Úrvalsvísitala íslensku Kauphallarinnar svokallaða, sem er samsett af þeim átta félögum sem hafa mestan seljanleika á Nasdaq Iceland, lækkaði um níu prósent á árinu 2016. Heildarvísitala hlutabréfa lækkaði um 6,7 prósent.
Veltan með hlutabréf jókst hins vegar umtalsvert. Heildarviðskipti með þau voru 559 milljarðar króna á árinu sem var að líða en 392 milljarðar króna á árinu 2015. Aukningin nemur því 41 prósentum. Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (140,1 milljarður króna), Marel (70,4 milljarðar króna) og Haga (52,6 milljarða króna).
Markaðsvirði skráðra hlutabréfa var samtals 993 milljarðar króna í lok árs 2016, sem er fimm prósent lægra en í lok árs 2015. Þetta var staðan þrátt fyrir að tvö félög hafi verið nýskráð á markað á árinu, Skeljungur á Aðalmarkað og Iceland Seafood Internatjonal á First North markaðinn.
N1, sem rekur eldsneytisstöðvar víða um land, hækkaði mest á árinu. Alls hækkuðu bréf félagsins um 84 prósent. Næst mesta hækkun var á bréfum í Eimskiptafélagi Íslands, en þau hækkuðu um 37 prósent.
Félög sem eru fyrst og síðast með tekjur í öðrum gjaldmiðli hafa hrunið í verði í Kauphöllinni samhliða mikilli styrkingu krónunnar, þrátt fyrir að rekstur þeirra allra sé afar stöðugur. Hlutabréf í Icelandair, stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, hafa til að mynda lækkað um 34,7 prósent á einu ári. Markaðsvirði fyrirtækisins er nú um 115 milljarðar króna. Í lok apríl síðastliðins var það um 189 milljarðar króna. Því hefur markaðsvirði Icelandair lækkað um 74 milljarða króna á á um átta mánuðum.
Bréf í Össuri einnig lækkað mikið. Markaðsvirði Össurar nú um áramótin er um 173 milljarðar króna en var um 210 milljarðar króna í lok árs 2015. Því hefur markaðsvirðið lækkað um 31 milljarð króna á einu ári, eða 17,9 prósent.
Mesta hlutfallslega lækkunin varð þó á bréfum sjávarútvegsrisans HB Granda, eina skráða sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Markaðsvirði félagsins er nú um 47,1 milljarður króna. Í lok árs 2015 var það 74,5 milljarðar króna. Því hefur virðið lækkað um 27,4 milljarða króna á einu ári, eða um 36,7 prósent.
Í lok ágúst var tilkynnt um að stjórn Vátryggingafélags Íslands (VÍS) hefði samið við Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur, forstjóra félagsins, um að láta af störfum. Þess í stað var Jakob Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Promens, ráðinn í starfið. Sigrún Ragna var eina konan sem stýrði skráðu félagi á Íslandi. Nú er því enginn kona í slíku starfi, en alls eru 17 félög skráð á aðalmarkað Kauphallar Íslands.
Valdir viðskiptavinir Arion banka, sem fengu að kaupa fimm prósent hlut í Símanum af bankanum skömmu fyrir útboð haustið 2015 á verði sem reyndist lægra en niðurstaða útboðsins, máttu selja bréf sín þann 15. janúar 2016. Virði bréfanna hafði þá hækkað um yfir 400 milljónir króna á þeim rúmu þremur og hálfum mánuðum sem liðnir voru frá kaupum þeirra. Arion banki viðurkenndi í október 2015 að gagnrýni á sölu bréfanna til vildarviðskiptavinanna hefði verið réttmæt. Ekki hefur fengist uppgefið hverjir það voru sem fengu að kaupa þessi bréf.
Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands, skrifaði grein á Kjarnann 3. apríl 2016 þar sem hann fjallaði um stöðu atvinnulífsins á Íslandi. Þar sagði hann að það sem öðru fremur ræður efnahagslegri velmegun þjóðar séu þær leikreglur sem atvinnulíf hennar býr við og hversu ákveðið þeim leikreglum er framfylgt. Þrátt fyrir margvíslegar aðgerðir sem ráðist var í eftir hrun og sem hafa miðað að því að stuðla að bættum stjórnarháttum fari því þó fjarri að atvinnulífið hafi endurheimt traust almennings. Skoðun Páls á því hvað stæði þar í vegi er skýr:
„Að mínu mati ber opinber umræða þess merki að almenningi er ekki ljóst hvaða skoðun er ríkjandi í atvinnulífinu á þeim vafasömu starfsháttum sem viðgengust fyrir hrun. Þar með hlýtur að ríkja vafi á því í huga fólks að atvinnulífið rýni markvisst eigin starfshætti. Umræða um þá dóma sem fallið hafa í málum tengdum hruninu einkennist af harðri gagnrýni á ákæruvaldið og dómstóla af hálfu þeirra sem hafa verið sakfelldir. Fæstir, ef nokkrir, virðast telja sig hafa gert nokkuð rangt. Á meðan aðrir blanda sér ekki í umræðuna er hættan sú að litið verði á þessa sömu menn sem málsvara viðskiptalífsins. Að mínu mati má færa sterk rök fyrir því að forsvarsmenn í íslensku viðskiptalífi eigi að láta sig þessa umræðu varða til þess að ekki leiki nokkur vafi á viðhorfi meginþorra atvinnulífsins á viðskiptaháttum í aðdraganda hrunsins. Alvarleg lögbrot voru framin. Afleitir viðskiptahættir kostuðu gríðarlega fjármuni og mikla þjáningu. Stórkostleg markaðsmisnotkun átti sér stað. Trú á markaðshagkerfið og hið frjálsa framtak hefur beðið hnekki. Starfsumhverfi atvinnulífsins hefur laskast af þessum sökum. Mikið er í húfi. Þörf er á skýrum skilaboðum.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir