Viðskiptaráð hvetur þá sem búa yfir upplýsingum um bótasvik að tilkynna þau

Borist hafa ábend­ingar til stétt­ar­fé­lag­anna um að starfs­fólk sem fyr­ir­tæki hefur sett á hluta­bætur sé enn látið vinna fullt starf. Við­skipta­ráð for­dæmir slík hluta­bóta­svik.

Við­skipta­ráð Íslands for­dæmir mis­notkun á hluta­bóta­úr­ræðum stjórn­valda sem vinnur gegn mark­miðum þeirra og brýtur gegn öllum við­teknum venjum góðra stjórn­ar­hátta. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Við­skipta­ráði í dag.

Fram hefur komið hjá stétt­ar­fé­lögum að atvinnu­rek­endur hafi lækkað starfs­hlut­fall starfs­manna en kraf­ist vinnu­fram­lags umfram hið nýja hlut­fall. Þá kom fram hjá Eflingu í gær að borist hefðu ábend­ingar um að starfs­fólk sem fyr­ir­tæki hefur sett á hluta­bætur væri enn látið vinna fullt starf. Fyr­ir­tæki hefðu þannig fært launa­kostnað yfir á ríkið en þegið vinnu starfs­fólks­ins. Um væri að ræða grófa mis­notkun á almannafé sem gengi þvert á mark­mið hluta­bóta­leið­ar­innar.

Í til­kynn­ingu Við­skipta­ráðs segir að stjórn­völd, atvinnu­lífið og lands­menn allir hafi tekið höndum saman til að standa vörð um störf við óvið­jafn­an­legar aðstæður. Í þeirri við­leitni hafi stjórn­völd lagt fram mik­il­vægar og tíma­bundnar ráð­staf­anir í formi hluta­at­vinnu­leys­is­bóta.

„Við­skipta­ráð Íslands for­dæmir mis­notkun á slíkum úrræðum sem vinnur gegn mark­miðum þeirra og brýtur gegn öllum við­teknum venjum góðra stjórn­ar­hátta. Stuðli atvinnu­rek­andi að slíkum bóta­svikum getur það varðað við hegn­ing­ar­lög. Atvinnu­rek­endur, stétt­ar­fé­lög, launa­fólk og aðrir sem búa yfir upp­lýs­ingum um bóta­svik eru hvattir til að til­kynna það til Vinnu­mála­stofn­unar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Sumir ætli að notfæra sér þennan harmleik

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir á vef­síðu stétt­ar­fé­lags­ins að sumir atvinnu­rek­endur ætli greini­lega að not­færa sér þann harm­leik sem þessi far­aldur er til að rík­i­s­væða kostn­að­inn en halda tekj­unum. „Þetta er geysi­lega ósvífið gagn­vart atvinnu­leys­is­trygg­ing­ar­sjóði, og kald­rana­leg eig­in­girni á hættu­tímum.“

Hún bendir enn fremur á að oft hafi spjótum verið beint að fátæku fólki sem sakað sé um að svindla á bóta­kerfum. „Nú sjáum við dæmi um að vell­auðug fyr­ir­tæki, sem hafa greitt sér millj­ónir og millj­arða í arð, eru að nýta sér neyð­ar­úr­ræði rík­is­ins. Stjórn­völd þurfa að koma í veg fyrir svik þegar í stað,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár