Verðmiðinn á Icelandair og Össuri lækkað um 120 milljarða

Hluta­bréfa­verð tveggja af stærstu félög­unum í kaup­höll­inni hefur lækkað mikið á und­an­förnum mán­uðum.

Mark­aðsvirði Icelandair Group er nú 115 millj­arða en í lok apríl var hann 189 millj­arðar króna. Verðmiði Össurar er nú 155 millj­arðar en var um 200 millj­arðar í lok apríl. Þá stóð gengi bréfa félags­ins í 500 en það var 350 miðað stöðu mála í morgun. Gengi bréfa Icelandair er nú 23,5 en í lok apríl var það tæp­lega 40.

Samtals hafa félögin lækkað um tæp­lega 120 millj­arða króna í verði.

Óhætt er að segja að hlut­hafar þess­ara félaga hafi fengið að finna fyrir mik­ill dýfu á verði hluta­fjár. Líf­eyr­is­sjóðir eru stærstu eig­endur Icelandair. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna á stærsta hlut­inn, 14,7 pró­sent. Í til­felli Össurar er meira en helm­ingur hluta­hafa danskir sjóðir, og er William Demant Invest þeirra stærstur með rúm­lega 42 pró­sent hlut.

Þrátt fyrir að lækkun á hluta­fénu þá hefur rekstur þess­ara félaga beggja verið nokkuð stöð­ugur, en þau gera bæði upp í Banda­ríkja­dal.

Styrking krón­unnar að und­an­förnu kemur að því leyt­inu til illa við félögin. Banda­ríkja­dalur kostar nú 112 krónur en kost­aði um 136 krónur fyrir rúm­lega ári. Styrking krón­unnar gagn­vart evru og Banda­ríkja­dal, tveimur stærstu við­skipta­myntum heims­ins, hefur verið umtals­verð á síð­ustu mán­uðum og nemur að með­al­tali um 16 pró­sentum.

Icelandair og Össur eru ásamt Marel lang­sam­lega stærstu félögin sem skráð eru á markað á Íslandi. Heild­ar­eignir Icelandair námu í lok þriðja árs­fjórð­ungs 1,2 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur ríf­lega 140 millj­örðum króna. Heild­ar­eignir Össurar á sama tíma voru tæp­lega 740 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur ríf­lega 94 millj­örðum króna.

Eigið fé Icelandair nemur tæp­lega 500 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða ríf­lega 60 millj­örðum króna, og hjá Össuri er eigið féð ríf­lega 450 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 55 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár