­mic Vola­tility Guards) fyrir öll hluta­bréf, kaup­hall­ar­sjóð og skulda­bréf sem skráð eru á Aðal­markað og First North 12. mars 2020 vegna óvenju­legra aðstæðna á mark­aði.

Í til­kynn­ingu vegna þessa segir að við­mið fyrir sveiflu­verði verði tvö­földuð og við­mið fyrir nið­ur­fell­ingu við­skipta verði í sam­ræmi við gild­andi sveiflu­verði fyrir hvert verð­bréf.

Kaup­höllin mun end­ur­meta stöð­una innan dags­ins og gæti ákveðið taka aftur upp fyrri við­mið í sam­felldum við­skiptum þann 12. mars og mun þá senda út til­kynn­ingu þess efn­is. „Ef annað hefur ekki verið til­kynnt munu við­mið fyrir sveiflu­verði aftur fara í fyrra horf frá og með föstu­deg­inum 13. mar­s.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár