Engin ákvörðun verið tekin um að halda Íslandi lokuðu þar til að bóluefni finnst

Ummæli Lilju D. Alfreðs­dóttur, um að bólu­efni við kór­ónu­veirunni sé for­senda þess að hægt sé að opna Ísland að nýju fyrir ferða­mönnum, hafa vakið athygli. Nú hefur ráð­herra ferða­mála stigið fram og sagt enga ákvörðun hafa verið tekna um málið.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála, nýsköp­unar, iðn­aðar og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um það að halda Íslandi lok­uðu þangað til að hægt verður að bólu­setja fólk gegn kór­ónu­veirunni.

Tilefnið er var frétt í Morg­un­blað­inu í morgun þar sem haft var eftir Lilju D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og vara­for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, að það væri afar ósenni­legt að opn­ast muni fyr­ir flæði fólks til og frá land­inu fyrr en hægt verður að bólu­setja fólk gegn kór­ónu­veirunni.

[adspot]Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir Þórdís Kolbrún að ummæli Lilju hafi skilj­an­lega vakið upp alvar­legar spurn­ingar, ekki síst innan ferða­þjón­ust­unnar þar sem mjög alvar­leg staða væri uppi nú þegar. „Að gefnu til­efni finnst mér mik­il­vægt að það komi fram að það hefur engin ákvörðun verið tekin um þetta enda yrði slík meiri­háttar stefnu­breyt­ing alltaf kynnt með form­legum og við­eig­andi hætti.“

Í við­tal­inu í Morg­un­blað­inu sagði Lilja að um­fangs­mikl­ar ferða­tak­mark­an­ir fram að bólu­setn­ingu gegn kór­ónu­veirunni myndu gera það að verk­um að íslenska hag­kerfið yrði að hálfu lokað og hálfu opið.

Sér­fræð­ingar búast ekki við því að bólu­efni verði til­búið fyrr en í fyrsta lagi seint á þessu ári, og jafn­vel ekki fyrr en þá því næsta.

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, sagði þó í Kast­ljósi RÚV í síð­ustu viku að hann búist við því að búið verði að finna bólu­efni við kór­ónu­veirunni í lok þessa árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár